Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.11.1977, Qupperneq 15

Dagblaðið - 08.11.1977, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. NOVKMBER 1977. 15 Jane Fonda fertug Heldur áfram baráttunni í myndinni Comes a Horseman Wild and Free átti Jane að leika gleðikonu en hún harðneitaði því og sagðist hafa leikið slfkt hlutverk einu sinni og það væri einu sinni of oft. Hún breytti því hlutverkinu þannig að það hæfði henni betur. Vanessa Redgrave er mótleikkona Jane í Julíu. Jane með manni sínum Tom og syni þeirra Troy, sem er brlggjaára. Byltingarandi er oftast tengd- ur ungu fólki og hálfpartinn er búizt við að á fullorðins- árum, til dæmis um fertugt, sé hann löngu horfinn eða að minnsta kosti mun minni en hann var. Nýlega náði þó einn mikill byltingarsinni (á banda- rískan mælikvarða) fertugs- aldri. Þetta er Jane Fonda. Dóttir Henrys Fonda. Hún lætur ekki árin fjörutíu hafa truflandi áhrif á sig. Nýj- asta myndin hennar, Júlia, og þrjár næstu þar á eftir eru ekki bara kvikmyndir heldur vopn í baráttu hennkr fyrir afnámi fordóma þeirra sem Hollywood hefur haldið fram I garð kvenna. Líf hennar í heild er líka í algerri andstöðu við þessa Hollywood draumamynd og menn eins og dr. Spock (barna- læknirinn frægi sem vill láta allt eftir börnum) mundi falla i yfirlið kæmist hann að því hvernig hún elur börn sín upp. En Jane Fonda breyttist ekki úr kyntákni í byltingarsinna á einni nóttu. Þegar hún var táningur var hún í hálfgerðu reiðileysi þvi faðir hennar hafði allt annað að gera en að hugsa um börn og móðir hennar framdi sjálfsmorð. Um tvítugt var hún kyntákn sem maður hennar Roger Vadim stjórnaði. Um þrítugt kom svo andstæðan. Þá fórnaði hún bæði hjónabandi og frama fyrir stjórnmálin og stóð þá framarlega í baráttunni gegn stríðinu í Víetnam. Nú er hún fertug og gift Tom Hayden og á með honum eitt barn og annað ala þau upp saman. Það átti hún með Vad- im. Hún er aftur farinaðleika opinberlega eftir að hafa verið lokuð úti um nokkurn tíma vegna þess að hún þótti of vinstrisinnuð. Og frami henn- ar virðist fara vaxandi aftur. Myhdin sem var það sem á bandarísku er kallað „Come- back“ eða sú sem gerði hana fræga aftur heitir Fun with Dick and Jane og var hún frumsýnd fyrr á þessu ári. Sú mynd gekk alveg frábæriega vel og naut mikilla vinsælda og Jane fékk lof fyrir leik sinn. Talað hefur verið um að hún gæti fengið Öskarsverðlaun fyrir leik sinn í Júlíu. Nú leikur hún í mynd sem nefnist Comes a Horseman Wild and Free með James Caan. Og einnig leikur hún í Coming Home sem fjallar um mann sem snýr aftur úr Vietnam stríðinu. Næst á dag- skrá er svo China Syndrome sem er þá fimmta kvikmyndin sem hún leikur í á 18 mán- uðum. Jane gerir ekkert til þess að dylja það að hún sé orðin fer- tug. En hún er það frjálsleg í fasi og eðlileg að mönnum finnst hún tíu árum yngri. Samt er hár hennar ögn farið að grána og húðin ekki eins slétt og felld og hún var. Kunnugir þykjast líka sjá þess merki að hún sé nokkuð spennt á taugum og að henni veitist það erfitt sem hún er alltaf að reyna, að vera full- komlega heiðarleg. Þrátt fyrir það að Jane segist ekki vera mikið gefin fyrir nútímaþægindi er samt auðséð að hún og fjölskylda henn- ar lifa ekki við neina fátækt. Þau eiga villu í Santa Barbara og stækkuðu hana nýlega mjög mikið. A sumrin eru reknar þarna sumarbúðir fyrir börn. Þarna er lika rekin kosninga- skrifstofa fyrir félagsskap sem kallar sig Baráttuna fyrir efna- hagslegu lýðræði og berst í raun fyrir því að vinstrisinn- aðir menn séu valdir í em- bætti. Meðal þessaramanna er Hayden maður Jane sem reyndi í síðustu kosningum að vera útnefndur frambjóðandi demó- krata til öldungadeildar en tókst ekki. Menn binda þó enn miklar vonir við hann, ekki síst Jane. Þar sem baráttan, barnabúð- irnar og stóra húsið eru ekki Hvernig getur hún samræmt allt þetta leikstarf því að vera gift kona og tveggja barna móðir? Svar hennar við því er einfalt „með þvi að eiga engin samskipti við fólkið I Beverly Hills. Slíkt er tóm tímaeyðsla. Þegar ég er búin að vinna fer ég heim og við lokum dyrunum og ræðum félagsieg og pólitisk vandamál og lausnir á þeim. Og við reynum að láta börnunum aldrei finnast að þau séu skilin út undan. Eftir því sem þau eldast taka þau meiri þátt í umræðunum." ókeypis verður Jane að vinna eins mikið og hún gerir. Hún segir að það geti ekki skipt neinu máli hver það sé í fjöl- skyldunni sem vinni fyrir salt- inu i grautinn, málið sé að allir vinni saman að sameiginlegu markmiði. Heimilisstörfunum skipta þau lika á milli sín og nota öll kvöld til þess að vera saman með börnunum. Ekkert útlit er fyrir að Jane eigi eftir að lifa rólegheitalífi I langan tíma, hvorki á sviði heimilis né i leik- starfinu. Þrátt fyrir að hún er á góðri leið með að verða lifandi þjóðsaga í Bandaríkjunum fyrir stöðuga baráttu sina lætur hún sér það ekki nægja heldur ætlar hún sér að halda áfram lengi enn. -DS þýddi og endursagði.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.