Dagblaðið - 25.07.1978, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLl 1978.
15
Dollý 1 ham á dansgólfinu. Hún saumaði búninginn sinn sjálf og er smátt og smátt
að viða að sér alls konar glingri til þess að bera við. Ef myndin prentast vel sést
„glimmer” í nafla Dollýjar og á kinnum. DB-mynd Ari.
„Hermi eftir
beljunum
í sveitinni”
— rætt við Dollý magadansmær
sem sigraði í danskeppni
á Kanaríeyjum,
dansaði í Hollywood, á Dalvík
Baulið í kúnum var lengi eina tónlistin
sem ég hafði til að dansa eftir. En það
nægði mér.
Svo i vor hafði ég orð á því við
Baldur Brjánsson töframann að mig
langaði til að dansa opinberlega. Ég
vinn núna sem fulltrúi Baldurs hjá
Héðni hf. Nú, hann kom mér á fram-
færi við Hollywood og hljómsveit
Stefáns P. sem ég ferðaðist með
norður. Það er sko fin grúppa. Mig
hefur alltaf langað til að dansa opin-
berlega, ég hef alltaf verið hálfgert
■dansfífl.”
— Hvers konar dans er þetta sem
þú sýnir?
„Þetta likist helzt magadansi. En
þetta er dans sem ég hef samið sjálf.
Þetta er bara eitthvað sem ég hef i
mér.”
Hver sem er
getur háttáð sig
— Þú ferð ekki úr fötunum?
„Nei, það geri ég ekki. Ég hef verið
beðin um það en alltaf neitað. Ég lit á
dansinn sem list. Ef ég færi úr fötun-
um þyrfti ég ekki að dansa, þá væri
nóg að sprikla eitthvað út í loftið. Ég
dansa til þess að dansa en ekki til að
ogHofsósi
„Beljurnar dilluðu sér svo flott að
ég fór að herma eftir þeim,” sagði
dansmærin Dollý þegar hún var spurð
um upphafið að dansferlinum. Dollý
heitir fullu nafni Droplaug Svavars-
dóttir og dansaði fyrir nokkru tvisvar í
Hollywood, auk þess sem hún kom
fram á Dalvík og Hofsósi. En hver er
þessi Dollý sem dansar einhvers konar
frumsaminn magadans?
„Ég er fædd í Reykjavik. En ég ólst
upp í Landssveit í Rangárvallasýslu.
Ég fór i barnaskóla þar og tók tvo
bekki í gagnfræðaskóla. Um aðra
menntun var ekki að ræða í sveitinni
nema Skógaskóla. Mig Iangaði til þess
að fara í hann en það vantaði vinnu-
kraft heima... Ég hef alltaf verið á kafi
í sveitastörfunum. Ennþá langar mig í
sveitina, sérstaklega á vorin. Ég var 18
eða 19 ára þegar ég kom til Reykja-
víkur. Ég hef reyndar farið heim síðan
en núna búa foreldrar minir hérna og
ekkert er austur að sækja.”
Ég hef alltaf
dansað
En hvenær byrjaði Dollý aðdansa?
„Ég hef alltaf dansað. Alveg frá þvi
að ég var smástelpa í flórnum heima.
sýna á mér skrokkinn. Það getur hver
sem er háttað sig fyrir framan fólk. En
það er erfitt að dansa. Ég þarf að æfa
mig heima ef ég á ekki að fá harðsperr-
ur eftir sýningar.”
— Er vel borgað að dansa?
„Þetta er svo sem ágæt viðbót. En
miðað við alla vinnuna sem ég legg í
þetta er kaupið ekki hátt. Ég get ekki
farið að heimta hærra kaup strax.”
— Velurðu sjálf tónlistina sem þú
dansareftir?
„Já. Bezt þykir mér að dansa eftir
arabískri tónlist. Og svo hef ég mjög
gaman af allri soul-tónlist. Sérstaklega
þó funky-soul.”
Lítið á böllin
— Fór ekki danselska heimasætan í
Landssveitinni mikið á böllin þar í
gamla daga?
„Nei, ég fór mjög sjaldan á 'böll.
Næstu stóru skemmtistaðir voru á
Hellu og Hvolsveli. í Brúarlundi og á
Laugalandi voru minni staðir. En ég
fór sjaldan þangað.”
— Þú hefur þá látið nægja að
dansa við kýrnar í stað þess að dansa
við stráka?
„Já, það er mjög gaman að dansa
við kýr, þær eru svo danselskar. Svo er
lika hægt að dansa við hunda. Það er
alls staðar hægt að dansa ef maður
vill”
Héldu að ég væri
dönsk eða ensk
„Það er allt öðru visi að skemmta
úti á landi en í Reykjavík. Fólkið á
Dalvík tók mér til dæmis alveg prýði-
„Ég hef alltaf verið hálfgert dansflfl.”
DB-mynd Bjarnleifur.
lega vel. Fyrst héldu allir að ég væri
dönsk eða ensk, Dollý er ekki beint ís-
lenzkulegt nafn. Þá æptu þeir á mig á
dönsku og ensku „farðu úr fötunum,
farðu úr fötunum”. Eftir að ég var búin
að dansa og fór að tala við fólkið á ís-
lenzku voru menn hins vegar fegnir
því að ég fór ekki úr, bara af því að
þeir sáu að ég var íslenzk. Það bókstaf-
lega datt af þeim andlitið.
1 Reykjavík hefur kvenfólk sýnt
töluverða fyrirlitningu. Það mælir mig
upp og niður með augunum og er ekki
beinlínis hlýlegt. Þær halda líka
margar að ég sé útlend og ég held að
þetta séekkert annað en illa dulin
öfund.”
Draumurinn var
að læra ballett
— Hefurðu eitthvað lært að dansa,
Dollý?
„Nei, ekkert nema af sjálfri mér. Ég
hef séð magadans í bíó og hermi eftir
honum. Hitt er bara upp úr mér.
Annars var það alltaf draumurinn
að læra ballett. Ég væri sjálfsagt
ennþá að því ef ég hefði byrjað. En í
sveitinni var hreinlega ekkert tækifæri
til þess. Það þótti mér verst.”
— Þú vannst nú samt danskeppni
úti á Kanaríeyjum, þrátt fyrir kunn-
áttuleysið?
„Já, blessuð vertu, það var nú allt í
DB-mynd Bjarnleifur
,Mig langar alltaf I sveitina öðru hvoru.
Þeir kunna sannarlega að meta Dollý, piltarnir sem hjá henni standa.
DB-mynd Ari.
gríni. Þetta var í grísaveizlu að keppt
var í dansi. Fólk frá’7 löndum var statt
í veizlunni og átti einn frá hverju
þeirra að koma og dansa. Krakkarnir
ýttu mér út á gólfið. Og ég vann.”
— Og hvenær dansar svo Dollý
næst?
„Bara þegar mér verður boðið. Ég
hef mikinn áhuga á að dansa viðar um
landið og einnig að koma fram oftar í
Reykjavik. En hvenær þetta verður....
Ég vildi ekki hafa dansinn sem aðal-
starf, en sem aukavinna er hann sú
skemmtilegasta sem ég veit um.”
- DS