Dagblaðið - 11.12.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.12.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG. — MÁNUDAGIJR 11. DESFMBKR 1978. — 277. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022. Dekkjamálið að upplýsast: Tveir deildarstjórar af Vellinum í gæzluvarðhaldi Tveir deildarstjórar á Keflavíkur- flugvelli, báöir íslendingar, voru í gær úrskurðaðir í gæzluvarðhald allt til 2Ö. desember vegna gruns um aðild þeirra að „dekkjamálinu” svokallaða á Vell- inum. Aðrir menn, þeirra á meðal inn- flytjandi dekkjanna sem talin eru hafa horfið, voru í stöðugum yfirheyrslum um helgina. Hallvarður Einvarðsson, rann- sóknarlögreglustjóri ríkisins, sagði í samtali við DB i gær, að hann gerði sér góðar vonir um að málið væri að upp- allt frá þvi yfirstjórn hersins kærði málið föstudaginn 1. desember. Þá hefði hafizt gagnaöflun hjá ýmsum stofnunum og ýmis tölulegur saman- burður. Deildarstjórarnir tveir — yfir þeim deildum sem dekkin fara um — voru teknir til yfirheyrslu á laugardaginn og samdægurs var krafizt gæzluvarð- haldsúrskurðar yfir þeim. Að minnsta kosti verulegur hluti hjólbarðanna, sem saknað er i birgða- lýsast. Rannsóknin hefði staðið yfirj geymslum hersins á Keflavikurflug- velli, mun vera af tegundinni Mohawk, samkvæmt heimildum, sem DB telur nokkuð góðar. Mohawk-hjólbarðar eru bandarískir og a.m.k. verulegur hluti þeirra er fluttur inn af íslenzkum umboðsaðila, sem geymir birgðir sinar í Tollvöru- geymslunni í Reykjavík. Þegar birgðadeild hersins á flugvell- inum fær beiðni um hjólbarða er skrif- uð beiðni á þar til gert eyðublað. Séu þeir keyptir af birgðum umboðsins í Reykjavík, þarf að fá beiðnina stað- festa af islenzkum stjórnvöldum, þar ■sem þeir eru afgreiddir án þess að greiddir séu tollar eða önnur innflutn- ingsgjöld. Hinni staðfestu beiðni er svo fram- vísað við Tollvörugeymsluna. Sam- kvæmt henni eru hjólbarðarnir settir á lokaðan bíl og hann innsiglaður af toll- vörðum, sem fylgjast nákvæmlega meðafgreiðslunni. Innsiglið er svo ekki rofið fyrr en komið er með farminn á áfangastað, þ.e. birgðageymslur hersins á Kefla- víkurflugvelli. Þar er síðan talið af flutningabílnum inn á lager. Sé farið að settum reglum, eiga hjól- barðar ekki að geta horfið á leiðinni 'Tollvörugeymsla — Birgðadeild. Á Keflavikurflugvelli eru um 450 bifreiðir af ýmsum gerðum í eigu hers- ins. Sérstök deild annast viðhald þeirra. Þegar hjólbarða vantar á bíl, er skrifleg pöntun gerð til birgðadeildar og þar síðan afgreitt samkvæmt henni. Rannsóknin beinist að því, hvar og hvernig hjólbarðar geta horfið á þess- ari leið. -ÓV/BS Blygðuriar- laust áróð- ursrit gegn sannindum kristinnar trúar — sjá umsögn dr. Einars Sigurbjörns* sonar prófessors við guðfræðideild H.Í. um bókina Félagi Jesús bls. 6 og 7 „Allt ílagi, sveinki’’ Já, þeir eru komnir, jólasveinarnir, enda þrettán dagar til jóla, og nú koma þeir hver af öðrum alveg fram á aðfangadag. Það er allt i lagi hjá sveinka. Hann kom á jeppanum sinum og flaggar hér framan i Ijósmyndarann skoðunarvottorði fyrir ökutæk- ið sitt. Likiega geta ekki allir veifað sUku, jafnvel þótt þeir telji sig eitthvað annað og meira en jólasveina. DB-mynd Hörður Dómari skorinn upp — sjá fþróttir bls. 23 Fjármálaráðherra fær tillögurnar í dag 10-12 „rannsóknarmenn” fari á milli fyrirtækjanna Skattanefnd ríkisstjórnarinnar af- hendir fjármálaráðherra í dag tillögur sínar, sem miða meðal annars að mjög auknu skattaeftirliti. DB leitaði til Ólafs Ragnars Grímssonar, fulltrúa Alþýðubandalagsins í nefndinni, og staðfesti hann fréttina. Nefndin gerir 10 tillögur um hert eftirlit, auk til- -lagna um fjáröflun vegna fjárlaga og> „valkosta” í ýmsum efnum. Gert er ráð fyrir að ráða 10—12 „rannsóknarmenn" á skattstofurnar. sem fari út í fyrirtækin og athugi bók- hald. Skattrannsóknarstjóri á að fá lögregluvald hliðstætt rannsóknarlög- reglustjóra. Sérstök deild verði stofnuð hjá sakadómaraembættinu til að fjalla um skáttamál og verður það vísir að skattadómstól. Nafnlausar banka- bækur verði bannaðar. Bankar gefi sjálfkrafa upplýsingar um allar vaxta- greiðslur. Miðstjórnarvald ríkisskatt- stjóra verði aukið. Þá verði auðvelduð óg flýtt meðferð skattamála fyrir dóm- stólum. „Hátekjur" við 6 milljónir fyrir barnlaus hjón Ólafur Ragnar sagði, að áfram yrði haldið þeirri eignarskattsálagningu, sem fólst í bráðabirgðalögunum i sept- ember. Þó yrði sérstök ivilnun gefin lífeyrisþegum. Tekjuskattar yrðu lækkaðir á lág- tekjufólki með breytingum á skattvísi-: tölu og sjúkratryggingagjaldi, sem mundi nema 3 milljarða tekjutapi hjá ríkissjóði samtals. Á móti kæmi, að þeim skyldusparnaði, sem verið hefur, yrði breytt í hátekjuskatt meðal ann- ars með nýju 50% skattþrepi. Há- tekjuskatturinn kæmi til sögunnar við um 6 milljóna brúttótekjur hjá barn- lausum hjónum að meðaltali, sagði Ólafur, þótt það færi auðvitað eftir mismunandi frádrætti, því að hug- myndin er ekki að leggja á brúttóskatt. Sérstakt gjald verður lagt á skrif- stofu- og verzlunarhúsnæði, annað en matvöru- og nýlenduvöruverzlanir, liklega 1—2% af fasteignamati. Þetta á að gefa um milljarð, sem kann að renna til dagvistunarstofnana og elli- heimila. Flugvallarskattur verður sennilega hækkaður um 2000 krónur, sem renni til endurbóta á öryggisbúnaði flug- valla. Þá leggur nefndin fram „valkosti” af ýmsu tagi sem hugmyndir en ekki tillögur, meðal annars um fjárfesting- argjald. ',HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.