Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ2003 -\ Forðaði sér frá slysi BÍLVELTA: Dælubíll frá Holræsa- hreinsun valt á Vesturlandsvegi við Álafosstorg skömmu fyrir klukkan átta í gærkvöld. Bíllinn kom akandi suður veginn, hafn- aði á vegriði og valt síðan.Öku- maður og farþegi sluppu ómeiddir úr óhappinu. Klóak lak úr tanki bílsins og þurfti að kalla til hreinsunarbíl vegna þess. Að sögn lögreglu í Mosfellsbæ munu lofthemlar bílsins hafa gefið sig við hringtorgið með fyrrgreindum afleiðingum.Þá þykir mildi að kona sem nýkom- in var inn í hringtorgið frá Ála- fossvegi skyldi sleppa frá dælu- bílnum. Konan, sem var með tvö börn íbílnum,sá hvardælubíll- inn kom æðandi, hún snarheml- aði bifreið sinni og tókst að forða sér og börnunum frá slysi. Uppsagnir taka gildi l.júlí RAUFARHÖFN: Starfsmönn- um Jökuls ehf.á Raufarhöfn verður sagt upp störfum frá og með l.júlí nk.en jafnframt verður rösklega tuttugu starfs- mönnum boðin endurráðning. Við endurráðningu verður byggt á starfsaldri starfsmanna hjá fyrirtækinu þannig að þeir sem lengstan starfsaldur hafa verða endurráðnir. Frá endur- ráðningum verður endanlega gengið að loknu sumarleyfis- stoppi,sem hefst 30.júní nk. ogstendurtil lO.ágúst.Ákveð- ið hefur verið að dagana 18. og 19.júní nk.verði fulltrúarfrá Svæðisvinnumiðlun Norður- lands eystra á Raufarhöfn til þess að veita starfsfólki Jökuls allar tiltækar upplýsingar og aðstoð. Matur lækkar en opinber þjónusta hækkar: Matvara hefur lækkað um 2,9% á tólf mánuðum Mjög miklar sveiflur eru í verðlagi einstakra neysluvara þótt vísitalan í heild sé stöðug. Hæst ber að ávextir, grænmeti og kjöt hafa snar- lækkað í verði, sem og sím- tæki og leikjatölvur. Sé húsnæði undanskilið hefur verðbólga undanfarna 12 mánuði verið nær engin. Sveiílur í verði einstakra neysluvara eru hins vegar mjög miklar, einkum í matvöru. Sérstaka athygli vekur að samtais hafa matar- og drykkjarvörur lækk- að í verði um 2,9% frá því á sama tíma í fyrra. Mest lækkun Frá því í júní í fyrra hafa tíu neysluliðir í vísitölu neysluverðs lækkað um meira en 15%, þegar saman eru taldir allir yfir- og undir- flokkar í vfsitölunni. Símtæki hafa lækkað mest eða um tæp 40% og leikjatölvur og tölvuleikir um 34%. Samtals hafa tölvur lækkað um 15,1%. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstof- unni er hugsanlegt að svokölluð „gæðaleiðrétting" skýri þetta að hluta, en það þýðir að leiðrétt er fyrir því að gæði vörunnar aukast, til dæmis á þann hátt að tiltekinn búnaður fylgi með sem áður þurfti að kaupa sérstaklega. Ekki eru hins vegar mæld áhrifin af tilboðum far- símafyrirtækja um ódýr símtæki gegn samningi um viðskipti, en þau myndu koma fram á þann hátt að vægi símtækja í vísitölunni myndi minnka. Frá því í júní í fyrra hafa tíu neysluliðir í vísitölu neysluverðs lækkað um meira en 15%, þegar saman eru taldir allir yfir- og und- irflokkarí vísitölunni. Mikil verðlækkun á svína- og aii- fuglakjöti er alkunna og má rekja til offramboðs. Ávextir og grænmeti hafa lækkað um 15-20% og er meginskýr- ingin líklega sú að innflumingshöft hafa að mestu verið afnumin. Mest hækkun Liðurinn „pakkaferðir innan- GOTT FYRIR BUDDUNA: Að sögn Hagstofunnar eru ótrúlegar sveiflur í verði mat- væla á milli mánaða. Og undanfarið ár hafa þær sem betur fer verið í rétta átt. lands“ hefur hækkað mest undan- farna 12 mánuði eða um ríflega 28%. Hækkun á hlutdeild sjúklinga í komugjöldum til heimilislækna ræður líklega mestu um að þessi liður hækkar um 25,6%, en vægi hans í vísitölunni er þó fremur lítið samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofunni. Þá vekur athygli að skóla- gjöld í framhaldsskólum hafa hækkað um 16%. Þyngst vegur hins vegar hækkun húsaleigu um ríflega 10% og „reiknaðrar húsaleigu" um 11%. (Þessi liður ræðst að mestu af markaðsverði fasteigna og er reikn- aður til þess að vísitalan mæli ein- hvern kostnað á þá sem búa í eigin húsnæði.) Húsnæðisliðurinn hefur verið megindrifkraftur verðbólg- unnar undanfarna 12 mánuði. Brennd vín hækka Athygli vekur að brennd vín hafa hækkað um 11,3% frá því á sama tíma í fyrra. Áfengur bjór hefur hins vegar aðeins hækkað um 1,2% og léttvín hefur lækkað um 0,4%. Sígar- ettur hafa hækkað hvað mest eða um 14,6%. Þá virðist einkabíllinn hafa orðið heldur hagstæðari kosmr en fyrr því að þjónusta strætisvagna hefur hækkað um ríflega 12% og leigubif- reiða um tæp 11%, á meðan kaup- verð biffeiða hefur aðeins hækkað um 0,5% og rekstur þeirra hefur lækkað um 0,6%. Munar þar miklu að bæði bensín og viðgerðarþjón- usta hafa lækkað í verði. olafur@dv.is Verðbreytingar undanfama 12 mánuði: Meira en 10% hækkun Meiraen 15%laekkun:________Breyting (valdir liftir): Breyting Slmtæki -39,5% Sýknaður af tveimur nauðgunarákærum Leikjatölvur og tölvuleikir -34,0% Svinakjöt, nýtt eða frosið -22,8% Appelsínur og fleiri nýir ávextir -20,2% Fuglakjöt, nýtt eða frosið -19,5% Epli -17,2% Grænmeti ræktað vegna ávaxtar -17,-1% Bananar -15,9% Ávextir -15,3% Pakkaferðir innanlands 28,1% Heimilislæknar 25,6% Framhaldsskólar 16,0% Sígarettur 14,6% Flutningará sjó 13,4% Strætisvagnar 12,1% Sterkvin 11,3% Stimpilgjöld, þinglýsingar 10,9% Greidd húsaleiga 10,7% Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað 28 ára mann af tveimur ákærum um nauðg- un. Maðurinn var annars veg- ar ákærður fyrir að hafa nauðgað 45 ára konu í sept- ember 2002 í kjallaraher- bergi hans í Keflavík og hins vegar fyrir að hafa nauðgað 48 ára konu í febrúar 2003 á salerni í kjallara Kaffi Austur- strætis. Varðandi fyrri ákæruna sagði konan að hún hefði verið að skemmta sér í Keflavík og hefði ver- ið á leiðinni á lögreglustöðina til að biðja um far heim þegar hún hitti manninn. Hann hefði boðið sér heim til sín til að hringja í félaga sinn sem myndi síðan aka henni heim. Hún hefði tekið vel í það enda ekki haft minnstu áhyggjur á þeim tíma og litið á hann sem hvem annan krakka. Þau hefðu síð- an talað saman í stutta stund heima hjá honum en síðan þegar hún ætlaði að standa upp hefði hann ýtt henni niður á rúmið og komið fram vilja sínum. Dómurinn taldi fram- burð hans bera þess merki að hann hefði trúað því að samræðið hefði verið með vilja hennar. Maðurinn viðurkenndi að hafa strax í upphafi haft hug á því að fá hana með sér heim í því augnamiði að hafa við hana samfarir og að aldrei hefði komið til áiita að hringja í kunningja hans. Hann var hins vegar stöðugur í framburði sínum hjá lögreglu og fyrir dómi um hvað hefði gerst á milli þeirra á heimili hans og neitaði alfarið að hafa beitt konuna ofbeldi eða hót- unum um ofbeldi til að fá hana til samræðis við sig. Dómurinn taldi framburð hans bera þess merki að hann hefði trúað því að samræðið hefði verið með vilja hennar. Hann hefði meðal annars hringt á lög- reglustöðina í Keflavík þegar hann frétti að hún væri að leita að sér, látið vita hvar hann væri staddur og ekki dregið dul á að hann hefði þurft að beita hana miklum fortöl- um áður en hún hefði gefið eftir og fallist á að eiga mök við hann. Varðandi seinni nauðgunina neitaði maðurinn staðfastlega að hafa þröngvað konu til samræðis við sig á Kaffi Austurstræti. Framburður hans þótti trúverðugur en konan þótti reikul í lýsingu sinni á þýðingarmikl- um atriðum. Hann hélt því fram að einu sam- skiptin sem hann hefði átt við hana hefðu ekki verið af kynferðislegum toga heldur hefði hann einungis átt við hana stutt orðaskipti og ýtt henni frá sér þar sem hún hefði staðið í vegi fyrir honum þegar hánn ætlað út af salerninu. Fram- burður hans þótti trúverðugur en konan þótti reikul í lýsingu sinni á þýðingarmiklum atriðum. -eká Tölvur -15,1% Leigubifreiðar 10,6% Skoðið beimasíðuna okkarogktkið átilboðin Ný púða- sending Mjög hagstætt verð. Eftirfarandi verslanir bjóöa þessar vörur: Blómabúöin Dögg, Bæjarhrauni 26, Hafnarfiröi Blómahafiö viö Gullinbrú, Stórhöföa 17, Rvk Blómahúsiö, Kirkjubraut 14, Akranesi í húsi blóma, Spönginni, Grafarvogi M. : 11 sl horni Laugavegar og Klapparstígs Heiidsöludreiíing 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.