Dagblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 2
I)A<iUI/AtHf) MIÐVIKU!)A<;i;i< 11. ACIIST 197<) 2 r Raddir lesenda Gallsúr kókómjólk ó boðstólum Kókómjólkisti skrifar: Mig fýsir að vita hvernig gæðaeftirliti hjá Mjólkursam- sölunni er háttað. Eg keypti fyrir verzlunar- mannahelgina 10 stk. '4 1 fernur af kókómjólk, sem stimplað var á síðasti neyzludagur 25. október. En viti menn: Þrjár af þessum tíu voru gallsúrar, hreinlega í kekkjum. Það þarf varla að lýsa því að mig hryllir við að kaupa slíka vöru aftur. Verður ekki þessi átöppun innkölluð ef það lætur nærri að 1/3 hluti af framleiðsíunni sé ónýtur'.’ Það hlýtur að vera þörf á strangara eftirliti við átöppunina. DB hafði samband við Odd Magnússon. mjólkurhústjóra Mjólkursamsölunnar. Hann sagði okkur að kókómjólkin 'væri framleidd og unnin að öllu leyti í mjólkurbúi Flóamanna. Af hverri lögun væru jafnan tekin 100 stk, sem geymd væru í hitaskáp til þess að kanna geymsluþolið. Eftirlit með framleiðslunni er eins gott og hægt er að hafa það. En þrátt fyrir þessar varúðarráðstafanir kemur það einstaka sinnum fyrir að ein og ein ferna í pakka er gölluð. Gerist það 1 áfyllinga- vélinni — það verður enginn var við það fyrr en neytandinn opnar fernuna, eða 1 verzluninni þar sem varan er seld. Þessar gölluðu fernur bólgna nefnilega út og er hægt aðþekkja þær á því. Þetta er hendanlegt óhapp, sem ekki verður við ráðið. Oddur taldi óliklegt að kókómjólk frá 25. október yrði innkölluð, en fannst bréfritari okkar hafa verið einstaklega ó- heppinn að lenda á þremur gölluðum af tiu. Ólafur Jónsson frá Egilsstöóum skrifar: Á íþróttasíðu Morgunblaðsins fyrir nokkru greinir frá þvi að Færeyingar vilji hætta öllum íþróttasam- skiptum við íslendinga. Ég er svo innilega sammála leiðara- höfundi fære.vska blaðsins 14. sept. að ég vil hér með gera orð hans að mínum. Fórmaður K.S.t.nefnir þá ástæðu eina fyrir því að Færeyingar voru reknir frá Norðurlandamóti unglinga í knattsp.vrnu. sem halda á hérlendis, að hinar Norðurlandaþjóðirnar vildu ekki hafa Fære.vinga með. Ef af þátttöku Fæeyinga hefði orðið myndu hinar Norðurlanda- þjóðirnar ekki mæta til leiks. Jú. K.S.l. gekk að þessum óréttlátu kröfunt hinna fornu nýlenduþjóða. Um leið stimpluðu stjórnarmenn K.S.t. sig sem iitlar sálir. K.S.Í. átti að selja hnefann i borðið og koma með þá mót- kröfu að ef Fære.vingum yrði rneinuð þátttaka í mótinu sæju íslendingar sér ekki fært að halda mótið hér á landi. Einnig A þessari niynd eigast við landslið íslendinga og Færeyinga, 16-18 ára, en í greininni sem fylgir er átt við aldursflokkinn 14-16 ára. hefðu tslendingar átt að sjá sóma sinn í því að draga sig úr keppninni. Slíkt væri sómi fyrir tslendinga sem vera ættu þess vel minnugir að eitt sinn var ísland nýlenda. Raddir lesenda Hríngið í síma 83322 millikl. 13 og 15 ISLENDINGAR JAFNAN FREKAR SMÁAR SÁLIR »«»««! 1 ifill Bp 1 m****** i ^ j LrfíllintTTfl ■ 1 Nt]s 1 |N»TJf m V f‘l Sunnudagssteikin ónýt Fyrir nokkrum dögum kom maður nokkur hingað til okkar á ritstjórnina. Hann hafði meðferðis dós áf grænum baunum sem hann hafði fest kaup á fyrir helgi og hugðist hann gæða sjálfum sér og fjölskyldu sinni á gómsætum baunum með sunnudags- steikinni. Þegar farið var að auáa úr baunadósinni á diskana (og það hafði reyndar þegar verið ausið á nokkra) kont í ljós að ekki var — ekki boðnar skaðabœtur fyrir skemmda vöru allt með felldu nteð baunirnar. því í dósinni reyndist vera ókennilegt hár og innihald dósarinnar heldur óhrjálegt í alla staði. Felmtri sló nú á sunnudags- borðhaldið, henda. varð matnum af þeim diskunum, sem þegar hafði verið ausið á. Maðurinn fór nú með það sent eftir var af baunadósinni i Ora en þaðan var þessi framleiðsla einmitt komin. Honum var tjáð að hann gæti fengið aðra dós af grænum baunum, en ekki neitt annað. Það verða að teljast frekar litlar sárabætur fyrir það amstur og þau leiðindi sem sögumaður og fjölsk.vlda hans höfðu orðið fvrir. Þess ntá að lokum geta að ekki þáði maðurinn bauna- dósina í sárabæturnar, en ekki er trúlegt að hann fái sér grænar baunir frá • Ora á næstunni. HERMÓÐUR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.