Dagblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 14
14 Dagblaðið. Föstudagur 19. september 1975. Formaður Neytendasamtakanna svarar spurningum Dogblaðsins: leysist á viðunandi hátt r Ur helmingi kvörtunarmála „Á viðunandi hátt leysist úr um helmingi kvartana, sem Neytendasamtökunum berast. Samtökin fá 700—1000 kvartanir á ári. Eitthvað dettur auðvitað upp fyrir. Stundum hafa neyt- endur ekki réttar upplýsingar, og sönnunarskyldan getur verið óljós. Svo eru jafnan dæmi um, að við fáum málinu hreinlega ekki þokað. Sem betur fer er þar um fá mál að ræða, en þau eru þvi verri þegar þau koma.” Þetta sagði formaður Neyt- endasamtakanna, Sigurður Kristjánsson, i viðtali við Dag- blaðið. „Við reynum að leysa öll mál með samkomulagi við framleiðendur og kaupmenn. Ef mái er komið i hnútköllum við stundum til lögfræðing.” Lög- fræðingur starfar ekki á vegum samtakanna, til þess eru þau of fátæk. Það kostar ef til vill 50-60 eftir um kvartanir koma efna- laugar og i þriðja sæti eru teppi. „Við höfum aukið starfsem- ina i ár. Opnunartiminn hefur verið tvöfaldaður. Opið er i há- deginu. Fyrir vikið berast okkur mun fleiri kvartanir en áður.” Mikið er kvartað vegna heim- ilistækja, svo sem isskápa, bök- unarofna og þar fram eftir göt- unum. Þarna getur verið um mál að ræða, þar sem kaupand- inn telur sig hafa fengið gallað tæki en kaupmaðurinn vill ekki bæta, eða tæki séu i ábyrgð og kaupmaðurinn vilji ekki gera við. Auðvitað leysast slik mál milli neytanda og kaupmanns iðulega án frekari vafninga, en i undantekningartilvikum geta kaupendur leitað til Neytenda- samtakanna, sem þá veita fyrirgreiðslu. Þessi jakki stendur „einn”. Hann kom I þvi ástandi frá efnalaug, að kæmist einhver I hann, kæmist hann Hklega ekki úr honum nema með skurðaðgerð. Illa var farið með gerviefnið við hreinsunina. Ljósm. BP. þúsund að hefja eitt mál. Fyrir hefur komið, að Neytendasam- tökin hafi veitt fólki styrk til að hefja málsókn, en þetta er sjaldgæft. Sigurður sagði, að þessa hlið þyrfti einkum að efla i starfi samtakanna. Kaupendur gefast iðulega upp, þegar mál fara i strand og ekki um annað en málsókn fyrir dómstóli að ræða. Samtökin standa sjálf ekki i málarekstri. Mest kvartað um vélar og tæki „Það er sjaldan kvartað um matvæli,” sagði Sigurður. „Flokkurinn vélar og tæki virðist vera stærstur.”Næstar á „Ef leitað er til okkar vegna galla i teppum, höfum við venjulega samband við konu, sem er sérfræðingur á þvi sviði. Þá getur verið kvartað út af lagningunni. Fólk skoðar teppið kannski í stórum stranga, en siðan kemur það á gólfið i smá- ræmum. Það er auðvitað ekki þetta, sem fólkið ætlaði að kaupa. Þá getur verið kvartað undan skurði á teppunum. Efnalaugar eru hátt á kvört- unarlistanum, oft af þvi að ekki hafa fylgt leiðbeiningar um meðferð gerviefna. Algengt er, að kvartað sé vegna skóa, aðal- lega með þykkum sólum,sem stundum hafa strax brotnað undan. Við höfum. ágæta sam- vinnu við skósmiði, ef ágrein- ingsmál risa. Fulltrúar frá skó- smiðafélaginu athuga þá gjarn- an rhálið. Við höfum einnig haft samband við efnalaugar, en upp úr þvi hefur slitnað,” sagði Sig- urður. Reynum að fá lyfjaskápana lokaða „Við höfum rekið á eftir, að framfylgt væri reglugerð um eiturefni. Hún hefur fengið mjög jákvæðar undirtektir. Efni eins og til dæmis blævatn og vitissódi geta verið mjög hættuleg. Þetta á að merkja vel og nú er farið að gera það. Slikt á i rauninni ekki heima i almennum verzlunum, þar sem krakki getur komið og gripið vitissódadós. Börn eru, eins og við vitum, oft send i búðir eftir hinu og þessu. Við höfum reynt að fá lokaða lyfjaskápa. Til eru sérstakar læsingar, sem við munum kynna. Þá höfum við gert kannanir á matvælum, keypt sýni i verzl- unum og fengið Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins til að at- huga þau. Niðurstöðurnar voru slæmar, og þær höfum við birt. Við höfum einnig birt athug- anir á barnaslysum i heimahús- um. Engin neytenda- löggjöf til Neytendalöggjöf er ekki til hér, en til munu vera drög að slikri löggjöf,” sagði Sigurður Kristjánsson. „Verði þau að veruleika, sem vonandi verður fljótlega, má gera ráð fyrir að rikissjóður verði að verja mun meira fé til þessara mála en nú er. Við erum langt á eftir öðrum Norðurlöndum i þessum efnum. Þó leysast tiltölulega fleiri kvörtunarmál hér með viðun- andi hætti en til dæmis i Dan- mörku. En hér eru vist margir, sem þegja um sinar kvartanir.” 1 Danmörku styrkir rikið neytendanefnd, neytendasam- tök og fleiri með háum fjárhæð- um. Islenzku samtökin leggja 800 króna árgjöld á félags- menn, sem eru rúm þrjú þús- und. Rikið veitir i ár 450 þúsund krónur og Reykjavikurborg 400 þúsund. Reynt hafði verið að fá hærri upphæð i ár en var i fyrra, þó ekki væri nema vegna verðbólgunnar. Þetta tókst ekki. Tekjur samtakanna eru alls 3,3 milljónir, sem er litil fjárhæð miðað við þarfir á öfl- ugri stofnun. Hvað munduð þið gera, ef þið hefðuð meira fé? „Við mundum fyrst auka al- menna þjónustu,” svaraði Sig- urður. „Við mundum gera lög- fræðilegu hliðina betur úr garði. Æskilegt væri að hafa lögfræð- ing, sem gæti sinnt meiriháttar málum. Svo mundum við auka fræðslustarfsemina og sinna rannsóknum meira en gert hef- ur verið.” Samtökin hafa tvær starfs- stúlkur, sem hvor vinnur hálfan daginn. í stjórninni eru sjálf- boðaliðar, og einhver þeirra tekur að sér kauplaust að gefa út blað, sem kemur þrisvar á ári. Stjórnin skiptir sér i starfs- nefndir svo sem „gólfteppa-”, „véla-”, „efnalauga-”, „metra- vöru- og skó-” og „matvæla- nefnd”. Þeir sem i þessum nefndum eru, sinna siðan kvört- unarmálum hver á sinu sviði Formaður samtakanna, Sigurður Kristjánsson. Ljósm. BP. Neytendasamtökin hafa tvöfaldað opnunartlma sinn. Hér er önnur starfsstúlkan, Guðrún Magnúsdóttir. Þær vinna hálfan dag hvor. auk sérfræðinganna, sem áður var getið. Þegar kvörtunarmál berast er haft samband við þá, sem i nefndunum eru. Þetta er allt kauplaust starf. Samtökin eiga fulltrúa i neyt- endanefnd, sem starfar á veg- um viðskiptaráðuneytisins, en er aðeins svipur hjá sjón miðað við það, sem gerist á Norður- löndum. í nefndinni eru haldnir nokkrir fundir á ári og liggur ýmislegt gott eftir hana, nú siðast um meðferðarmerki á flikum. Sigurður sagði, að það hefði verið stefna samtakanna að blanda sér ekki i pólitisk mál, þar með talið verðlagseft- irlitið. Hann sagði hins vegar, að sér litist vel á herferð verð- lagsstjóra til að láta merkja vörur i búðum. Fyrir kemur, að mál af þessu tagi berast sam- tökunum, en kvartanir vegna verðs eiga betur heima hjá verðlagseftirlitinu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.