Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 37
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Helgct rblaö 1ÖV 37 DV-myndir E.Ól. Guðjón lætur sykurinn bráðiia á pönnunni áður en hann bætir smjörlíkinu út í og síðan kart- öflunum. Hann segir best að kartöflurnar séu nýsoðnar og heitar í gegn og mælir jafnvel með því að þær séu bleyttar aðeins áður en þeim er skellt út í karamelluna á pönnuni. Þá er komið að því að skera steikina og hún bregst ekki vonum. Hryggurinn er fullur af safa enda var suðan látin koma hægt upp, suðutíminn var stuttur og síðan var bitinn lát- inn bíða í pottinum áður en hann var gljáður við góðan hita í ofni. „Það er óþarfi að hafa hlutina flókna," segir Guðjón og býr til eplasalat af einföldustu gerð. Bragðið er frískandi og fer vel með reyktu kjötinu. Hvítvín og rauðvín £rá Alta Vista í Argentínu - er val Ómars S. Gíslasonar, víndeild Rafkóps-Samvirkis Hamborgarhryggur er vinsælasti jólamatur íslend- inga og er hann yfirleitt eldaður á hefðbundnum nót- um. Hins vegar er ekki alltaf hlaupið að því að velja vín með hamborgarhrygg sem orsakast bæði af reyk- bragðinu og saltinu. Ómar S. Gíslason hjá víndeild Rafkóps-Samvirkis var ekki í vandræðum með að leysa þetta verkefni og mælir hér með tveimur fyrir- taks vínum frá Alta Vista í Argentínu, ekki síst hvítvininu. Alta Vista víngerðin í Argentínu á sér langa sögu en hefur ekki hafist til vegs og virðingar fyrr en á allra síðustu árum. Sagt er að fyrsta vínvið Argent- ínu hafi verið plantað af evrópskum innflytjanda um 1557. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og get- ur Argentína nú státað af að vera fjórða stærsta vin- framleiðsluþjóð heims. Andstæður í náttúru lands- ins eru með þeim mikilfenglegustu sem getur að líta hjá nokkurri vinþjóð, snævi þaktir tindar í suðri og frumskógar í norð-austri. í yfir 850 m hæð yfir sjávarmáli hefur franska vín- gerðarfyrirtækið Gam Audy komið sér fyrir með Jean-Michel Arcaute í broddi fylkingar. Jean Michel Arcaute sá snemma möguleikana á að framleiða vin af miklum gæðum í Argentínu. Hafist var handa við framleiðsluna 1997 þegar keyptir voru um 60 hektar- ar á besta stað í Mendoza-héraðinu, Lujan de Cuyo. Gam Audy vínfyrirtækið á rætur að rekja til Bor- deaux í Frakklandi þar sem það framleiðir gæða Bor- deaux-vín. Hefur meistarinn sjáifur, Jean-Michel Arcaute, í tvígang verið valinn víngerðarmaður árs- ins í Frakklandi. í Alta Vista vínunum upphefja frönsk víngerðarlist og frábær ræktunarskilyrði í Argentínu hvort annað í æðra veldi. Með jólamatnum nú urðu hvítvinið Alta Vista Torrontés Premium og rauðvínið Alta Vista Mal- bec fyrir valinu. Alta Vista Torrontés Premium er hreint torrentés vín. Af því leggur mikinn og góð- an blómailm með vott af rósum. Víniö er bjart og ferskt þar sem kryddkeimur full- komnar bragðsinfóníu þá sem verður í munni neytandans. Alta Vista Torrentés hentar vel með reyktum mat eins og ham- borgarhrygg, bæði kjöti og fiski. Það hentar einnig vel með humri og gengur ágætlega með austurlenskri matreiðslu og fuision-mat- reiðslu. Alta Vista Malbec er alfarið gert úr Malbec- þrúgunni og hefur legið í amerískum eik- artunnum i sex mánuði. Liturinn er rúbin- rauður, ilmurinn vel opinn, þéttur og þrosk- aður. Þetta er meðalbragðmikið vín með góða fyllingu, mjúkt tannín og langa endingu í bragði. Vottar fyrir sætum krækiberjum, heitum og bökuðum ávöxtum, kryddi og kaffi. Hér nýtur Malbec-þrúgan sín vel. Alta Vista Malbec nýtur sín vel með öllu kjöti, ekki síst rauðu kjöti, lambi og villibráð. Umsjón Haukur Lárus Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.