Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 19.JÚNI2003 Öruggara Seltjarnarnes ÖRYGGISMÁL: Lokið er við að setja upp öryggishandrið við gangstétt á Suðurströnd og unnið er að lagfæringu við Tón- listarskólann á Seltjarnarnesi. Að auki hefur tæknideild bæjarins fjölgað hraðamerkingum gatna og öryggishliðum við gang- brautir og göngustíga.Átakið er liður í að bæta öryggi gangandi vegfarenda á Nesinu en áhugi almennings á útivist hefur auk- ist þar sem annars staðar. Fjöldi þeirra sem stunda útivist á Nes- inu fer stöðugt vaxandi. Hægt er að ganga og hjóla umhverfis nesið, auk þess sem fjöldi stíga liggur í gegnum bæinn.Stöðugt er unnið að endurbótum á úti- vistarsvæðum með það í huga að auðvelda aðgengi og auka öryggi gangandi vegfarenda. Metfjöldi í unglingavinnunni SUMARVINNA: Metfjöldi er skráður ÍVinnuskóla Reykjavík- ur þetta sumar eða 3.335 ung- lingar.Er það fjölgun um nær 24 prósent frá í fyrra en þá hófu um 2.700 unglingar störf hjá Vinnuskólanum. Árið 2001 voru þeir rúmlega 2.200 og árið þar á undan um 2.000. Á þremur árum hefur fjölgunin því numið um 67 prósentum. Ástæðu þessarar miklu fjölgun- ar má meðal annars rekja til erfiðleika unglinga við að fá sumarvinnu á almennum vinnumarkaði. Unglinganna bíður þvíholl útivera í sumar,jafnvel þótt rigni á stundum. Að lokinni sumartörn eiga þeirsíðan vasapeninga rrieð skólanum í vetur. Bandaríkjamenn svara spurningum DVum afstöðu sína: Ætlum að verja landið áfram STANDA VIÐ SITT: Heimsókn Elizabeth Jones, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, olli titringi. Bandarlkjamenn segjast í svari til DV ætla að standa við skuldbindingar slnar um að verja landið þótt nauðsynlegt sé talið að„nútímavæða" vörnina. DV-myndGVA Sendiráð Bandaríkjanna hef- ur svarað því til um afstöðu Bandaríkjamanna til varnar- viðbúnaðar á íslandi að þeir hviki ekki frá skuldbinding- um um að sinna vörnum ís- lands samkvæmt varnar- samningi þjóðanna. Fyrsti samningafundurinn verður á mánudaginn kemur. DV bar í gær upp spurningar við sendiráð Bandaríkjanna á Islandi um fyrirhugaðar viðræður þjóð- anna um framkvæmd varnarsamn- ingsins frá 1951. Spurt var um af- stöðu bandarískra stjórnvalda til varnarviðbúnaðar á íslandi og sér- staklega hvort það væri stefna Bandaríkjanna að draga úr honum. Um þetta segir í svari sendiráðsins: „Bandaríkin standa við skuld- bindingar sínar um að sjá íyrir vörnum íslands samkvæmt varnar- samningnum frá 1951. Við höfum átt óformlegar viðræður við rfkis- stjórn fslands um tvíhliða varnar- samstarf okkar og höfum rætt nauðsyn þess að nútímavæða varnarviðbúnað okkar í ljósi nýrra ógna og nýrra varnarmöguleika." „Bandaríkin standa við skuidbindingar sínar um að sjá fyrir vörnum íslands samkvæmt varnarsamningnum frá 1951.... Við höfum rætt nauðsyn þess að nú- tímavæða varnarvið- búnað okkar í Ijósi nýrra ógna." I varnarsamningnum frá 1951 er sem kunnugt er ekki kveðið á um með hvaða hætti Bandaríkjamenn skuli tryggja varnir landsins. Þar seg- ir aðeins að þeir skuli „gera ráðstaf- anir til varnar íslandi" og fram- kvæma þá skyldu sína á þann hátt að „stuðlað sé svo sem frekast má verða að öryggi íslensku þjóðarinnar..." Fundaðá mánudag Sendiráð Bandaríkjanna vísaði spurningum DV um fundahöldin sem ráðgerð eru í næstu viku - um tímasetningu þeirra, áætlaða lengd og þátttakendur í þeim - til ís- lenskra stjórnvalda. Illugi Gunnarsson, aðstoðar- maður forsætisráðherra, sagði í morgun að fyrir lægi að fyrsti samningafundur yrði á mánudag- inn. Ekki hefði verið ákveðið hverj- ir sætu fundinn af íslands hálfu. 111- ugi segist ekki eiga von á að um löng fundahöld verði að ræða, enda sé þessi lota aðeins fyrsta skrefið. Um ástæðu þess að samninga- viðræðurnar eru á forræði forsætis- ráðuneytisins en ekki utanríkis- ráðuneytisins segir Illugi að það skýrist af því að samskiptin í að- draganda viðræðnanna hafi verið á milli forseta Bandaríkjanna og for- sætisráðherra. olafur@dv.is Ógnuðu afgreiðslu- stúlkunni með hnífi ____\ TIL LONDON EÐA KÖBEN: FinnurThorlacius, markaðsstjóri DV, afhendir Þórði Sturlusyni bingóvinninginn. Fyrsti vinningshafinn í Bingóleik DV: Aldrei unnið í happdrætti áður Tveir ungir menn frömdu vopnað rán í söluturni við Kópavogsbraut síðdegis í gær. Tilkynnt var um ránið til lögreglunnar í Kópavogi klukkan 17.40 í gær. Mennirnir ruddust inn í sölu- tuminn og ógnuðu afgreiðslu- stúlkunni, sem þar var ein við störf, með hnífi. Þeir létu hana síðan af- henda sér alla peningana sem voru í sölukassanum og hlupu á brott. Enginn viðskiptavinur var í sölu- turninum þegar ránið átti sér stað. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi sakaði afgreiðslustúlkuna ekki en henni var að vonum brugðið mjög. Lögreglan hefur ekki nákvæmar upplýsingar um hversu mikið ræn- ingjarnir höfðu upp úr krafsinu en þó er talið að það hafi ekki verið ýkja mikið eða um 35 þúsund krón- Ræningjanna er nú leitað en þeir höfðu hulið andlitið að einhverju leyti með húfum. ur. Ræningjanna er nú leitað en þeir höfðu hulið andlitið að ein- hverju leyti með húfum að því er virðist og því gat afgreiðslustúlkan ekki borið kennsl á þá. Engar ör- yggismyndavélar voru í söluturnin- um. -ekA „Ég prófaði bara að spila með af forvitni og sé vissulega ekki eftir því núna," sagði Þórður Sturluson úr Reykja- vík, fyrsti vinningshafinn í Bingóleik DV. Verðlaunin vom ekki af verri endanum því að Þórður fær flug- miða fyrir tvo með Iceland Express til annaðhvort Kaupmannahafnar eða London. „Ég hef ekki ákveðið mig enn hvert ég fer. Mig gmnar þó að það verði til London því að þangað hef ég aldrei komið og auð- vitað er alltaf gaman að prófa eitt- hvað nýtt," sagði hinn nýbakaði vinningshafi þegar hann kom að sækja verðlaunin í DV-húsið f Skaftahlíðinni. Þórður, sem vinnur við að stýra þungavinnuvélum, segist aldrei hafa unnið í happ- drætti eða neinu slíku áður og var hann því í skýjunum yfir að hafa nælt í ferðavinninginn. Þórður var dreginn út úr hópi átta bingóspilara sem tilkynntu um bingó þegar B-röðin var spiluð. Bingóleikurinn heldur áfram í DV á hverjum degi og eru einstakar raðir spilaðar samhliða öllu spjaldinu. Hringurinn - Ertþú heppinn lesandi? ERTU í HRINGNUM7 DV heldur áfram að gleðja lesendur sína með margvíslegum vinningum. Maðurinn sem hér lendir innan hringsins var staddur f Smáralind á dög- unum.Hann hreppir góðan vinning,gjafabréf frá Smáralind að upphæð krónur 5.000. Hægt er vitja vinningsins í DV-húsinu, Skaftahlfð 24,105 Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.