Dagblaðið - 10.09.1975, Blaðsíða 1
/lýáfef, álmð dmghh§
1. árg. — Miðvikudagur 10. september 1975 — 3. tbl.
ÞJÓÐVERJAR Á FLÓTTA
Svo brá við I gær, þegar
Landhelgisgæzlan kannaði, hve
margir þýzkir togarar væru að
ólöglegum veiðum, að þeir
reyndust aðeins vera tveir.
Menn spurðu sjálfa sig i
morgun, hvort Þjóðverjarnir
væru lagðir á flótta, svo að um
munaði vegna aukinnar hörku
gæziunnar siðustu vikur.
Enginn togari var fyrir innan
50 milurnar undan Suðvestur-
landi, einn var á Halanum og
einn i Víkurál.
Vitað er um 19 vesturþýzka
togara i grennd við landið, en
nær allir voru fyrir utan mörkin
r gær. —HH
Karðir Islendingar — segir
Reuter I morgun — baksiða
Niðursuðan sprungin:
STJÓRNIN YFIRTEKUR DAG-
LEGAN REKSTUR í LAGMETINU
— baksíða
Svona sumarmyndir var
hægt að taka úti á landi,
h|á þeim Norðlendingum
eða Austf irðingum. 1
Reykjavík rigndi stærst-
an hluta sumars, eða þá
að dumbungurinn hvolfdi
sér yfir þéttbýlissvæðið.
Það sakar ekki að sýna
fólki hvernig reglulegt
sumar litur út á mýihd.
(Ljósmynd af sýningunni
LJÓS 75 á Kjarvalsstöð-
um, eltir Mats^JflUbé
REYNDU AÐ SPRENGJA
SÍMAKLEFA
I LOFT
UPP
Tveir strákar i Hafnarfirði
tóku sig til og fóru að myndast
við að búa til heimagerðar
sprengjur úr neyðarblysum,
Simakiefinn á Þórsplani, þar
sem reynt var að granda þessu
lifsnauðsyniega mannvirki
(ljósm. Björgvin) og innsetta
myndin sýnir heimatilbúnu
sprengjurnar (ljósm. Bjarnleif-
ur).
sem þeir stálu. Aðra þeirra
bundu þeir upp i simaklefanum i
Hafnarfirði og létu svo arka að
auðnu, hvernig færi.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar i Hafnarfirði sprakk þessi
sprengja ekki, enda ekki kunn-
áttusamlega gerð. Hins vegar
fuðraði hún upp og frussaði
mikið, svo sótið spýttist út um
allt.
I annarri kveiktu þeir á
Strandgötunni sjálfri. Hún
þeyttist viða um og tókst að
brjóta glugga, en var ekki svo
vel gerð, að hún spryngi. Lög-
reglan hafði svo upp á drengj-
unum i gær, og kom þá i ljós, að
annar hafði stolið neyðarblys-
unum á vinnustað sinum.
Hafnfirðingar eru orðnir gátt-
aðir á umgengninni um sima-
klefann, sem stendur við hliðina
á Sparisjóðnum. Þar er varla
fyrr búið að laga eftir siðustu
skemmdarverk, þegar þau
næstu eru unnin. Þó hefur ekki
áður verið reynt að sprengja
hann iloftupp. —SHH
SUMARIÐ
SEM BARA
SUMIR
FENGU
Á ENDA
Reykvikingar hafa sjálfsagt
tekið eftir þvi er þeir héldu til
vinnu i morgun, að Esjan var
orðin grá niður i miðjar hliðar.
Höfðum við þvi samband við
Veðurstofuna til að spyrjast
fyrir um, hvort haustið væri
komið. Guðmundur Hafsteins-
son veðurfræðingur varð fyrir
svörum og sagðist verða að telja
svo væri, veðrið og veðurþróun-
in gæfi ekki tilefni til annars.
Sagðist hann vilja telja sumarið
hafi komið, þvi að veðrið sé við-
ar en i Reykjavik, en Reykvik-
ingar hafi farið varhluta af
nokkru sumri. Fyrir norðan og
austan leiki enginn vafi á að
sumarið hafi komið við.
Ágústmánuður var i Reykja-
vik 0,6 stigum undir meðallagi
með meðalhita 10,2 stig. Sunn-
anlands hefur ekki enn orðið
vart næturfrosts, en norðan-
lands, i Aðaldal, eru kartöflu-
grös fallin. Ekki vildi Guð-
mundur segja neitt frekar um,
hvenær von væri á vetrinum,
nógu erfitt væri að spá aðeins
einn eða tvo daga fram i' tim-
ann. Um hafis i vetur er ekki
hægt að segja að svo komnu
máli.
Næstu daga verður norðanátt
áfram og kalt, ásamt úrkomu-
votti viðast hvar á landinu.
—BH