Dagblaðið - 11.12.1978, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 11.12.1978, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978. 17 Vetrartízkan: Hlébarðaskinn og himinháir hælaskór Hlébarðaskinn er nú að komast í tizku og þá í samkvæmisfatnað. Ef þú ert dugleg að sauma og getur fengið hlébarðaskinn i metravís, ættirðu að sauma þér buxur, vesti, hálsklúta eða kápu og þá ert þú klædd samkvæmt nýjustu tízku. Ef þú ert há og grönn er reglulega smart að vera I hlébarðabuxum og vesti við, en ætlazt er til að maður sé ekki i neinu undir vestinu. Einnig ef þú vilt ganga i jakka eða frakka úr hlébarðaskinni, þá er mjög smart að hafa svart leðurbelti í mitt- inu, eins og sést á meðfyIgjandi mynd. Þeir sem ekki vilja vera doppóttir frá toppi til táar geta vissulega fengið sér skó úr hlébarðaskinni og í stíl við það verið í svörtum kjól með hlébarða- skinn framan á ermum og í mittinu, með klút um hálsinn og tösku í stil. Þegar við klæðum okkur upp og ætlum að fara eitthvað og vera fín verðum við lika að hugsa um skótauið. Það eru margar hugmyndir um skófatnað ef þú getur hugsað þér að ganga i himinháum hælum, en þannig skó er hægt að nota jafnt við síðbuxur og annað. Nýjustu ballskórnir eru örmjóir, með háum hæl og ails kyns böndum og spennum. Þó að hávetur sé eru sandalarnir vinsælastir, það er að segja þegar farið er út að skemmta sér. Sandalarnir eru vissulega af mörg- um gerðum, en þeir eru þó vinsælastir þessir mjóu með háa hælnum. Fyrir þær sem eru það háar að þær bera ekki svo hælaháa skó fást líka sætir lágir sandalar, en þeir likjast meira ballett- skóm, með lítilli slaufu framan á ristinni. Sandalar með mjóum böndum og himin- háum hælum eru nú hvaö vinsælastir og þá jafnt við siðbuxur sem pils og kjóla. Creda Enskur antik arinn FLÖKTANDI RAFLOGINN EYKUR HLÝJU HEIMIL* ISINS Creda Tau- þurrkarar 3 GERÐIR 2 STÆRÐIR 20 ÁRA FARSÆL REYNSLA Hlébaröa-doppur frá toppi til táar, eða bara tilhcyrandi, við svartan kjól, t.d. Hugmyndirnar eru margar. NAUÐSYNLEGT TÆKI Á NÚTÍMA HEIMILI SKOÐIÐ ÞESSI FRÁBÆRU TÆKI HJA OKKUR — SÍMISÖLUMANNS18785 RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H/F ÆGISGÖTU 7 - SÍMAR17975 OG 17976. rnað HeilSa Loksins á isiandi 21. okt. voru gefin saman I hjónaband af séra Birni Jónssyni i Keflavikurkirkju ungfrú Anna Gústafsdóttir og Tryggvi Ingvason. Heimili þeirra er að Faxa- braut 16, Keflavik. Ljósmyndastofa Suðurnesja. Margar tegundir sjónvarpstækja á einum stað. Eigum meðalannars eftirtaidar tegundir: HITAGHI Japönsk 20” 448.000.- Salora Finnsk 22”-26" Verðfrá 454.200.- Luxor ® Swedish Quality Luxor — Sœnsk 22”-26” Verð frá 446.000.■ Japönsk 18”-20” Verð jrá 390.000.- ITT ITT— V-þýzk 20”-22”-26” Verð jrá 445.000 SPARIÐ SPORIN Verzlið þar sem úrvaiið er. Látið fagmenn leiðbeina ykkur. SJÓNVARPSMIÐSTOÐIN 14. okt. voru gefin saman af séra Ólafi Oddi Jónssyni i Keflavíkurkirkju ungfrú Sólveig Karlotta Andrésdóttir og Agnar Breiðfjörð Þorkelsson. Heimili þeirra er að Háteig 2lA, Keflavík. Ljósmynda- stofa Suðurne-ja. MIÐSTÖÐ SJÓNVARPSVIÐSKIPTANNA NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ ERUM ISIÐUMULA 2 SÍMINN OKKAR ER 39090.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.