Dagblaðið - 08.11.1977, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 08.11.1977, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. NOVEMBER 1977. Ýmislegt fleira alvarlegt en þegar framsóknarmenn eru slegnir hægra megin í andlitið —f réttaritarar f jölmiðla senda ekki aðrar f réttir en þær sem eru jákvæðar fyrir heimamenn Guðmundur Pálsson Sauðár- króki skrifar: Tilefni skrifa minna er að ég tel að miklu alvarlegri hlutir hafi átt sér stað hér á Sauðár- króki að undanförnu heldur en þó maður sé sleginn í andlitið og fái glóðarauga. Nú, með stuttu millibili, hafa orðið tvö umferðaróhöpp og í þeim orðið allverulegt eigna- tjón, en ekki manntjón, sem betur fer. í sumar var ljósa- krónan í Hegranesvita skotin í sundur og hestur var skotinn úti f haga. Þessir hlutir verða að teljast nokkuð alvarlegir. Ég hef ekki orðið var við að fjölmiðlar hafi sagt frá þessum atburðum utan Dagblaðsins sem á þeim tæpti. Eflaust er hægt að benda á mörg dæmi önnur, syipaðs eðlis. Það er augljóst að fréttaritar- ar fjölmiðla hér birta aðeins þær fréttir sem þeir telja sér henta hverju sinni, góðar ef innanbæjarmenn eiga hlut að máli, en þær sem miður eru ef utanbæjarmenn eru tald- ir koma þar við sögu. Því verð- ur ekki trúað að óreyndu að mennirnir viti ekki hvað gerist f þeirra næsta nágrenni. Ég er ekki á því að það eigi að hlaupa með alla skapaða hluti f blöðin. Langt frá því. En þegar svona er staðið að fréttaþjónustunni er farið að draga þá ólánsömu menn sem fyrir þessu verða f dilka og það á ekki að eiga sér stað. Með þessum skrifum mfnum er ég ekki að ráðast að neinum sérstökum fréttaritara fjöl- miðla hér. Mér virðist þeir allir undir sömu sökina seldir. í mið- vikudagsblaði Tímans 12. októ- ber sl. er grein á baksíðu sem ber fyrirsögnina „Næturárás og barsmíðar á Sauðárkróki“. Upphaf greinarinnar er svo- hljóðandi: „Sá atburður, sem nokkuð er óvenjulegur f frið- sömum kaupstað (leturbr. bréf- ritara) gerðist á Sauðárkróki aðfaranótt mánudagsins", til- vitnun lýkur. I greininni segir frá húsráð- anda nokkrum hér f bæ sem veittur var áverki í andliti af óviðkomandi manni. Ekki er að öllu leyti skýrt rétt frá f grein- inni og ekki minnzt á að er sonur húsráðanda kom föður sfnum til aðstoðar sló aðkomu- maður hann einnig í andlitið. I Harðfiskur Vestfirzkur, gæðaharðfiskur. Ýsa, lúða og steinbítur. Frosthertur og meðhöndlaður, upp á gamlan og góðan' máta. Uppl. í síma 53244. A íslandi aka yfir p 2800BILAR með Daglega f jölgar þeim bílum, sem aka með þessum bún- aði, enda er platínulausa transistorkveikjan frá LUMENITION örugg fjárfesting, sem margskilar hagnaði. Yf ir 2ja ára reynsla íslenzkra ökumanna hef- ur staðfest tvennt: Raunverulegur benzínsparnaður er a.m.k. kr. 8 pr. Itr. Meðaltal sem miðast við kr. 88 pr. Itr. Gangöryggi, sem tryggir stöðuga hámarksnýtingu vél- araflsins. Algengustu gangsetningarvandamál og rykkjóttur akstur með kaldri vél eru úr sögunni. Spyrjið LUMENITION-eigendur um þeirra reynslu. p, u*nci>r-hc Skeifunni 3e*Simi 3*33*45 lok greinarinnar er sagt að árásarmaðurinn sé talinn vera utanhéraðsmaður og fyrst svo er telur fréttaritari Tímans sjálfsagðan hlut að setja frétt- ina í blað sitt, þvf hún setji engan smánarblett á bæjar- félagið. Nú vil ég spyrja fréttaritara Tfmans hér á staðnum svo og fréttaritara annarra fjölmiðla hér: Fylgist þið virkilega ekki með hvað skeður innan þessa bæjar? Að vísu les ég ekki öll blöðin að staðaldri, en ég hef ekki orðið var við að sagt hafi verið frá því er ökumaður, grunaður um ölvun, ók niður girðingu umhverfis lóð náung- ans, stórskemmdi eða eyðilagði tvær bifreiðir og olli tjóni á húsnæði. Þarna varð tjón upp á hundruð þúsunda, eða jafnvel milljónir. Ekki er held- ur sagt frá þótt tveir og fjórir ökumenn séu teknir vegna gruns um ölvun um hverja hel- gi, nú upp á síðkastið, en það hlýtur að vera töluvert f tvö þúsund manna bæ. Atvik sem þessi teljast sennilega ekki nógu merkiieg til þess að setjast niður og skrifa frétta- klausu f blað sitt, eða á að þegja yfir þessu fyrst Jiað eru heimamenn sem eiga f hlut. Eg ætla mér ekki að bera í bætifláka fyrir mann þann sem sló húsráðanda og son hans en ég get ekki sætt mig við slfkan fréttaflutning sem þennan, en hans hefur áður orðið vart. Að vfsu getur það orðið alvarlegt mál þegar framsóknarmaður er •barinn hægra megin á andlitið, en hitt er öllu meira mál þegar ölvaðir ökumenn valda stór- tjóni og engum finnst neitt til þess koma. Að endingu þetta: Mál það sem umrædd Tímagrein fjallar um er óupplýst ennþá og skyldi þvf enginn eigna öðrum verkn- aðinn, sfzt 1 fjölmiðlum. Erlendu ríkisbubbarnir sögðu um verðlagið hér á landi: ÞETTA ER EKKIVERÐ, HELDUR Nokkur orð um verðbólgusiðgæðið íframkvæmd 0673-7862 skrifar: Ég hygg að það sé að æra óstöðugan að tala um einhvern sérstakan þátt í þeirri verðlags- svfvirðu sem yfir þessa þjóð dynur og sem hún hefur sjálf- sagt valið sér. Sfðastliðinn sunnudag áttum við fjölskyldan leið um Laugaveginn. Bar okkur þar að nýopnuðum veitingastað j)ar sem sjálfsafgreiðsla er. Á- kváðum við að fá okkur ein- hverja hressingu og skoða um leið fínheitin. Seðlar lágu fram- mi um hvað á boðstólum væri. við lesningu á seðlinum gekk svo fram af mér að ég get ekki orða bundizt, sjálfsagt er hverj- um í sjálfsvald sett að velja og hafna og ganga út, en þannig stóð á að konan og börnin voru setzt við borð, ég f sjálfvirkri röð við sjálfsafgreiðsluborð svo ég ákvað að bíða með lesning- una og keypti súkkulaði handa börnunum og kökusneiðar en samloku handa okkur hjónun- um. Þegar ég gerði þetta upp fannst mér hlutirnir f hærra lagi eða þrjár kökusneiðar, tvær samlokur og fimm súkku- laðibollar kr. 2.770. Um leið og ég geri þetta upp við stúlkuna lft ég á verðseðilinn og sé sund- urgreint verð á hinu og þessu og af því að ég pantaði sam- lokur með skinku fyrst en bað sfðan um með skinku og osti, þá kom fram sú ósvffnasta álagn- ing sem ég hef orðið vitni að. Þurr franskbrauðsneið kr. 60,00 með smjöri kr. 90,00, sam- loka með skinku kr. 390,00 en með osti að auki kr. 510,00,ein þunn ostsneið kr. 120,00. öll lesning á verðum á seðlinum er ævintýri lfkust og það hug- myndaflug f okri er einstakt. (4u Ekki held ég að þessi staður sé mikið frábrugðinn hlið- stæðum svokölluðum grill-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.