Dagblaðið - 25.07.1978, Page 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978.
11 111111 iMW
Örugg forusta
Siglfirðinga
Það voru engir leikir á Norðurlandi í
3. deild íslandsmótsins I knattspyrnu um
helgina vegna Landsmóts UMFÍ á Sel-
fossi. En þar sem Norðurland féll niður
síðast, þá munum við gera bragarbót á,
og scgja frá úrslitum í 3. deild á Norður-
landi helgina þar á undan, þó seint sé.
D-riðill:
Dalvík — Leiftur 0—3. Staðan i leik-
liléi var 0—3. Mörk Leifturs skoruðu
Steinn llelgason. 2 og Ægir Ólafsson.
Hofsós-Siglufjörður 1—8. KS hafði yfir-
burði gegn Hofsós, sem og í riðlinum.
Slaðan i leikhléi var 5—0. Hörður Júlí-
usson 4, Bjöm Sveinsson 2, Sigurjón Er-
lendsson og Friðfinnur Hauksson skor-
uðu mörk KS en Björn Sigurðsson svar-
aði fyrir Hofsós.
Tindastóll — Hofsós 6—0. Tindastóll
hafði yfirburði á Sauðárkrók, Örn Ragn
arsson 2, Þórhallur Ásmundsson, Páll
Ragnarsson, Karl Ölafsson og sjálfs-
mark Hofsós sáu unt ntörk Tindastóls.
Staðan í D-riðli er:
KS 5 5 0 0 20-2 10
Tindastóll 5 3 0 2 14-6 6
Leiftur 4 2 11 5-4 5
Dalvík 5 113 5-7 3
Hofsós 5 0 0 5 3-28 0
E-riðill:
Reynir Árroðinn 0—1. Eina mark
leiksins skoraði Hafberg Svansson i sið-
ari hállleik. Dagsbrún Magni 1—3.
Staðan i leikhléi var 0—0. Hringur
Hreinsson. 2 og Sæmundur Guðmunds-.
son skoruðu fyrir Magna en Steindór
Steindórsson fyrir Dagsbrún. Síðan fór
fram á miðvikudag viðureign Reynis og
HSÞ. Björn Lárusson, sá kunni kappi
skoraði eina mark leiksins og tryggði
HSÞbæðistigin.
Staðan i E-riðli er:
Árroðinn 5 3 2 0 14-6 8
Magni 5 2 2 1 9-9 6
HSÞ 4 2 1 1 8-5 5
Dagsbrún 5 2 0 3 9-11 4
Reyóir 5 0 1 4 110 1
st./ A.
IBKfærVal
í heimsókn
Tveirleikirfaraframí l.dcild íslands-
mótsins í kvöld. Keflvíkingar fá í
heimsókn forustuliöió í 1. deild, Val.
Samkvæmt stigatöflunni eiga leikmenn
ÍBK ekki aö eiga möguleika gegn hinum
sterku Valsmönnunt — ÍBK hefur hlotiö
7 stig en Valsmenn hafa ekki tapaö stigi í
1. deild. En allt getur gerzt I knattspyrnu
og Kcflvíkingar bókstaflega verða aö
krækja sér í stig því staða liðsins er nú
alvarleg, niunda sæti — fallsæti.
Þá leika í Laugardal Fram og Breiöa-
blik. Blikarnir stefna nú í 2. deild —
Fram hins vcgar eygir möguleika á sæti i
UEFA-keppninni. Því ætti sigur Fram
að vera líklcgur en Blikarnir sigruóu
Frant í Kópavogi í Bikarnum, svo ef til
vill er enn von hjá Blikunum. Hljóti þeir
ekki stig i kvöld geta þeir endanlega
gcfió upp von um aö halda sæti sínu í I.
deild.
Þá fara l'ram tveir leikir í 2. deild. Á
Húsavik mæta Völsungar forustuliöi 2.
dcildar, KR. Og á tsafirði fcr frant mikil-
vægur lcikur cr ÍBÍ fær Þór í hcimsókn.
Nicklausfast
á hæla Bean
Adny Bean cr nú tckjuhæstur í golfi
cn Jaek Nieklaus cr fast á hæla lionum.
Um hdgina lylgdi Nieklaus sigri sínum á
Opna brczka meistaramótinu mcð sigri
í Philadclphia classic cn þar vann Nick-
laus sinn 66. sigur á stórmóti og 50
þúsund dali.
Andy Bcan hefur þénað um 64
ntilljónir en Jack Nicklaus rétt um 63
milljónir króna. Þessir tveir kappar
fylgjast fast að cn í þriðja sæti cr Tom
Watson mcð um 22 þúsund dali.
Undir stjórn Lauric McMenemy vann Southampton Bikarinn og hér hampar Peter
Rodrigues honum. McMencmy hafnaði að fara til Leeds i gær.
DERWALL - TEKUR
VIÐ AF SCHÖN
— við verðum að skipuleggja starf ið
„Við þurfum tíma til að vinna okkur
aftur upp i knattspyrnu, og við þurfum
að hugsa,” sagði Josef Derwall, hinn nýi
þjálfari v-þýzka landsliðsins í knatt-
spyrnu, eftir að hafa tekið við af Helmut
Schön, scm leiddi v-þýzka landsliðið til
HM titils, silfur 1966, brons 1970 og
cinnig Evrópumeistaratignar. En von-
brigði V-Þjóðverja með frammistöðuna í‘
Argentinu voru mikil og v-þýzk knatt-
spyrna á nú á brattann aö sækja.
„Við verðum að endurskipuleggja
sambandið. Það verða áreiðanlega breyt-
ingar og ég vonast til að ná nánu sam-
starfi við félögin," sagði Derwall
einnig . Derwall er 51 árs gamall. Hann
lék tvo landsleiki. 1954 gegn Englandi
og Portúgal. Þegar V-Þjóðverjar unnu
silfur á HM á Englandi 1966 tók Der-
wall við yfirstjórn knattspyrnu í Saar.
Hann fór síðan til v-þvzka knattspyrnu-
sambandsins. Þjálfaði siðan v-þýzka
áhugamannalandsliðið á ólympíuleikun-
um i V-Þýzkalandi 1972. Síðuslu árin
hcfur hann starfað við hlið Helmut
Schön.
Derwall, hinn nýi stjóri V-Þjóðverja.
MCMENEMY SAGÐI
NEIVIÐ LEEDS
Laurie McMenemy, framkvæmdastjóri
Southampton, hafnaði boði Leeds
umað taka við liðinu
Laurie McMenemy, framkvæmda-
stjóri Southampton er I vor ávann sér
sæti í 1. deild hafnaði í gærkvöld boði
Leeds um að taka við framkvæmda-
stjórastöðu hjá félaginu. Leeds hefur síð-
asta mánuðinn verið á höttunum eftir
McMenemy, sem er nýkominn úr sum-
arleyfi frá Bandaríkjunum.
„Leeds er stórlið á evrópskan mæli-
kvarða og því var það freistandi að taka
tilboði þess. En ég á skuld að gjalda við
Southampton og verk að vinna og þvi vil
ég Ijúka," sagði McMenemy.
Leeds United og Jimmy Armfield
framkvæmdastjóri skildu að skiptum
fyrir rúmum mánuði. Armfield tókst
ekki hvað stjórnarmenn Leeds vildu, að
koma með sigurlaun til Elland Road.
Leeds hafði verið góðu vant undir stjórn
Don Revie. Undir hans stjórn var Leeds
sterkasta félagslið Englands. Vann I.
deild, Bikarinn, deildabikarinn. Leeds
var stórveldi í knattspyrnu Evrópu. En
Don Revie fór frá félaginu, tók við fram-
kvæmdastjóraslöðu enska landsliðsins.
Sú saga varð samfelld sorgarsaga, Eng-
Stórsigur
Leiknis
Leiknir vann öruggan sigur gegn
Skallagrimi í C-riðli 3. deildar íslands-
mótsins í knattspyrnu, 4—0. Einn leik-
manna Skallagríms var rekinn af leik-
vclli, og fæst gekk þvi upp hjá Borgncs-
ingum.
Staðan í leikhléi var 2—0, Leikni i vil
á Fellavelli. Mörk Leiknis skoruðu,
Björn Sigurbjörnsson, 2, Þorsteinn Ög-
mundsson og Hilmar Harðarson, eitt
mark hvor.
Sig. Kr.
land komst ekki í úrslit Heimsmeistara-
keppninnar. Don Revie yfirgaf enska
knattspyrnu á eftirminnilegan hátt.
svo eftirminnilegan að enskir hafa enn
ekki fyrirgefið honum.
Jimmy Armfield tók við Leeds en
hann hafði gert það gott með Bolton.
'Undir hans stjórn komst Leeds i úrslit
Evrópukeppni meistaraiiða 1975 -
gegn Bayern Munchen. En þýzka liðið
sigraði, eftir að hafa verið yfirspilað
iengst af. Armfteid tókst ekki að fyglja
þessu eftir — jú. Leeds hefur verið sterkt
en ekki tekizt að vinna lil verðlauna.
Þegar slikt á sér stað á Englandi þá er
mönnum umsvifalaust visað á dyr.
Jimmy Armfield og Leeds skildu því
aðskiptum, og Leeds er þvi nú án frani-
kvæmdastjóra.
Agerbeck til
Herta Berlín
Daninn Hcnrik Agerbeck hefur
skrifað undir samning við Hertha Berlín
en Agerbeck lék hér sinn fyrsta
landsleik með danska landsliðinu gegn
Islandi. Henrik Agerbeck er markhæsti
leikmaðurinn í 1. deildinni I Danmörku.
Samningur Agerbeck við v-þýzka liðið
var mjög hagstæður fyrir hann. Þá
fékk félag hans, KB, einnig dágóðan
skilding, eða um 8 milljónir króna i sinn
hlut.
Á meginlandi Evrópu eru nú um 70
danskir knattspyrnumenn. Danir eiga
marga snjalla leikmenn, Allan
Simonsen, Barcelona, félagi hans,
Henning Jensen, Real Madrid. Þá er
Carsten Nielsen, arftaki Simonsen hjá
Borussia Mönchengladbach. Per
Röntved leikur með Werder Bremen og i
Belgíu og Hollandi eru margir snjallir
danskir leikmenn.
KR-ingar hampa bikarnum I sundi, meistaratign I höfn.
KR meistari í
sundknattleik
— eftir jaf ntef li gegn Ármanni, 4-4
jöfnunarmark sitt í lokin en sigur
Ármanns hefði þýtt, að öll þrjú liðin
hefðu orðið jöfn að stigum, jafnara gat
þáö vart verið.
KR varð I siðustu viku íslandsmeistari
í sundknattleik en þrjú lið tóku þátt I
mótinu i ár, KR, Ægir og Ármann. KR
tryggði sér sigur I mótinu með jafntefli
gegn Ármanni, 4—4. KR-ingar skoruðu
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLl 1978.
Hart barizt — en leikmenn Þróttar höfðu þarna ekki erindi sem erfiði.
DB-mynd Bjarnleifur.
% i&mzÉrrf 'Hzzmæ X w f.. w' - ■
1' t 1
F , Vm 1
3. 1
Skalli Heimis á markamínútunni
færöi Víkingum dýrmæt stig
— Víkingur sigraði Þrótt 1-0 í 1. deild í Laugardal í gærkvöld
Hinn 17 ára gamli Víkingur, Heimir
Karlsson, tryggði liði sínu bæði stigin er
Víkingur mætti Þrótti f 1. deild íslands-
mótsins í Laugardal i gærkvöld. Hcimir
skoraði, sigurmark Víkings aðeins
tvcimur minútum fyrir leikslok, á marka-
minútunni miklu, 43. mfnútur siðari hálf-
leiks. Þar með forðaði Víkingur sér af
mesta hættusvæði 1. deildar en hlutskipti
Þróttar er að verjast falli — niu stig úr
12 leikjum. ÍBK hefur 7 stig úr 11
leikjum, FH og KA 8 stig.
Leikur Víkings og Þróttar i Laugar-
dal var ákaflega jafn, bæði lið sköpuðu
sér svipuð tækifæri og þvi jafntefli rétt-
lát úrslit — hvorugt lið i raun verð-
skuldaði sigur fyrir þá knattspyrnu er
liðin sýndu. Mikið miðjuþóf þar sem
hvorugt lið náði tökum á miðjunni.
Fyrsta tækifæri leiksins fékk
Vikingur, er Helgi Helgason skaut
lúmsku skoti úr vítateig Þróttar.
Knötturinn stefndi undir þverslána en
Rúnar Gislason, markvörður
| Þróttar, varði virtist missa knöttinn
en náði honum áður en hann fór yfir
marklínuna. Á 22. minútu mistókst
tveimur Þrótturum að ná til knattarins
fyrir opnu marki eftir að Vikingsvörnin
hafði opnazt illa. Þá átti fyrirliði Þróttar,
Sverrir Brynjólfsson, stórgóða sendingu
á Halldór Arason, sem átti i baráttu við
Diðrik Ólafsson. Diðrik náði ekki til
knattarins, sama gilti um Halldór. hann
náði ekki að stýra knettinum i autt
markið, skaut framhjá úr erfiðri
aðstöðu. Á 43. mínútu átti Arnór
Guðjohnsen þrumuskot utan af kanti,
Rúnar hálfvarði, missti knöttinn aftur
fyrir sig en varnarmenn náðu að bjarga
á linu. Fyrri hálfleikur var þvi ákaflega
jafn, ekki mátti á milli sjá — og á
köflum þokkalegir sprettir beggja liða.
En það var engu líkara en leikmenn
beggja liða virtust sætta sig við jafntefli,
bæði lið vildu stig eftir slaka frammi-
íþróttir
stöðu undanfarið. Virtist sem leik-
menn hættu að spila — og leikurinn var
ákafiega slakur. Á 5. mínútu slapp mark
Vikings þó á furðulegan hátt, já
ótrúlegan hátt. Mikið þóf í vítateig
Víkings, lauk með lausu skoti að marki.
Varnarmaður náði að spyrna frá,
aftur út í markteiginn og aftur kom laust
skot og enn var bjargað, knettinum
sparkað i Diðrik Ólafsson og af honum
hrökk knötturinn naumlega framhjá,
hefði allt eins getað hafnað í net-
möskvunum.
Á 28. mínútu fengu Vikingar gott
færi. Gunnar örn komst inn i vítateig
Þróttar, eftir mistök varnar, en fast skot
hans sleikti stöngina utanverða. Það
stefndi þvi i jafntefli — sanngjörn úrslit i
slökum leik. Þróttarar höfðu þó aðeins
undirtökin, ef eitthvað var — og virtust
liklegri til að skora. En svo átti ekki að
verða. Rétt eins og i fyrri leik liðanna í
sumar, þó náði annað liðið að tryggja
sigur á síðustu mínútunum eftir að vart
hafði mátt á milli sjá. Þróttarar skoruðu
þá mörk á lokamínútum,— nú var röðin
komin að Víking, gæfan brosti við
Víking. Gunnar Örn tók aukaspyrnu frá
vinstri, sendi vel fyrir, beint á kollinn á
Heimi Karlssyni, sem sneiddi knöttinn
laglega i netið án þess að Rúnar, mark-
vörður kæmi vörnum við — Víkingar
fögnuðu, Þróttarar höfðu misst af
dýrmætu stigi.
Varnir beggja liða voru ákaflega
sterkar. Hjá Víking munaði mestu að
Róbert Agnarsson lék aftur af eðlilegri
getu. Var kóngur i sínu ríki og fátt fór
framhjá honum. Þá var Heimir Karls-
son öruggur og báðir bakverðirnir,
ásamt Diðriki í markinu. Vörnin hinn
sterki hluti Víkings — en í sumar hefur
einmitt vörn Vikings verið vandamál.
Hjá Þrótti var Jóhann Hreiðarsson
sterkur í vörn og þeir Sverrir Brynjólfs-
son og Þorvaldur Þorvaldsson góðir,
ásamt Úlfari Hróarssyni, en litill
broddur var í sókninni.
Róbert Jónsson dæmdi og fórst það
vel úr hendi.
H.Halls.
Tveir sterkir, Róbert Agnarsson i baráttu vió Halldór Arason. Róbcrt átti sinn bezta leik I sumar, greinilega aö ná sér upp úr
lægö er hann hefur verið i.
DB-mynd Bjarnleifur.
Tíu Súgfirð-
ingarkaf-
siglduUMFN
B-riðill
Il-dcild G-rióill, Stefnir—Njarðvík.
„Flotinn ósigrandi”, Njarðvlk-
ingarnir, gengu næst á land á ísafirði,
heimavelli Stcfnis. Hafi þeir nokkurn
tima búizt við auðunnum sigri, þá var
það að þessu sinni. Nokkrir helztu leik-
menn Stefnis voru ókomnir af landsmóti
UMFÍ, þar á meðal bæði aðal- og vara-
markvörður liðsins. Ekki bætti úr skák,
að eftir nokkrar minútur, meiddist einn
leikmaður Stefnis og varð að yfirgefa
völlinn. Þeir léku 10, svo til allan lcikinn,
þar sem ekki var neinn varamaður til
staðar. En Muhameð Safair, Egyptinn, I
liði Stefnis, hefur llklega litið á gestina
sem „Israela” og barðist eins og Ijón
allan lcikinn og skoraði hvorki meira né
minna, en þrennu, — öll mörkin I
leiknum. Um miðjan fyrri hálfleik
skoraði Muhamcð með kollspyrnu, eftir
að leikurinn hafði verið nokkuð jafn. í
scinni hálflcik sóttu Njarðvikingar mjög
stíft, cn heimamenn stefndu að sigri og
vörðust af mikilli hörku og dugnaði, en
Muhameð tókst vel að nýta tvær af fáum
skyndisóknum þeirra og skora tvö mörk
til viðbótar og hclminginn af þeim sex
mörkum sem UMFN-markvörðurinn
hcfur orðið að sækja i netið á sumrinu.
emm
III deild, ÍK—Stjarnan, 4:3 (1:3)
Miklar sveiflur voru i leik ÍK og
Stjörnunnar i Kópavogi um helgina.
Axcl Jónsson tók forustuna fyrir ÍK,
með marki úr vítaspyrnu, á 20. minútu.
En ekki lcið á löngu þar til Stjarnan jafn-
aði og var þar Siguröur Guðmundsson
að verki. Litlu síðar tekur Ingólfur Ing-
ólfsson af skarið og skorar fallegt mark,
2:1. Stjörnupiltarnir láta ekki þar við
sitja og Kristján Sigurgeirsson bætir
þriðja markinu við áður en blásið er til
hlés. Tveggja marka forskot í hálfleik
ætti kannski að duga, en liklega hafa
Stjörnupiltarnir verið full öruggir, cnda
bliknaði liðið heldur betur á fyrstu 10
minútunum. ÍK-ingarnir gerðu út um
lcikinn á þeim tima með þremur mörkum
I einum rykk, þar af skoraði Páll Krist-
insson tvö, hið fyrsta, og þriðja, en Ólafúr
Petersen annaö markið, en Axel Jóns-
son átti sinn þáttinn i þcim, mcð góðum
scndingum á réttum tlma. Eftir þessi
ósköp var sótt og varizt á báða bóga og
voru Stjörnu-piltarnir mjög nærri því að
jafna úr einni lotunni, en sá ágæti bak-
vörður Kristinn Guðmundsson bjargaði
á llnu. ÍK hefur mcð sigrinum þokazt
upp töfluna, en þeir ciga tvo leiki „inni”
fyrir vestan. Annað kvöld lcika þeir við
Njarðvfk og gætu með sigri ógnað þeim.
RR/cmm.
III-dcild, B-riðill, Bolungavík-Njarðvík,
0:2 (0:1).
Njarðvikingar gerðu strandhögg
vestur á fjörðum unt hclgina. Fyrst
herjuðu þeir á Bolungavfk og varð vel
ágengt. Bættu við sig tveimur stigum,
með jabt mörgum mörkum. Annars var
leikurinn frcmur jafn, — fast sótt á báða
bóga, en lotur UMFN, voru meira
afgcrandi. Um miðjan fyrri hálflcik,
skoraði Benóný Friðriksson, fyrra mark
UMFN, með glæsilcgri kollspyrnu.
Haukur Jóhannesson, marksækni
miðhcrjinn, gat svo ekki látið leikinn
cnda án þess að skora og þá sitt 11 mark
i 111-deild, cftir góða fyrirgjöf. Njarðvfk-
ingar misnotuðu einnig vftaspyrnu —
eða kannski öllu hcldur dómarinn, —
sem dæmdi markið ógilt, eftir að sá sem
skaut hafði fengið knöttinn aftur frá
markmanni, sem varði vftaspyrnuna,
Bolvfkingar sóttu mjög fast seinustu 15
minúturnar, en tókst ckki að skora.
emm
Staðan í 1. deild cftir 1—0 sigur
Víkings gegn Þrótti cr nú:
Valur II 110 0 32—5 22
Akranes 12 10 1 1 36—10 21
Fram II 6 1 4 14-13 13
ÍBV II 5 2 4 16-15 12
Vfkingur 12 5 1 6 19-22 II
Þróttur 12 2 5 5 15-18 9
FH 12 2 4 6 17-25 8
KA 12 2 4 6 9 '5 8
Kcflavfk 10 2 3 5 11 16 7
Breiðablik 11 1 1 9 4 -29 3