Dagblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 6
DACBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1976 Hvíti minnihiutinn í Ródesíu hefur vígbúizt rækilega að undanförnu. Þegar stjórnarherinn drap rúmlega 300 blakka skæruliða í gær fögnuðu hvítir með kampavini. En í morgun svöruðu blakkir fyrir sig. Ródesíski landamærabærinn Umtali varð fyrir stórskotaliðs- árás snemma í morgun. Bærinn er aðeins nokkra kílómetra frá landamærum Mósambík, þaðan sem sprengjunum var skotið. Árásin hófst klukkan rúmlega fjögur í morgun og stóð í rúman hálftíma, að sögn herlögreglunnar í höfuð- Sívaxandi harka í Ródesíu: Gagnkvœmar árásir yfír landamœrin að Mósambík — hefndarárás skœruliða á landamœrabœ í morgun borginni Salisbury. Þetta er fyrsta árásin, sem gerð er á Umtali í þau fjögur ár, sem skæruhernaður hefur verið stundaður í landinu. Árásin var gerð aðeins nokkrum klukku- stundum eftir að hvítir Ródesíubúar fögnuðu því með kampavíni og söng að stjórnar- herinn hafði ruðzt inn í Mósambík og drepið þar rúmiega þrjú hundruð blakka skæruliða. Ekki er vitað hvort mann- fall varð í Umtali, en skemmdir urðu töluverðar á húsum og mannvirkjum. Þá er heldur ekki vitað hvort ródesískir skæruliðar, sem hafa aðsetur í Mósambík, gerðu árásina eða hvort það voru mósambískir Frelimo- skæruliðar. t því hverfi Umtali, sem várð fyrir árásinni, er herstöð. Talið er að þar hafi tjónið orðið mest og trúlega mannfall einnig, þótt það hafi ekki fengist staðfest. Kissinger um kjarnorkuver: Allt í eðlilegu samhengi Henry Kissinger, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hefur nú sagt frönskum ráða- mönnum, að þvinganir þær, sem hann hafi beitt þá til þess að reyna að koma i veg fyrir sölu á kjarnorkuveri til Pakistan, séu aðeins forsmekk- Kissinger og kjarnorkuverin: allt í samhengi, segir hann. Frakkar selja Pakistönum kjarnorkuver og þá fá þeir ekki hernaðaraðstoð frá Banda- ríkjunum. urinn að nýjum bandarískum lögum. Kissinger hefur sagt Pakistönum, að þeir kunni að missa alla efnahags- og hernaðaraðstoð Bandaríkjanna, ef þeir kaupa kjarnorkuverið af Frökkum, en með því eiga Pakistanar að geta framleitt plutoníum og þar með kjarn- orkuvopn. Afskipti hans af máli þessu hafa vakið reiði í Frakklandi þar sem ráðamenn segjast ekki una slíkum þvingunum. Pflfís; ELLEFU FÓRUST ÞAR í HÓTELBRUNA íM ORGUN Ellefu manns fórust og níu hlutu alvarleg brunasár, þegar eldur kom upp í hóteli einu í miðborg Parísar snemma í morgun. Á hótelinu bjuggu aðal- lega innflytjendur og verkamenn frá norðanverðri Afríku, einkum Marokkó og Alsír. Eldurinn byrjaði i stigagangi og breiddist óðfluga út um fimm hæðir hótelsins, Hotel d’Amerique, nærri Pigalle- hverfinu, sem frægt er fyrir Moulin Rouge kabarettinn. Flestir þeirra, sem létust, munu hafa kafnað í reyknum þegar eldurinn hindraði för þeirra. Slökkviliðsmenn björguðu mörgum hótelgesta út um glugga og enginn mun hafa þurft að stökkva niður. Niðurlögum eldsins var ráðið eftir tveggja tíma slökkvistarf og tókst að koma í veg fyrir út- breiðslu hans. Skilríki hinna látnu brunnu í eldinum en lög- reglan telur að meðal þeirra hafi ekki verið erlendir ferðamenn. Allur vindur úr Bellu —en stórtjón víða um heim Fellibyt-jjr hafa látið að sér kveða umianfarna daga víða um heim. Heldur varð þó minna úr fellibylnum Bellu sem kom upp að austurströnd Bandaríkjanna í fyrrinótt — þó varð milljóna tjón í úthverfum á Long Island og i (ionneclicut-fylki og ein stúlka íét lífi'ð. Þá fórusl 12 manns á eyjunni Taiwan eftir aö fellitiylur lagði 947 h.ús í rúsl, en vindhviðurnar urðu þar haröastar allt að 185 km á klukkustund. í Pakistan hafa yfirvöld birt tiilur um þá sem látið hafa lífið í monsúnflóðunum þar. Er talið, að um 110 manns hafi drukknað, miklar skemmdir hafi orðið í um 0000 þorp um þar í landi og a.m.k. 3,500 manns misst heimili sín. Sumir tóku Bellu léft og þótti tithreyting í veðurofsanum þessir New York-húar. Flokksþing repúblikana: NÚ HITNAR í KOLUNUM Ronald Reagan á heimili sínu i Kaliforníu eftir að hann hafði tilkynnt um val á varaforsetaefni sínu. Það hefur víða mælzt illa fyrir, enda Schweiker frjálslyndur — en nú heimta stuðningsmenn Reagans frekari íhaldsstefnu. Harðsnúnir fylgjendur Ronald Reagans hafa nú krafizt þess að Repúblikanaflokkurinn taki upp íhaldssamari baráttu- mál fyrir kosningarnar í Banda- ríkjunum í nóvember. Ef þetta tekst ekki, má Ford forseti eiga von á auðmýkjandi baráttu við flokksmenn sína frammi fyrir milljónum kjós- enda við sjónvarpstækin, er fylgzt verður með flokksþingi Repúblikanaflokksins í næstu viku. Ford, sem enn hefur nauman meirihluta kjörmanna að baki sér gegn Reagan, vill fyrir allan mun forðast sllk átök innan flokksins, sem án efa myndu gera möguleika repúblikana á því að sigra í forsetakosningun- um í nóvember að engu. Fylgjendur Reagans segja, að þeir vilji ekki verða til þess, að slíkir atburðir gerist, en halda því fram, að ekki sé nægur gaumur gefinn að baráttumál- um Reagans, sem er íhalds- samari en forsetinn. Vilja þeir með þessu minna hinn almenna kjósanda á þessi hjartans mál frambjóðandans. Tvö þessara mála eru í beinni andstöðu við stefnu Fords for- seta. Er þar um að ræða and- stöðu við að slaka á spennunni milli Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna og að bann það, sem verjð hefur á innflutningi á krómi frá Ródesíu, verði numið úr gildi. Aðrar kröfur eru varðandi áfranthaldandi algjör yfirráð yfir Panama- skurðinun . aukin framlög til uppbyggingar hersins og bætta Richard SchweiKer, varaforsetaefni Reagans. san. úð við Kína, án þ..>- að það verði gert á kosmaá Taiwan-stjórnar. S:::ðningsmenn Reagans, undir forystu öldungadeildar- þingmannsins desse Helms frá Norður-Karólinu, segjast hafa sent miðstjórn flokksins bréf, þar sem þessar kröfur eru undirstrikaðar. Kváðust þeir enn ekki vissir um. hvort þeir myndu krefjast opinberrar untræðu um málin á flokksþinginu, ef þeim yrði ekki bætt inn í stefnuyfir- lýsinguna, en það var ekki talið ólíklegt, er síðast fréttist. Efnisnefnd flokksþingsins. en þar eru stuðningsmenn Fords forseta í meirihluta. mun taka afstöðu til málsins á morgun eða á föstudag.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.