Dagblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 24
Hvað verður dansað í vetur? HUSTLE, EL EÐA BARA BIMBO TWIST? Það er orðið fastur liður i islenzku þjóðlifi, að i kringum mánaðamótin september — október hefji dansskólarnir starfsemi sina. Fylgir þvi venjulega auglýsingastríð mikið, þó að þar sé yfirleitt i bróðerni vegið. Heiðar Ástvaldsson og dans- flokkur hans buðu blaða-- mönnum DAGBLAÐSINS upp á kaffi og kökur seinnipartinn i gær og sýndu i leiðinni nokkra nýjustu tizkudansana. Þar kennir margra grasa, og það virðist verða æ algengara, að dans sé saminn við eitt ákveðið lag. Má þar nefna dansinn Swing Your Daddy við samnefnt lag George McCrae, E1 Bimbo með Bimbo Jet og Accordion Twist. Auk þess sýndu Heiðar og flokkur hans nokkra fleiri dansa, svo sem Hustle, Bump, Tramp o.fl. Björgvin Pálsson tók þessa mynd af dansflokki Heiðars við að dansa Accordion Twist.og vel á minnzt: Myndin er ekki gölluð, heldur var Björgvin aðeinsaðæfa sig i einniaf sinum fjölmörgu ljósmyndabrellum. —AT— é V ,, 1 * Ifll-jli.! * í: mmmm ,*wg| ^ M .1 Og nú er M líko minkur Það liður vart vika án þess að eitthvert húsdýr farist iumferðaslysiá yfirráðasvæði Árbæjarlögreglunnar, og ef litið er fram hjá venjulegu dægurþrasi, s.s. ölvun i heimahúsum og smærri umferðaróhöppum, þá er aðalumstang lögreglunnar að fást við dýr. Oftast eru það hross og sauðfé, sem hættu og umstangi valda. Finnst lögreglumönnum t.d. að girðingar Fáks við Korpúlfs- staði séu heldur haldlitlar. Og nú hefur minkurinn bætzt i spilið. Hefur hann sézt við Elliðaárnar skammt fyrir ofan skeiðvöllinn. Lögreglan fór á vettvang i gær, en varð hans þá ekki vör, en að þessu verður nánar gætt. ASt. Af slysstað í kranagólga Harður árekstur varð á mótum Lækjargötu og Strand- götu i Hafnarfirði i gærkvöldi kl. 19.40. Lentu þar saman bill úr Reykjavik og Hafnar- fjarðarbill. Engin meiðsl urðu á mönnum en bilarnir eru mikið skemmdir og varð að færa þá af slysstað með kranabil. ASt. Með bandarískt ökuskírteini Miðbæjarlögreglan hafði afskipti af ökumanni einum skömmueftirmiðnætti inótt. 1 ljós kom, er maðurinn var krafinn ökuskirteinis að hann átti ekkert útgefið á islandi, endróupp ökuskirteini útgefið i Bandarikjunum. Var það án myndar, og skoðar lögreglan þetta mál sem ekillinn sé hér réttindalaus. ASt. Kauphœkkun 1. desember líkleg KOMIN FAST AÐ „RAUÐA STRIKINU" Með siðustu hækkun á landbúnaðarvörum er visitala framfærslu- kostnaðar komin fast að ,,rauða strikinu", sem mun veita kauphækkun 1. desember. Vísitalan var 1. ágúst aðeins 18 stigum frá „strikinu", og þau stig hafa hér um bil bætzt við. Áframhaldandi hækkanir mundu færa verðbólguna yfir strikið. 1 samningunum segir, að taka skuli hækkun á kaupliðbóndans og áfengi og tóbaki út úr þessum reikningum. Engu að siður er visitala framfærslukostnaðar nú vafalaust nærri 477, sem er „strikið”. Nákvæmir útreikn- ingar á, hver visitalan er, liggja ekki fyrir. Samkvæmt samningunum frá i vor skulu laun hækka i hlutfalli við það, sem visitala fram- færslukostnaðar fer fram úr 477, reiknuð hinn 1. nóvember. Þá hækkar kaupið 1. desember. Visitalan var 459 stig hinn 1. ágúst, þegar Hagstofan reiknaði hana siðast. Siðan hefur margt hækkað, og þyngst vegur hækkun búvöru nú i vikubyrjun. —HH Óvenjulegur fiskur í trollið: Þennan furðufisk fengu þeir á skuttogaranum Dagstjörnunni KE 9 i trollið á 240 faðma dýpi vest-norðvestur af Surtsey um siðustu helgi. Að sögn Guðbjarts Gunnarssonar stýrimanns á Dag- stjömunni, sem tók myndina, þá hafði enginn um borð séð þvilika furðuskepnu áður. Var fiskurinn settur i frysti og fór Guðbjartur með hann til þeirra á Hafrann- sóknastofnuninni núna fyrir há- degið og fékk úr þvi skorið hvaða furðufiskur þetta væri. „Þetta er 136 sentimetra löng hrygna,” sagði Halldór Dagsson hjá Hafrannsóknastofnuninni. „Tegundin heitir trjónufiskur og hefur fengizt töluvert af honum á TRJÓNUFISKUR — ágœtur í pottinn 700-1000 metra dýpi. Trjónufiskur er brjóskfiskur og við prófun hef- ur hann fengið þann dóm aðvera betri en steinbitur til matar”, sagði Halldór Dagsson. —BS— Síldarverð ákveðið HORNAFJARÐARHNÚTUR LEYSTUR Sildarverð var loks ákveðið i gærkvöldi eftir langvinnar deilur. Þetta á að leysa Horna- fjarðarhnútinn að sögn Kristj- áns Ragnarssonar, formanns Landssam ba nds islenzkra útvegsmanna, i morgun. Sildinni var nú skipt i tvo flokka i stað þriggja áður. Sild yfir 32 sentimetra verður á 40 krónur en smærri sild á 26 krónur kilóið. „Við vitum ekki annað en þetta leysi vandamál Hornfirð- inga og annarra reknetasjó- manna,” sagði Kristján Ragnarsson. Þetta verð gildir frá 15. þessa mánaðar. Sjómenn á tæplega 20 rek- netabátum, sem gera út við Suðausturlandið hafa ekki róið frá miðjum mánuði af óánægju út af verði. Gengið hefur verið að mörgum kröfum þeirra i þessari verðákvörðun. Þeir kröfðust tveggja flokka og hækkunar upp í 40,50 krónur fyrir sild yfir 32 sentimetra en 31,50 fyrir þá minni. Gengið var að kröfunni um tvo flokka og verðið hækkað i nær hið sama og þeir kröf ðust fyrir stærri sildina en nokkuð minna en þeir vildu fyrir minni sildina. Verðið var hins vegar ákveðið með andstöðu fulltrúa sildar- kaupenda. Oddamaður, Ólafur Daviðsson frá Þjóðhagsstofnun, og fulltrúar seljenda, Kristján Ragnarsson og Tryggvi Helga- son, samþykktu verðið en and- vigir voru fulltrúar kaupenda, Jón Þ. Ámason og Margeir Jónsson. —HH frjálst, úháð daghlað Föstudagur 19. september 1975. Mœtti of slompaður „Heimsins mesti iþrótta- maður” heitir myndin sem Gamla bió sýnir um þessar mundir. Þessa mynd ætlaði maður um þritugt að sjá i gær- kvöldi en mætti svo slompaður til leiks, að honum var.neitað um aðgöngumiða. Hann ætlaði nú samt inn og ætlaði að láta afl ráða, er dyravörðurinn vildi ekki „makka rétt” að hans dómi. Þeim skiptum lauk þannig ab skyrta dyravarðarins fór i tætlur en maðurinn lenti utan dyra og varð að loka um stund þar til lögreglan kom á vett- vang. Á meðan lét maðurinn hendur og fætur dynja á hurð og veggjum. —ASt Hœttuleg vopnasmíði á Akranesi Börn á Akranesi hafa nú brugðið á hættulegan leik og skorar lögreglan þar á for- eldra að ganga i lið með sér til að reyna að upphefja þetta til- tæki barnanna. Hafa þau búið sér til nokkurs konar byssu úr stútum plastbrúsa og venju- legum gúmmihönskum hús- mæðra.Hvort tveggja er auð- fengið og þvi er erfitt að upp- ræta þennan leik, nema helzt með aðstoð foreldra og ann- arra fullorðinnna. Með þessum „vopnum” hafa börnin þegar valdið skaða og lögreglan telur tækin stórhættuleg. Skjóta börnin steinum og baunum með þess- um áhöldum og hafa þau m.a. hitt I andlit stúlku. Hlaut hún meiðsl á kinn, en þar skall hurð nærri hælum að ekki yrði varanlegt siys af. Þá hefur með sliku „vopni” verið brotin rúða I ibúðarhúsi sem kostar 30 þúsund kr. og fæst hún ekki bætt af tryggingum. Krakkarnir fara oft um i hópum, 10—15 saman, og er þvi erfitt að finna þann sem skaða veldur. Þau eru yfirleitt á aldrinum 7—12 ára. —ASt. Ikveikjur af öfund Slökkviliöið var fimm sinn- um á ferðinni siðasta sólar- hringinn, en i engu tilfellanna var um alvarlega atburði að ræða. Tvivegis var slökkvilið- ið kvatt út vegna elds i spýtnahrúgum og skúrum sem krakkar hafa eða eru að byggja sér. Var það við Soga- veg og I Sundahöfn og munu önnur börn hafa borið eld að þessum byggingum sakir öf- undar. Þá kom upp eldur i bilskúr við Stigahlið, sem slökktur var fljótt og loks var liðið kvatt að Austurveri við Háaleitisbraut vegna reykjarlyktar i húsinu. Við húsið eru strákar oft að kveikja i rusli og leggur þá reykjarlyktina um loftræst- ingarrásir hússins. Svo mun og hafa verið nú og ekkert tjón varð af. —ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.