Dagblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 14.11.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978. 11 SIGUR FRIÐRIKSI ISIGUR ÍSLANDS Sá einstæði atburður hefur nú gerst að íslendingur hefur hlotið kjör sem forseti Alþjóðasambands, sem telur milljónatugi innan sinna vébánda. Þrátt fyrir þrotlausa vinnu margra manna að undirbúningi þessa máls, standa menn nú kannski örlítið reik- andi, sem vonlegt er. Sigurinn kom nokkuð óvænt, þótt vonir væru heitar. Nú dynja spurningarnar. „Hvernig gat þetta eiginlega skeð, hvernig standa málin og hvers virði er þetta landi og þjóð? Eflaust eru syörin mörg og margvís- leg, en þegar Dagblaðið bað mig að svara þessum spurninguht varð ég reyndar tregur til. Ástæðan er augljós. Að minu mati ættu þeir að svara, sem við eldana sitja. En hvað um það, þrautseigja þeirra Dagblaðsmanna barmig ofurliði. I mínum huga á þetta langan að- draganda, sem hægt og bítandi þéttist að þessum glæsisigri. í þvi sambandi langar mig að taka spyrjandann með mér í snögga ferð um íslenzka skák- sögu og svara þannig, á þann eina hátt sem ég kann. Skáklistin hefur verið landlæg hér á landi frá ómunatíð.og í gullaldarbók- menntum okkar er víða getið gjörvi- legra skákmeistara, þótt litið sé um það vitað í dag, hvernig manntafl var þá leikið. Hin eiginlega skáksaga okkar getur þó varla talist hefjast fyrr en um síðustu aldamót. Um það leyti voru stofnuð fjölmörg taflfélög í landinu og fyrsta tímaritið um skák hóf göngu sina. Á þessum árum kom hingað fyrsti alþjóðlegi skákmeistarinn, blaða- maðurinn W. Napier. Hann hafði náð góðum árangri við skákborði, meðal annars hlotið annað sætið á alþjóðlegu skákmóti sem háð var í Buffalo, en Pillsbury sigraði. Á þeim árum vorum við þegar farnir að vekja athygli. Nægir þar að geta Magnúsar Magnús- sonar Smith, sem fluttist til Kanada og vann marga glæsta sigra við skák- borðið, og Björn Kalman fluttist einnig út og tefldi talsvert, en hann er af mörgum talinn fyrirmynd og hvati Stefáns Zweigs, er hann hugsaði upp smásöguna Manntafl. Hin eiginlegu millilandaskipti okkar við skákborðið hefjast ekki fyrr en 1925, sama ár og Skáksamband Íslands var stofnað. Þá tefldum við radioskák við Noreg og skömmu síðar við Dani. Fyrri keppnina unnu Íslend- ingar með 1 1/2-1/2 og sömuleiðis fór seinni keppnin. Við þessa sigra óx okkur ásmegin og nú var fariö að horfa til framandi landa með frekari dáðir i huga. 1930 tökum við fyrst þátt. í ólympíuskákmóti, og árið eftir kom A. Aljekin hingað og tefldi við okkur fjöltefli. Nú, fram streymir tíminn, en það varð ekki fyrr en 1939 að við vinn- um til verðlauna á erlendri grund. Þá hrepptum við forsetabikarinn fagra á ólympíumótinu í Buenos Aires, þar sem hin miklu tíðindi gerast nú. Erlendur f rami Til gamans væri að geta þess að einn af keppendum Islendinga á þessu móti, Guðmundur Arnlaugsson rektor, er eini lslendingurinn, sem komizt hefur í landslið erlendra þjóða, mér vitanlega. Honum var boðið að tefla með landsliði Dana á þessu sama móti. Áratugurinn 1940—50 er um margt merkilegur, þá koma fram ein- staklingar, sem kveða sér hljóðs á er- lendum vettvangi. Fyrstur í röðinni var Guðmundur S. Guðmundsson, en hann tefldi í Hasting 1946 og hlaut þriðja sæti með sex vinninga af níu mögulegum. Vakti þetta að vonum talsverða athygli. Baldur Möller gerði sér litið fyrir og varð fyrstur til sigurs á fjölþjóðamóti, er hann varð skákmeist- ari Norðurlanda 1948. Þetta afrek endurtók hann 1950 er hann vann Norðurlandamótið sem haldið var í Reykjavik og var þá jafnframt fyrsta fjölþjóðamótið sern haldið var hér á iandi. Fer nú atburðarásin að þéttast veru- lega. Friðrik Ólafsson er kominn til sögunnar og sigraði á Norðurlanda- mótinu 1953. 1954komast íslendingar í fyrsta sinn í röð fremstu skákþjóða heims er þeir tefla í A-riðli ólympiu- mótsins i Amsterdam. Á sama ári sigraði Friðrik argentínska skákmeist- arann Hermann Pilnik glæsilega í ein- vígi, 5-1, og strax um áramótin 1954— 55 verður hann ásamt V. Kortsnoi sigurvegari í Hastings á mjög sterku þingi. Með Friðrik eignumst við okkar fyrsta stórmeistara, og hann er sá eini okkar, sem komizt hefur í kandídatakeppni, en þar eru lokaátök- in fyrir heimsmeistaraeinvígið. 1957 komu hingað tveir sovézkir skákmeist- ióhann Þórir Jónsson fellur okkur í skaut. Hér sameinast frábær maður og frábær þjóð. Hvað er hægt að Hugsa sér betra? Eftir Friðrik bíða mörg vandamál úrlausnar, vandamál sem erfitt er.að leysa. Þar treystir hann á landa sína og ríkisstjórn til aðstoðar. Á undanförnum árum hafa pólitísk áhrif og afskipti aukizt til mikilla muna innan FIDE. Er svo komið, að á stundum eru það ekki skákmennirnir sem ráða ferðinni. Af mörgum ástæðum er þetta skiljanlegt, þótt það sé óviðunandi. 1 mörgum fjölménnustu aðildar- löndum FIDE rikir stjórnarskipulag, sem kallar á bein afskipti og skipulagningu æðstu stjórnvalda um skákmálefni jafnt og önnur. Þessar þjóðir eiga það til að senda pólitíska fulltrúa til fundarsetu FIDE fremur en Þurfum við i rauninni að hafa eitthvað upp úr krafsinu? Verður mér á að spyrja til baka? Með kjöri Friðriks höfum við fengið einhverja mestu viðurkenningu, sem hægt er að hugsa sér, og það er ekki. svo lítið. Nú er aðeins að standa sig og þá koma kannski nýir sigrar í kjölfarið. Þetta gæti verið fyrsta skrefið í þá átt að verða forystuþjóð í viðari skilningi. Okkur hefur verið talin trú um, að fyrir fámennt eyland eins og tsland, sem þó hefur yfir slíkum auðæfum að ráða, sé það lifsspursmál að vera til í umheimsvitundinni. Þannig telja margir, að landhelgissigrarnir hafi fengið gott veganesti með einvíginu 1972. Einvigið færði island inn i alla stærstu fjölmiðla heims, og í kjöffar DAGBUUm frjálst, nháð 4. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978 - 250. TBL. RITSJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGL' Karpov varð fyrstu með hamingjuóski] — þegar Ijóst var að Friðrik yrði næsti forseti Alþ jóðaska'ksambandsins „Mun beita mér fyrir einingu í sambandinu” sagði Friðrik í viðtali við Df Jú, þetta fylgi, sem ég hlaut i siöari kosningunum var aö sumu leyti óvænt en þó ekkí eins óvænt og úrslita- tölurnar i fyrri umferöinni,” sagöi Friðrik ólafsson i viðtali viö DB. „Ég vonast til aö geta axlaö þá ábyrgð, scm þessu kjöri fylgir. Ég er auðvitað mjög ánægöur með úrslitin,” sagöi Friörik. „Þaö óvænta i kosningunum var þaö, hversu litill munur var á okkur frambjóöendunum i fyrri umferðinni." Mendez frá Puerto Rico hlaut 31 at- kvæði en Friðrik 30. Gligoric rak svo lestina með aöeins eintí atkvæði minna en Friörik og var þar með úr leik. . „Við vorum ekki í þingsalnum meöan kosið var og taliö,” sagði Friörik, „heldur sátum við uppi i her- bergjum Mendez hér á Sheraton- Buenos Aires. Ég dreg ekki dul á þaö, að ég er ákaflega ánægöur meö úrsiitin. Ég geri mér grein fyrir því, að þau eru árangur mikillar vinnu margra manna. Ég þakka öllum þeim, sem studdu mic á þessari leið i forsetastól FIDE. Án þeirra væri þetta ekki orðinn veruleiki. Þaö hefur ekki alltaf verið friösælt i FIDE. Ég mun beita mér fyrir einingu i sambandinu og vinna skákinni þaö, sem ég get mcö styrk góöra manna. Ég býst viö þvi aö menn sjái á at- kvæðatölunum, aö kosningin ’ þannig út að hún gæti fariö hve sem var. Við Gligoric erum ka’ vanari aö tapa en Mendez minnsta kosti varö Mende; miklum vonbrigöum, en likast þvi aö vcra feginn aö ú komin, þótt hann biði lægri Gligoric haföi lýst þvi yfir, at^íSN myndi sjálfur styöja Friðrik, ef siT staöa kæmi upp, aö hann keppti ekki við hann um forsetastólinn Við þaö stóö hann og svo viröist sem Austur- Evrópufulltrúarnir hafi flestir gert það. Karpov, heimsmeistarí, varö fyrstur manna til að rísa úr sæti sinu og óska Einari S. Einarssyni forseta Skáksam bands Íslands mcö sigur Friöriks, þar ólafsson Ungfrú Inike Bakke? kjörin framkvæmdastjóri Federation Internationale des Echesc, eins og sambandiö heitir fullu nafni. Sveinn Jónsson aöstoöarbankastjóri Seðlabankans, var kjörinn gjaldkeri FIDE. Sveinn er viöskiptafræðingur. reklrar Tridritlv HIumuAu fkki o popptf. — miwiu o'ifyrMuJriuum um kjóruuiar \ln\ -hukslda arar og 1960 var haldið stórmót með erlendri þátttöku. 1 lok þessa móts kom Bobby Fischer hér fyrsta sinni en honum hafði verið boðið á stórmótið en kom of seint Ekki fór þó svo að hann tefldi ekki. Var slegið upp fjögurra manna móti, sem Fischer vann auðvitað. Það er þó ekki fyrr en 1964 að fyrsta eiginlega alþjóðlega skákmótið er haldið hér og þegar við vorum komnir á bragðið var ákveðið að halda alþjóðlegt skákmót annað hvert ár. Hefur svo verið síðan. Þetta sama ár eignuðumst við okkur annan titilbera, er Ingi R. Jóhannsson hlaut nafn- giftina alþjóðlegur meistari 1 skák. Margir eru þeirrar skoðunar að hann hefði hæglega getað bætt þeim stóra við, en hann lagði skákiðkun að mestu á hilluna eftir þetta, enda aðrir tímar en nú. 1970 eignuðumst við einn enn alþjóðlegan meistara, Guðmund Sigurjónsson, en siðar eftir langt hlé frá skákinni tók hann sig til og krækti i stórmeistaratitil. Mesti viðburður FIDE Árið 1972 verður hins vegar okkar stærsti skákviðburður og ef vitnað er í orð Gligoric þá segir hann á einum stað í framboðsbæklingi sínum, að heimsmeistaraeinvígið i Reykjavík 1972 hafi verið mesti viðburður í sögu FIDE. Skipulagning þessa einvigis þótti með slíkum hætti, að aðrar þjóðir fylltust lotningu. Þessi atburður varð til þess, að við vorum loks teknir í úr- valssveitir skákheimsins og af mörgum álitnir fremstir á þessu sviði, þ.e.a.s. að skipuleggja og halda mikla skák- viðburði. Alþjóðlegu mótin sem hófust 1964 voru forgrunnurinn að þessu áliti. Skákmeistarar heimsins sóttust eftir þátttöku hér og voru erlendis ótrauðirá lofið til Islend- inga fyrir mótshaldið. Heimsmeistara- einvigið 1972 var loka-hápunkturinn. Á þessu augnabliki vorum við líka orðin óumdeilanlega sterk skákþjóð og höfðum fram til þessa unnið Norður- landameistaratitilinn oftar en nokkur frændþjóð okkar frá 1948 og reyndar jafnoft og þær allar til samans. Viflmiðun vifl ísland Það er því eðlilegt að á þessu augna- bliki hefjist ákveðin viðmiðun erlendra þjóða við lsland hvað skák snertir. Við þetta bætist síðan að nú eigum við tvo stórmeistara, þrjá alþjóðameistara og síðast en ekki sizt heimsmeistara. Það er alveg ótrúlegt, hve jafn fámenn þjóð og einangruð hefur náð langt í þessari andans iþrótt. „Frábær maflur og f rábær þjófl" Þegar við horfum á kjör Friðriks Ólafssonar með hliðsjón af skáksögu okkar, stígandinni sem þar hefur átt sér stað og siðan frábærs árangurs hans sjálfs við skákborðið, fer vafalítið að skýrast hvers vegna slikur heiður skákáhugafólk. Það vill því tíðar brenna við, að önnur málefni og aðrar hliðar málanna lendi i brennidepli, fremur en þau sem eiga að vera til umræðú. Burt með pólitísk afskipti Viðhorfm mótast þá fremur af stefnu stjórnvalda viðkomandi þjóða en af hagsmunum skákhreyfing- arinnar. Þvi miður er FIDE ekki einu samtökin, sem svona er ástatt fyrir, en hér ætlar Friðrik að freista gæfunnar. Hann vill FIDE fyrir skákmálefni eingöngu. Burt með pólitisk afskipti. ! Hvernig til tekst við þetta mikilvæga verkefni getur framtíðin ein sagt um. Lausnin liggur ekki á einni hendi. Hér þarf samstöðu til. Nú, en mörg önnur viðfangsefni bíða. Fyrirkomulagið um 1 heimsmeistaraeinvígið hefur verið á tilraunastigi, og breytinga er þörf. Hvað um Fischer? Vafalitið fær Friðrik þar gnægð verkefna, þótt annað væri ekki um að ræða. En við skulum bíða með frekari vangaveltur í þessu sambandi, eftir Friðriki heim. Eitt er vist, að hér er um skemmtilegt en viðsjált verkefni að ræða, sannkallað stórmeistaraverkefni. „Hvað höfum við upp úr?" Nú, hvað höfum við svo upp úr krafsinu? frétta af því komu svo fréttir af landhelgisdeilunni. Bretar áttu því erfitt með að brjóta okkur á bak aftur með þvingunum og því síður að þeir gætu tekið okkur herskildi. Augljóst er því mikilvægi þeirra at- burða, er Friðrik náði kjöri sem forseti FIDE. Hann verður boðberi íslenzkrar menningar um heim allan, og tsland sem höfuðstöðvar FIDE verður 1 auknum mæli i heimsfréttum. Með þessum frábæra sigri höfum við jafnt og Friðrik fengið tækifæri. Tækifæri sem verður að nota. Við eigum að hlúa að þessum vaxtarbroddi eins og framast er unnt og þá er afraksturinn vís. Við skulum hafa 1 huga, að fjöl- margir ef ekki flestir forsetar framandi skáksambanda eru auðmenn og/eða miklir höfðingjar. Þetta eru menn er eiga í umtalsverðum viðskiptum. Það væri þvi ekki úr vegi að gera þeim „islenzka veizlu” á góðum degi. Hvei veit, hvað af því kynni að leiða, hver veit? Islenzkir skákmenn hafa nú svar- að áfrýjunarorðum Einars Benedikts- sonar í tslandsljóði: reisn I verki viljans merki, — vilji er allt, sem þarf. Þeim, sem vilja vaka og skilja, vaxa þásund ráð. Jóhann Þórir Jónsson ritstjóri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.