Dagblaðið - 08.11.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 08.11.1977, Blaðsíða 5
1 >ACiBI.AÐIÐ. ÞRIÐJUDAC3UR8. NÓVRMBER 1977. 5 fanginn lá í járnunum, hafi hann ekki verið strekktur, en að hann hefði getað strekkt á þeim með þvf að hreyfa sig. Læknirinn kveðst telja að járn- in geti hafa valdið sárum við þess- ar aðstæður, einkum ef fanginn hefur hreyft sig mikið. Hann seg- ir að þetta muni hafa verið tölu- vert þvingandi fyrir piltinn, m.a. hafi hann ekki getað snúið sér. Hann telur að erfitt hafi verið fyrir fangann að fá hvíld í þessum stellingum. Læknirinn er spurð- ur, hvort fanginn hefði getað þjáðst af andþrengslum eða sina- drætti við þessar aðstæður. Hann kveðst telja, að hann hefði getað fundið til innilokunarkenndar. Hann telur að ef fanginn hefur legið kyrr í járnunum, hafi honum ekki verið hætt við and- þrengslum eða sinadrætti. Hann kveðst telja líklegra að fanginn hefði fengið harðsperrur. Fanginn segist ekkert hafa get- að hreyft sig í járnunum á sl. vori. Hann kveðst ekki hafa sofnað. Hann segir að nú hafi handjárnin aðeins öðrum megin verið fyrir ofan hnúðinn á úlnliðunum (proc. styleoideum ulnae) en í vor hafi Lýsing forstöðumanns Síðumúlafangelsisins á þeim agaviðurlögum, sem gripið er til við erfiða fanga. Myndina teiknaði Ragnar Lár. ÞAGGAD NIÐURI „ÚTVARP AKUREYRI” — Stöðin hefur sent út í Reykjavík ínær mánuð. — Öll tæki gerð upptæk Hér má sjá tæki útvarpsstöðvarinnar. Með þessum tækjum var hægt að senda út í stereo. Utvarpsstjór- inn vonaðist til að fá tæki sín aftur þar sem hér væri um venjulegar stofumuhlur að ræða, þótt eðlilegt væri að sendir stöðvarinnar væri gerður upptækur. Eins og kunnugt er risu upp þó nokkrar útvarpsstöðvar í verkfallinu, þegar ríkisút- varpið sendi ekki út. En að verkfalli loknu hljóðnuðu þessar stöðvar að einni und- anskilinni og sendi hún út sem útvarp Akureyri þótt hún væri staðsett í Reykjavík. En sl. föstudagskvöld þögg- uðu tæknimenn símans nteð rannsóknarlögreglumann I fararbroddi endanlega niður í stöðinni. Hún hafði þá út- varpað léttri tónlist af töluverð- um styrk í nær mánuð. Stöðin var fyrst staðsett í Efstasundi en dró ekki nægi- lega langt að mati aðstandenda stöðvarinnar og þvi var komið upp endurvarpsstöð í Breið- holti og náðist þá víða um borg- ina, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Síðan var útvarps stöðin flutt að Asparfelli 8 fyrir u.þ.b. viku síðan og hefur m.a. verið útvarpað þaðan í stereo. Utvarpsstjórinn er áhuga- maður um að leyfa fleirum að njóta léttrar tónlistar en hvorki var útvarpað fréttum, aug- lýsingum né áróðri. En um tíuleytið á föstudags- kvöld var dyrabjöllu ibúðar- innar hringt og þar voru komn- ir rannsóknarlögreglumað- ur við þriðja mann og tveir símamenn. Simamenn- irnir kipptu öllum tækjum úr sambandi og plötusnúði stöðvarinnar var vísað frá án þess að hann næði að tilkynna áheyrendum að stöðin væri gerð upptæk. öll tæki voru sett í hrúgu á gólfið og tveir menn fóru upp á þak og tóku niður loftnet og kapal. Að sögn út- varpsstjórans var rannsóknar- lögreglumaðurinn kurteis mjög en ekki var hægt að segja hið sama um símamennina. Tvö segulbönd voru tekin, magnari, heyrnartól, tveir mfkrofónar. sendir, straumbreytir, útvarp, segulbandsspólur, stereómixer, loftnet o.fl. Utvarpsstjórinn áætlar að þessi tæki kosti á milli fimm og sex hundruð þúsund. JH þau verið fyrir ofan hnúðinn á á hendur þeim, sem ábyrgð kynnu báðum höndum og herzt að.“ að bera. Áverkavottorð frá héraðslœkni Fanginn B bar engin merki um meiðsli á úlnliðum þegar hann var skoðaður í Hegningarhúsinu í Reykjavík 22. október í fyrra. Fanginn A var hins vegar með sár á ökklum og úlnliðum, sem hann sýndi m.a. fréttamönnum Dag- blaðsins sem ræddu við hann skömmu eftir að hann losnaði úr gæzluvarðhaldinu í fyrrasumar. Grímur Jónsson héraðslæknir í Hafnarfirði skoðaði A um miðjan október í fyrra og sagði í áverka- vottorði sínu ti! dómsins viku síð- ar, að „telja verður mögulegt að áverkar þessir, þó sérstaklega blettirnir á ökklunum geti verið til komnir á þann hátt sem A ber. Þó er mjög hæpið að fullyrða um það, þegar svo langt er um liðið.“ Héraðslæknirinn kveðst telja vafalaust, að ef lýsing fangans á „strekkingunni" stæðist, hefði það fengið töluvert á viðkomandi andlega. Líkamlega gat hann ekki séð neinar varanlegar eftirstöðv- ar. Þegar dómsrannsókn Stein- gríms Gauts var lokið var málið sent rétta boðleið til ríkissaksókn- ara, sem taka skyldi ákvörðun um hvort ástæða væri til frekari að- gerða í málinu, þ.e. málshöfðunar „...hefur ráðuneytið ekki lagt bann við notkun bessara úrrœða...“ Ríkissaksóknari fékk endurrit dómsrannsóknarinnar 19. nóvem- ber í fyrra, og eftir rúma þrjá mánuði sendi hann málið til um- sagnar dómsmálaráðuneytisins eins og lög gera ráð fyrir. Eftir hálfan annan manuð kom umsögn ráðuneytisins, þar sem sagði meðal annars: „Ljóst er að nauðsynlegt er að halda uppi aga og reglu í fangelsi og nauðsynlegt getur verið að beita fanga sem ekki hlýðnast reglum fangelsisins viðurlögum og er í því sambandi algengast að nota einangrunarklefa. Slíkur klefi er ekki fyrir hendi í fangels- inu að Síðumúla 28 né annar bún- aður til einangrunar fanga, sem trufla umhverfi sitt. Hefur yfir- maður fangelsisins þvi orðið að beita þeim aðferðum, sem nánar er lýst I rannsókninni, við þá fanga sem mjög hafa óhlýðnast fyrirmælum fangavarða eða vald- ið sérstökum óróa í fangelsinu. Ráðuneytið telur að þau agavið- urlög sem hér um ræðir séu ekki heppileg lausn, en meðan ekki er annarra úrkosta völ í þessu fang- elsi hefur ráðuneytið ekki lagt bann við notkun þessra úrræða. Það verður hins vegar að vera á valdi yfirmanns fangelsisins að ákveða hverju sinni hvort nauðsyn sé að beita þeim viður- lögum, sem hér um ræðir.“ Ríkissaksóknari sá ekki ástæðu til frekari aðgerða í málinu og urðu það endalok þess. - ó.vald. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Sími 15105 VÉLHJOLAVERZLUN FREYJUGATA 1. SÍMI 16900. FRATRIUMPH sy-Rider Demparar að framan og aftan. Há og lág ökuljós, flauta, hraðamælir og stórt afturljns. Easy-Rider býður upp á Triumph öryggi, sparneytni og úrval af aukahlutum. t.d. vindhlífar, innkaupakörfur o.fl. Verð 148 þús. Greiðsluskilmálar. ZZZtWumboðið 6 íslondi (MRÍÍM (Q)0=^(Pi 00^1 Byrjendanámskeið íjúdó fyrírkarla og konur hefjast þriöjudaginn 8. nóv. kl. 20,30 Kennt verður að Brautarholti 18 á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20,30—21,30. Framhaldsflokkurinn er í fullum gangi á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 19,00—20,30. Innritun á sama stað og tfma, sími 16288. KennararverðaHalldórGuðbjörnsson 1. dan og Sigurður Pálsson 1. kyu. m.. Júdófélag Reykjavíkur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.