Nýtt dagblað - 01.07.1941, Blaðsíða 2

Nýtt dagblað - 01.07.1941, Blaðsíða 2
2 NYTT DAGBLAÐ Þriðjudagur 1. júlí 1941. E tnn af félagsmönnum KRON, Guðjón Jónsson, verkamaður, Rauðarársfíg ío, gerír upp 4 ára víðskípfí sín vtð félagíð Hann segír: „Á fjórum árum hefi ég verzlað hjá KRON fyrir kr. 4471,17 og er þá búið að draga 5% afslátt frá búðarverömu, því að ég kaupi mest í pöntim. í stofnsjóö minn hafa runn- ið, að meðtöldum vöxtum, kr. 246,18. Tekjuafgangurinn, sem mér hefir verið endurgreiddur, nemur kr. 108,70. Beinn hagnaður að viðskiptum mínum 1 fjögur ár hefir því orðið: 1) 5% afsláttur í pöntun (af ca. 4000,00) . 200,00 2) Lagt í stofnsjóð minn .................. 246,18 3) Endurgreiddur tekjuafgangur ............ 108,70 Samtals kr. 554,88 Þessi upphæð, kr. 554,88, svarar til þess, að ég hafi eftir fjögra ára viðskipti sparað sem nemur hálfs árs úttekt. Tekjuafgangurinn og stofnsjóðstillagið var fyrsta árið 9% af viðskiptum, en hefir síðustu þrjú árin verið 7%. Við það bætist svo 5% afsláttur í pöntrrn, eða samtals 12%. Það jafngildir því, að hér um bil áttunda hver króna sé spöruð. Eftir sjö daga viðskipti við KRON hefi ég sparað fyrir því, sem ég þarf áttunda daginn. Beinn spamaður minn árlega er fjörutíu og fjögra daga ókeypis úttekt, — en þó er óbeini hagnaðurinn, sem allir neytendur á félagssvæðinu njóta góðs af, aðalatriðið“.

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.