Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 19
DACBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. APHÍL 1977. 23 Það er ekki verið að .saxa mör- inn á venjulegan máta. Hún Ingunn sér um að mata vélina. „kúnninn‘“ fái slátur sem ekki er rétt snittað til og fallegt á borði. Við fengum að vita að 450- 700 kg. af slátri væru búin þarna til á dag. Það fer í verzlanir Sláturfélagsins og fleiri og svo ekki lítill hluti til skipanna, þvi sjómenn kunna vitanlega að meta slátur ekki síður en landkrabbar. Þar sem sláturgerð er stór i sniðum eru pottarnir auðvitað ekkert smásmíði. Við iitum ofan í einn, sem hafði að geyma — ekki 35 keppi. — Nei, 350 voru þeir. Við skulum aðeins fræðast nánar hvernig dagurinn gengur fyrir sig. Allir komnir með svuntur og hnífa og það vitan- lega á mínútunni 7.20. Þá byrjar Villi á fyrstu hrærunni síðan er hún sett upp í þar til gerðan bala og þrjár fela upp í keppina. Síðan eru þeir settir á bakka og þá taka sauma- konurnar við og sauma fyrir. Fleiri koma að verki og snitta vambirnar og skera frá vélun- um. Þá komast keppirnir hreinir og snyrtilegir í fötur sem er hvolft áÞakka og síðast en ekki sízt komast keppirnir á áfangastað í pottana. Því miður hittum við nú ekki konuna sem annast að keppirnir fari nú ekki í einn hrærigraut, en við fengum þær uppiýsingar að sjaldnast sprvngi keppur. Nú, suðunni er lokið. Þá verður auðvitað að byrja að hreinsa og skola vambir til næsta dags og sníða og sauma, því að allt verður að vera tilbúið fyrir næsta dagsverk. -EVI. Það er líka gert fleira hjá SS en að búa til slátur. Lilja er hér að vinna við rúllupylsugerð. Við gátum ekki betur heyrt en stúlkan kallaði sig Eibí. Hún er að koma matnum fyrir á örugg- Og það gerir hún Jóna lika og um stað. kryddar vel eins og vera ber. DB-myndir Hörður. V Þeir Villi og Geir fylgjast með að allt sé nú í stakasta lagi. Og þessar fela upp, Jóhanna, Guðný (72 ára) og Rósa Hann tekur ekki 35 keppi þessi, nei, 350 og Laufey leyfir okkur að kikja ofan i. Namm, en sá ilmur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.