Nýtt dagblað - 01.07.1941, Blaðsíða 3

Nýtt dagblað - 01.07.1941, Blaðsíða 3
Þríðjudagur 1. júlí 1941. NÝTT DAGBLAÐ 3 01 QacfrMad Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunnar Benediktsson, Grundarstíg 4, súni 5510 Ritstjóm: Garðastr. 17, sími 2270. Afgreiðsla: Austurstr. 12, sími 2184. Víkingsprent h.f., Hverf- isgötu. Sími 2864. Míkíls verðír tímar Þegar Nýtt dagblaö héfur göngu sína eru nýafstaðnir hin- ir stórbrotnustu atburöir, bæði á * al[)jóðlegu sviði og einnig með tílliiti til íslenzkra máLefnia ein- göngu, sem ekki er að öllu í, siam- bandi við alþjóðlieg viðhorf. ís- land er orðið lýðveldi, með eig- in ríkisstjóra, kosiiinn af löggjaf- arsamkomu [ijóðarinnar. Ef at- burðiur þessi hefði gerzt nokkrum árum fyrr, myndi íslenzk pjöð hafa gengið í sæluvímu dögum saman, sökum pessa atburðiar. En nú vildi svo eiinstaklega sorglega til, að í sömu mund og [xessir atburðir gerast, sem fyrir fáum árum hefðu táknað uppfyllimganr björtustu drauma okkar um frjálst lýðveldi, pá erum við ekki frjáls- ir sem pjóð og lýðvöld eru nú minni gagnvart stjórnarvöldum en verið hefur siðan 1874. Erlent setulið fer hér fram hverju pví, er p.ví sýnist, án pess við fáum nokkuð að gert og nokkrir tugir manna hafa tekið fram fyrir á- kvæði stjórnarskrárjnnar um páng- bundna stjórn og búið til stjómr bundið pling, aðeins örfáir menn ráða öllu pví, er við íslendingar fáum að ráða og af fólkinu er tekinn rétturinn til að hafa áhirif á framgang mála í gegnum nýtt fulltrúaval til löggjafarsamkomu t>jóðarinnar. Það verður eitt af hlutverkum pessa blaðs, að skýra pað fyrir fólkdnu, hvilíkt fordæm- ingar spor hefur hér stigið ver- ið og benda á leiðir pess, hvernr ig úr pessu megi og verði að bæta. — Þá eru ekki siður at- hyglisverð pau nýju vúiðhorf, sem á síðustu dögum hafa skapazt í alpjóðamálunum, síðan er Þjóð- verjar réðust á Sovétrikin. Hver- vetna um heim er litið á pað sem hið mikilvægasta er gerzt hiefur í pessari styrjöld, frá pví hún fyrst brauzt út. Er hér ekki um pað eitt að ræða, að eitt af rnestu herveldum veraldarinmariesr komið með; í hildarleikinn, heldur táknar iitorás Þjóðverjá í Sovét- ríkin nýtt stig í styrjöldinni, hún er ekki; lengur iuni á peim einum vettvangi, að kapítölsk stórveldi séu að berjast sin á milli um markaði, áhrifasvæði oig nýlendur, heldur er nú höfuðbaráttan orðin milli kapítalsks stórveldis og sam- bandsrikja sósíalismans, baráttán ekki aðeins orðin um kapítalskan gróða, heldur einnig komiin yfir á svið hugsjóna og skipulags- hátta. Þótt við Islendiingar sóum pess ekki megnugir að hafa áhrif á gang pessarar baráttu, ’pá munu flestir Islendingar finnia pað nú, „Nýtt dagblað" Ávarp tfil alþýðn manna á íslandfi Góðir iesendur! í Um ieið og ég fer á stað með pessa blaðaútgáfu mína, parf ég að eiga við ykkur trúnáðarmái. Ég ætla að segja ykkur hreinlega, hvað fyrir mér vakir með pess- ari útgáfu, og trúa ykkur fyrir öll- um mínum áhyggjum í sambiándi við hana. Mér fellur ákaflega illa við stjörnarfarið hér á landi, svO' hief ur að vísu lengi verið, en pað fer hríðversnandi. Undianfarin ár hef- ur stjórnmálaiíf hér oltið óðfluga undan brökkunni í siðferðilegu tilliti, markvisst hefur verið að pví uninið að stemma stigu fyrir aukinni menningu pjóðíarin.nar, svipta alpýðuna réttindum sínum og möguleikum til baráttu fyriT bietri lífskjörum. Þau réttindi, er íslienzk alpýða hefur áunnið sér með áratuga harðvítugri baráttu undanfarin ár, hafa smám saman verið af hienini tekin og nú síðast svo langt gengið, að hún var svipt pví undirstöðuatriði allra mann- hver sem prá peirra er um enda- lok hennar, að peim má vera pað kappsmál að geta gert sér sem skýrasta grein pessara mála. Það er ekki aðeins menningarleg skylda, að stainda ekki eins og glópur gagnvart stóratburðlum veraldarsöguninar, peim, er við er- um sjálf dæmd til að upplifa. Hins ber eigi síður að gæta, að framtíð pessarar litlu pjóðar, eins og alls mannkynsins, ier undir úr- slitum pessa hildarleiks komin. Nýtt dagblað mun gera sér hið fylilsta far um að skýra fyriir fólki próun peirra atburða, sem nú eru mest um ræddir um all- an heim. Upplýsmgarstarfsemi Þjóðstjórnarinnár í blöðum ogút- varpi hefur á svo skemmtilegan hátt farið í gegnum sjálfa sig, að íslenzk alpýða mun nú vera farin að verða pó nokkuö mót- eitruð gegn brjálsjúkum og sífull um skýrendum stórviðburða heims ins. En stórmál pessi, sem nú hafa nefnd verið, verða pó ekki annað en ívaf pessa blaðs, uppistaðan verður úrlausn hinna daglegu við- fangsefina íslenzkrar alpýðu og pjóðarheildarinnar. Aðalbjargráð'a tími ársins fier nú í hönd, síldveið- ar og heyannir eru að hefjast, og verður fylgst með gangi peirra mála af hinum mesta áhuga. Við síldveiðarnar og markað síldaraf- urða eru nú bundin hin marg- pættustn vandamál, sem tvímæla- laust verður reynt að leysa með sem mestum hagnaði fyrir fjár- aflastétt landsins og sem mest á kostnað vinnandi alpýðu. Jafn- hliða pví að leitazt mun verða við áð benda á leiðir, sem færást- ar kynnu að reynast tíl úrbóta atvinnunekstrinum í heild, pá mun Nýtt dagblað stilla sér í fylkingarbrjöst í baráttunni fyrir pví, að vinnandi alpýða fái sinn hlut sem óskornastan af auðæfum framleiðslunnar. Þá mun pjóð vorri bezt farnast. réttinda, sem íslenzkur rikisborg- ari átti samkvæmt stjórnáifskrá rikisins, að mega láta álit sitt í ljösi um málefni sín með fuli- trúavali til löggjafarsamkomu pjóðarinnar. Nú eigum við ekkert Aljúngi, sem íslenzk pjóð hefur kjörið fulltrúa til, fullir fjórir tugir manna, sem fyrix fjórum ár- um var falið umboð til að fara með mál, sem eru alls ekki lengur á dagskrá, hafa útnefnt sjálfa sig til að fara með petta umboð til að leysa máiefnin, sem nú kalia að, án pess að leita par í tookkru vilja pjóðarinnar, hvernig með skuli fara. En pó ísienzka pjóðin hafi vierið svipt rétti sínum til að hafa áhrif á gang miála í gegnum al- mennar kosningar til Alpingis samkvæmt ákvæðum stjórnar- skrárinnar, pá ríður nú lífið á, að raddir pess yfirgnæfandi meiri hluta pjóðarinnar, sem er í and- stöðu við ríkjandi stjórnarstiefnu í öllum höfuðatriðum, geti borizt valdhöfunum tíl eyrna, og við, sem á móti stöndum athæfi pieirra, getum borið saman ráð o.kkar og viðhaldið kjarki hvers annars, svo að ekki verði gefizt upp viö að fá hér einhverjar bætur á. Okkur muin pað öllum Ijóst vera, að öll pau tæki, sem mestu orka á hugmyndir manna, og pá sér- staklega dagblöðin hér í Reykja- vik og útvarpið, stefna öH að pví í boðskap sínum að bneiða yfir hið raunverulega ástand hiutanna, auk pess sem piau af miklu kappi segja ýmist villandi frá eða fara með hrein ósannindi til pess að koma inn hjá alpýðu manna gersamlega vitlaiusum hug- myndurn. Hér er pví hreinn voði vis, ef ekkert er að hafzt, pví að grundvallarskilyrði pess, að ein- hver bót fáist á ráðin, er sörtn vitn- eskja um pað, sem fram fer, og sem fullkomnastur skilningur á orsakasambandi hlutanna. Til pess að vinna á móti biekkingum nefndra aðila og gera fjölda manna kleyft að átta sig á mál- um pjöðarinnar og viðhoirfi al- p'jóðlegra atburða, purfum við að hafa sterkt vopn í höndum, mál- gagn, sem náð getur til sem flestra manna, og d,aglega, á sama hátt og málgögn ómenn- fngar- og siðleysisaflanna, sem við er barizt. Til pessa gagnar ekkert minna en dagblað. Nýtt dagbláð, sem tekur upp nefnda andstöðu er pví íslenzku pjóðinnii lífsnauðsyn á pessum tímum. Og fyrst enginn annar hefur fundið sig knúðan til að hrtoda pví máli í framkvæmd, pá get ég ekki lát- ið pað ógert, að freista pess að bjóða byrginn öllum peim mörgu qg mikiu erfiðleikum, sem starf- semi pessi er háð. Nú er pað frá mínu sjónarmiði ekki aðaiatriði pessa máls, að .ég með boði pessu sé að afla mér skilyrða til að koma skoðunum minum á framfæri meðal alpýðu manna og ég eirtn ætli mér að heyja strið gegn stjórnmálalegri, félagslegri eg menningarlegri spillingu nútímans. Aðalatriðið er hitt, að með hlaði pessu vil ég veita ykkur vettvang, par sem fram getia komið raddirnar firá ykkar eigin brjósti, ykkar eigin viðhorf gagnvart vandamálum nú- tímans, vandlæting ykkar út af spillingu hans og ráð ykkar til úrlausnar. Blaðið tekur fagniándi ritgerðum frá hverjum sem er, hvar í floikki, sem hann stendur, ef á bak við hana stendur andi framfraraprár, menningarporsta', hreinna pjöðerhistilfinninga, andi mótspyrnunnar gegn vaxandi ein- ræðisathöfnum valdhafanna og baráttunnar gegn kúgun á hend- ur alpýðu [ressa lands. Og finn- ist einhverjum ykkar pið vera vanmáttug til að koma hugsunum ykkar í pánn búning, er pið viljið vera ánægð með, pá reynið pið á einhvem hátt að koma peim hugsunum ykka/ til miin, ef pið treystið mér til að koma þeim sóma&amlega á framfæri. Og á sama hátt og ég ætla pessu blaði að vera ykkar blað, sem kynnir pau viðhorf, sem pið aðhyHizt, pær kröfur, sem pið hafið fram áð færa, pann boð- skap, sem ykkur liggur á hjarta, pá verður fjárhagsafkoma pess einnig lögð í ykkar hiendur. Mánaðargjald blaðsins er ákveðið fjórar krónur, páð er hærra en annarra dagblaða af sömu stærð. En afkomia blaðsins byggist fyrst og fremst á pví, að pað verði sem flest ykkar, sem viljið kaupa blaðið pessu verð'i, standið greið- lega í skilum og leggið áherzlu á að útbreiða pað sem mest. Á pessu starfi ykkar byggist fram- tíð pessa blaðs, pví að hér liggja engir sjóðir að baki. Og pað skal ég ykkur hreinlega tilkynna, að [xiö myndi ekki á neinn hátt særa mínar tilfinningar, pótt pið sting- ið aukreitis smáupphæðum að blaðinu, til að tryggja útkomu pess og gera pað kleyft að vanda betur til pess. Enda verð ég pað að játa, að möguleikarnir fyrir framtíð blaðsins eru sárajitlir, • nema til komi á pann hátt sér- stöfc hjálp áhugamanna. Svo er petta blað mitt ykkur ^ hendur falið til forsjár og sam- starfs. Vandið hreinskilnislega um pað, ier ykkur finnst miður í fiari pess og styðjið möguleika til bóta. Við skulum öll sameinast um pað, að gera blað petta að merkisbera fyrir nýrri frelsis- og framfarabaráttu í íslenzku pjóð- lífi. Með mikilli vinsemd, Guntwr Bened.ktsson. oBa: ja i pó.ð f u r i 11 n Herra ritstjóri! Húsnæðismálið er að verða mesta vandamál bæjarbúa og bera margir kvíðboga fyrir næstu flutningsdögum. Ég vil skora á yður að halda máli pessu vaik- jandi í biaði yðar og bera fram kröfur bæjarbúa í pessu efni, ef ske kynni að hægt yrði með pví móti að hafa áhrif á yfirvöld riikis bæjar í pá átt, að geröar verði einhverjar ráðstafanir, sem til hjálpar gætu orðið. Ég heyri um pað talað, að pað staindi til að rífia fjölda íbúðar- húsa í einiu hverfi bæjarins nú á næstunui. Ekki kemur pað tii að bæta úr húsnæðisskortinum. Reyndar er eitthvað um nýbygg- ingar, en pó mjög takmarkað, enda lítur helzt út fyrir að allt sé gert sem unnt er til pess að leggja Þránd í Götu pieirra, er einhverja möguleika hafa til pess að ráðast í byggingu ibúðarhúss handa sér og sínium. mönmum lúxusbíla til landsins, en almenningi byggingarefni svo hainn geti fengið húsaskjól. ' N. „Bílstjórl“ skrifar: Það virðist svo sem skurðgröfturinín! í götun- unum hafi farið í vöxt siðan vinn an við hitaveituna hætti. Mánuð- um saman eru helztu umferðar- göturnar lokaðar af pessum ástæð um. Keppast í pessu efni hin ýmsu fyrirtæki sömu stofnunarirtn ar — bæjarinns —. Fyrst rifur hitaveitan upp göturnar, svo Framh. á 4. síðu. Má par bæði inefna hið óhóf- lega álag á allt byggingarefni: Fyrst svívirðileg flutningsgjöld Eimskipafélagsins og síðan lög- verndað álag á bygginganefni með verðlagsnefnd. Sumt byggingar- efni hefur fjór- til fimmfaldast í verði og alltaf fá byggingarheild- salar að leggja á pað sáma htindr- aðshluta. — Við petta bætist svo tregða yfirvaldamna til að leyfia innfl'utning á efni og virðist stefna peirra vera sú, að meiri nauðsyn beri til að tryggja stríðsgróðá- Tímarit Máls og menningar cr komíd út, Fjölbreyft efni Smásaga eftír Halldór Kiljan Laxness Rifgerð eftír Sigurð Nardal O. Itl. fl. og menoiog Laugaveg 19. Símí 5055

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.