Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003 - Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón:Guðlaugur Bergmundsson og Kristinn Jón Arnarson Netfang: gube@dv.is / kja@dv.is Sími: 550 5829 Sjálfsmorðsliði fsrael: Palesínskur sjálfs- morðsliði varð sjálfum sér og verslunareiganda að bana í norðanverðu Israel snemma í morgun. Enginn hafði lýsttil- ræðinu á hendur sér þegar síðast fréttist. Tilræðið þykir enn eitt áfallið fyrir þá sem reyna að fá deilendur til að hrinda í fram- kvæmd svokölluðum Vegvísi drepur sig og að friði. Ekki bætir úr skák að Mah-moud Abbas,forsætis- ráðherra palestínsku heima- stjórnarinnar,tókst ekki, á fundum í gær,að telja leið- toga herskáu samtakanna Hamas á að lýsa yfir vopnahléi í baráttunni við (sraela. Litlu virtist skipta að ísraelsk stjórn- völd höfðu samþykkt að draga úr árásum sínum á her- annan til skáa Palestínumenn. Palestínskir leiðtogar sögðu boð (sraela marklaust. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanleg- ur til ísraels á föstudag til að reyna að bjarga Vegvísinum. Ljóst má vera að hans bíður erfitt verk, eftir blóðug átök síðustu daga þar sem meira en fimmtíu hafa fallið. Andófsmenn kveiktu í sér íranar mótmæltu handtökum á Mujahideen-meðlimum í Frakklandi Andstæðingar stjórnarinnar í íran mótmæltu í gær hand- töku 159 meðlima Muja- hideen andófshópsins í Frakklandi. Mótmælin voru víða hörð og kveiktu þrír mótmælendur í sér í Frakk- landi og einn í London, auk þess sem enn einn var stöðv- aður í Bern í Sviss áður en hann náði að kveikja í sér til að leggja áherslu á málstað sinn. Yfirmaður frönsku innanríkis- leyniþjónustunnar, sem stóð fyrir handtöku Mujahideen-meðli- manna fyrr í vikunni, sagði að hóp- urinn hefði verið að undirbúa árás- ir á írönsk sendiráð vfða um Evr- ópu. Hann sagði að hópurinn sem handtekinn var hefði verið að breyta höfuðstöðvum sínum í Val d’Ose í París í alþjóðlega hryðju- verkamiðstöð. Mujahideen hefur Bandarísk og írönsk stjórnvöld eru ekki bara á öndverðum meiði hvað málefni mótmælenda varðar þessa dagana. Meintar tilraunir írana til verða sér úti um kjarnorku- vopn hafa orðið tilþess að þung orð hafa fallið milli íranskra og bandarískra stjórn- valda. verið skilgreind sem hryðjuverka- samtök af Bandaríkjunum og Evr- ópusambandinu, þó svo að hópur- inn hafi bækistöðvar í nokkrum borgum í Evrópu. Yfirlýst markmið hópsins er að koma íslömsku klerkastjórninni frá völdum í íran. Enn eru 26 af þeim 159 sem handteknirvoru í upphafi íhaldi en hinum hefur verið sleppt. Talið er að meðal þeirra sem enn eru í haldi franskra yfirvalda sé Maryam Rajavi, eiginkona Massoud Rajavi, leiðtoga Mujahideen. Engin vopn fundust Stjórnvöld í íran hafa lýst yfir ánægju með handtökurnar í París. Meðal þess sem kom í leitirnar við rannsókn höfuðstöðva þeirra voru 8-9 milljónir dollara í 100 dollara seðlum auk mikils af fjarskipta- tækjum, þar á meðal tækjum til dulkóðunar. Ekkert fannst af vopn- um, en talsmaður frönsku innan- ríkisleyniþjónustunnar sagði að leit yrði haldið áfram. Talsmenn Mujahideen halda því hins vegar fram að fullyrðingar Frakkanna séu rangar. „Muja- hideen hefur aldrei ráðist á sendi- ráð og hafði engin áform um slíkt. Þetta er hreinn uppspuni,” sagði Ali Safavi, meðlimur íranska mót- spyrnuhópsins NCRI. Umrót í íran Umrótið er mikið í íran um þess- ar mundir, því auk handtöku and- ófsmannanna í Evrópu hafa mót- mæli námsmanna og stuðnings- manna þeirra staðið yfir í níu daga. Mótmælendur hafa lýst yfir óánægju sinni með það hversu hægt umbætur ganga í íran og beina spjótum sínum sérstaklega að hinum umbótasinnaða forseta Mohammad Khatami. Segja þeir að Khatami hafi ekki staðið við loforð Mujahideen hefur verið skilgreind sem hryðju- verkasamtök afBanda- ríkjunum og Evrópu- sambandinu, þó svo hópurinn hafi bæki- stöðvar í nokkrum borgum í Evrópu. Yfir- lýst markmið hópsins er að koma íslömsku klerkastjórninni frá völdum í íran. um að draga úr völdum klerka- stjórnarinnar í Iran. Khatami sjálfur ræddi í fyrsta skipti um ástandið heima fyrir í gær og sagði að mótmæli væru eðlileg í lýðræðislegu þjóðfélagi en að bæði þyrftu þau að fara fram innan ramma laganna og einnig þyrftu yf- irvöld að meðhöndla þau á lögleg- an hátt. Hann sagðist stoltur yfir því að mótmælin væru svo fámenn sem raun bæri vitni. „Ef þeir sem andmæla kerfinu okkar eru bara 200, 500 eða 1.000 talsins er ég stoltur yfir því að við skulum vera svona sterk.” Mótmælin stöðvuð Svo virðist sem stjórnvöld séu einmitt að ná að draga úr mótmæl- unum því að á níunda degi þeirra þorðu fáir að láta sjá sig. Fjöldi lög- reglumanna, óeirðalögreglumanna og íslamskra harðlfnumanna stóð vörð um nokkur hverfi í Teheran. Var sérstaklega fylgst með bílaum- ferð og þeir sem virtust vera á leið til mótmæla dregnir út úr bílum sínum og teknir höndum. Eina ráðið sem mótmælendur höfðu var að þenja bílflauturnar í takt, en það var þó áhættusamt, því lögreglan klippti númerin af þeim bílum sem voru of háværir. Hins vegar virðist sem mótmælin hafi dreifst til fleiri borga í fran. Heyrst hefur af átökum og að fjöldi manns hafi verið handtekinn. Bush hvetur mótmælendur George Bush Bandaríkjaforseti hefur verið ófeiminn við að hvetja til mótmæla í íran síðustu daga. „Ég met þær hugrökku sálir sem tala fyrir frelsi í íran mikils. Þær þurfa að vita að Bandaríkin standa með þeim og ég hvet yfirvöld til að meðhöndla mótmælendurna af virðingu," sagði hann. Talsmenn yfirvalda í íran segja hins vegar að ummæli Bandaríkja- forseta hafi haft þveröfug áhrif. Khatami forseti sagði til dæmis í gær að þau hefðu ýtt undir sam- stöðu frana í stað þess að auka mótmæli. Bandarísk og frönsk stjórnvöld eru ekki bara á öndverðum meiði hvað málefni mótmælenda varðar UPPB0Ð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Borgarholtsbraut 69, 0202, þingl. eig. Sigrún Björg Sæmundsdóttir, gerðar- beiðendur íbúðalánasjóður, Kjörís ehf. og Vátryggingafélag íslands hf., mánudaginn 23. júm' 2003 kl. 13.00. Dimmuhvarf 14, þingl. eig. Ásgerður Ólafsdóttir og Sigurður R. Jónsson, gerðarbeiðendur fbúðalánasjóður, ís- landssími hf. og Sýslumaðurinn í Kópavogi, mánudaginn 23. júní 2003 kl. 13.30.___________________ Furugrund 24, 0303, þingl. eig. Magn- ús Ólafur Bjömsson, gerðarbeiðandi DHL Hraðflutningar ehf., mánudag- inn 23. júní 2003 kl. 14.00. Grænatún 2, þingl. eig. Hannes Björnsson, gerðarbeiðandi Sýslumað- urinn í Kópavogi, mánudaginn 23. júní 2003 kl. 14.30. Háalind 17, þingl. eig. Steinunn Braga Bragadóttir og Brynjar Jóhannesson, gerðarbeiðandi fbúðalánasjóður, mánudaginn 23. júní 2003 kl. 15.30. Hlíðarhjalli 63-73, 0101, þingl. eig. Ingibjörg Halldórsdóttir og Ólafur Guðbjöm Petersen, gerðarbeiðendur Greiðslumiðlun hf. og íbúðalánasjóð- ur, mánudaginn 23. júní 2003 kl. 16.00. Lækjasmári 13, 0204, þingl. eig. Snæ- bjöm Óskarsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Sparisjóður Rvík- ur og nágr., útib., mánudaginn 23. júm' 2003. kl. 16:30. SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI RÚIN TRAUSTI: Anneli Jáatteenmaki sagði af sér embætti forsætisráðherra Finnlands vegna eftirmála Iraksstriðsins. Hún sat ekki nema tvo mánuði. Forsætisráðherra Finnlands sagði afsér: Misnotaði leynilegar upplýsingar um frak (raksstríð hefur krafíst enn eins fórnarlambsins. Að þessu sinni Anneli Jaatteen- máki sem varð að segja af sér sem forsætisráðherra Finnlands í gær, eftir aðeins tvo mánuði. . Jaátteenmaki var sökuð um að hafa notað leynilegar upp- lýsingar um íraksmál- ið sér til framdráttar í baráttunni fyrir þing- kosningarnar í mars. „Þegar traustið hverfur er það farið. Ég nýt ekki lengur trausts,” sagði Jáátteenmáki, fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráð- herra Finnlands. Austur í írak til- kynntu Bandaríkja- menn að þeir hefðu haft hendur í hári eins nánasta ráðgjafa Saddams Husseins, fyrrum forseta, Abid Hamid Mahmud al- Tikriti, sem var fjórði á lista 55 eftirlýstra háttsettra fraka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.