Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Side 35
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
pv___________________________________________________________Sport
Landsliðshópurinn til undirbúnings fyrir HM tilkynntur:
Bestu mennirnir sem
mér stendur til boða
- Roland Eradze löglegur í fyrsta leik í Portúgal
Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik, til-
kynnti í gær 26 manna landsliðshóp
til undirbúnings fyrir heimsmeist-
aramótið i handknattleik í Portúgal
sem hefst 20. janúar. Guðmundur
mun síðan 30. desember skera hóp-
inn niður en eftir vináttuleikinn við
Slóvena 7. janúar verður valinn
endanlegur 16 manna hópur sem
keppa mun á heimsmeistaramótinu.
Fyrsta æfing liðsins verður á Þor-
láksmessu en ailur hópúrinn verður
ekki samankomin fyrr en á Gaml-
ársdag en þá kemur til landsins
þorri þeirra leikmanna sem leika
erlendis.
Hópurinn sem Guðmundur valdi
í gær er þannig skipaður.
Markverðir eru Guðmundur
Hrafnkelsson, Pallamano Conversa-
no, Elvar Guðmundsson, Ajax/For-
um, Roland Eradze, Val, Birkir ívar
Guðmundsson, Haukum.
Homa- og línumenn eru Guðjón
Valur Sigurðsson, Essen, Gústaf
Bjarnason, Minden, Einar Öm
Jónsson, Wallau Massenheim, Sig-
fús Jónsson, Magdeburg, Róbert Sig-
hvatsson, Wetzlar, Róbert Gunnars-
son, Aarhus GF, Logi Geirsson, FH,
Bjarki Sigurðsson, Val, Alexander
Amarson, HK, og Bjami Fritzson,
ÍR.
Útileikmenn era Gunnar Berg
Viktorsson, Paris Saint Germain,
Rúnar Sigtryggsson, Ciudad Real,
Heiðmar Felixsson, Bidasoa, Snorri
Steinn Guðjónsson, Val, Aron Krist-
jánsson, Haukum, Sigurður Bjama-
son, Wetzlar, Patrekur Jóhannes-
son, Essen, Ólafur Stefánsson, Mag-
deburg, Dagur Sigurðsson,
Wakunaga, Markús Máni Mikaels-
son, Val, Einar Hólmgeirsson, ÍR, og
Jónatan Magnússon, KA.
Alþjóða handknattleikssambandiö
hefur staðfest að Roiand Eradze sé
löglegur með íslendingum á HM.
Guðmundur Guðmundsson lands-
liösþjálfari sagði í samtali við DV
eftir valið að þetta væru sterkustu
leikmennimir sem honum stæði til
boð. Aðspurður hvort hann gæti
lagt mat sitt á liðið þegar röskur
mánuður er þangað til heimsmeist-
arakeppnin hæfist sagði Guðmund-
ur eftirfarandi.
„Ég get ekki lagt mat á mann-
skapinn fyrr en ég hef fengið hann
allan í hendurnar og það veröur
ekki fyrr en um áramótin. Eftir leik-
ina við Slóvena á ég að geta lagt mat
á stöðuna," sagði Guðmundur.
Hann sagðist vera orðinn spennt-
ur að takast á við þetta verkefni
sem blasti við liðinu.
Á fundinum í gær var lögð fram
staðfesting frá alþjóða handknatt-
leikssambandinu þess efnis að Rol-
and Eradze væri heimilt að leika
með islenska landsliðinu frá fyrsta
degi heimsmeistaramótsins í Portú-
gal svo fremi að hann hefði íslenskt
vegabréf undir höndum. Honum
væri einnig ekkert að vanbúnaði að
taka þátt i æfingaleikjum liðsins
fyrir HM í Portúgal.
Stjóm HSÍ ætlar í framhaldi af
þessari staðfestingu að leita ráða
hjá lögfræðingum og ganga úr
skugga um að þetta leyfi hefði verið
gefið eftir settum reglum.
-JKS
Keflavík og KR leika til úrslita í Kjörísbikarnum:
Vanmetum ekki KR-liðið
- segir Anna María Sveinsdóttir, þjálfari Keflvíkinga
KR og Keflavík mætast í úrslita-
leik Kjörísbikarsins í körfuknatt-
leik kvenna í Smáranum í Kópavogi
á morgun. Þetta er í þriðja skiptið
sem úrslitaleikur í þessari keppni
er háður. KR-stúlkur urðu fyrstu
meistararnir i keppninni en Grind-
víkingar fóra með sigur af hólmi í
fyrra. Keflvíkingar voru í úrslitum i
bæði skiptin en lutu í lægra haldi
fyrir framantöldum liðum. Keflvík-
ingar og KR-ingar hafa mæst
tvisvar í deildinni i vetur og unnu
Keflvíkingar stóra sigra í bæöi
skiptin.
Anna María Sveinsdóttir, þjálfari
og leikmaður Keflvíkinga, sagði í
gær að þær væru ákveðnar í að
’snúa við blaðinu og vinna loksins
sigur í þessari keppni.
- Staða okkar í deildinni hjálpar
okkur ekkert í leiknum við KR á
morgun. Dagsformið skiptir mestu
máli og við megum alls ekki falla í
þá gryfju að vanmeta KR-liðið. Hins
vegar er það ekki nein launung að
við mætum til leik með því hugar-
fari að vinna bikarinn," sagði Anna
María í samtalinu.
Hún sagði að liðið hefði leikið vel
til þessa í vetur og Sonja Ortega féUi
sérlega vel inn í leik liðsins. Hún
væri ekki að skora mikið en styrkti
liðið óhemjumikið. Anna María
sagði að Ortega væri góð vöm, ætti
margar stoðsendingar og þær væru
mjög sáttar með hana.
„Keflvíkingar eru sterkara liðið í
þessari viðureign. Það væri ósann-
gjamt að segja annað en ég veit að
mínar stelpur munu gera sitt besta.
Keflvíkingar era með breiðan hóp
en hjá okkur er breiddin ekki eins
mikfl. Þama er um einn leik að
ræða og fortíðin er engin ávísun á
einhver klár úrslit í þessum," sagði
Ósvaldur Knudsen, þjálfari KR-liðs-
ins, á fundinum í gær.
Á leið sinni í úrslitaleikinn lögðu
Keflvíkingar lið ÍS og Hauka en KR-
ingar sigruðu Grindavík og ÍR.
Dómarar leiksins verða Kristinn Al-
hertsson og Bjami G. Þórmundsson.
Á undan leiknum leika Breiðablik
og Njarðvík í úrvalsdeUdinni en að-
gangseyri er enginn á úrslitaleik-
inn. -JKS
Þaö fór vel á með Önnu Maríu Sveinsdóttur og Helgu Þorvaldsdóttur á blaðamannafundi sem haldinn var í tengslum
viö úrslitaleik Keflavíkur og KR í Kjörísbikarnum í körfuknattleik kvenna á morgun. DV-mynd Hari
Munið
að slökkva
á kertunum
Kertaljós á að lýsa
upp skammdegið
- ekki allt hverfið.
ORYGGISNET
SECNET
Rikisiögreglustjórinn
LÖGGILDIHGARSIOFA
Rauði kross íslands
/TST' SLÖKKYILIÐ
HÖFUDBORGARWytÐISINS