Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 1
h 4. ÁRG. — FIMMTLDAGUR 14. DESEMBER 1978 — 280. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.-AÐALSÍMI 27022. r 7 Menn geta unnið milli jóla og nýárs Stjórn- inni bjargað „Það sýnir sig á ríkisstjórnarfundi á eftir, hvernig málin standa,” sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í viðtali við Dagblaðið í morgun. „Það þarf þolinmæði til þess að vinna í svona ríkisstjórn, en ég hef ekki trú á öðru en samkomulag verði um þessi mál.” Ólafur kvaðst efast um að hægt yrði að ganga til umræðu um fjárlaga- frumvarpið á morgun, föstudag, eins og áætlað hafði verið, „það á eftir að ff ff — segir Ólaf ur Jóhannesson um af greiðslu f járlaga ganga frá ýmsu og prenta,” sagði Ólaf- ur. „Hvort fjárlög verða samþykkt fyrir jól skiptir engu máli, menn geta unnið milli jóla og nýárs, enda ekki of- góðir til þess á fullum launum.” Þingflokkur Alþýðuflokksins sam- þykkti i gærkvöldi, að ráðherrar flokksins skyldu ganga frá skattamál- unum í viðræðum við hina stjórnar- flokkana og reyna að pota málefnum Alþýðuflokksins áfram. Þetta var túlk- að svo, að þingflokkurinn styddi í aðal- atriðum þá málamiðlun sem ráðherrar flokksins höfðu samþykkt í gær. Einn þingmaður Alþýðuflokksins sagði í morgun, að hann teldi sig og aðra þingmenn flokksins hafa óbundnar hendur í afstöðu til einstakra þátta fjárlagafrumvarpsins. Ólafur Ragnar Grímsson (AB) sagði í morgun, að Tómas Árnason fjár- málaráðherra hefði í gær komið mjög til móts við tillögur Alþýðubandalags og Alþýðuflokks. Santkomulagið væri mjög viðunandi. 1 lauslegu samkomulagi ráðherra flokkanna er gert ráð fyrir hækkun vörugjalds úr 16% í 18% en ekki 20% eins og Tómas Árnason hafði lagt til. Skattvísitalan, sem ræður um skatt- leysismörk, verður 150 stig, en Al- þýðubandalag og Alþýðuflokkur höfðu lagt til, að hún yrði stigi hærri. Sjúkratryggingagjald lækkar úr 2% i 1,5% á lágum tekjum. Lagður verður skattur á skrifstofu- og verzlunarhús- næði annað en matvöru- og nýlendu- vöruverzlanir, en Tómas Árnason var áður andvígur þessum skatti. Breyt- ingar verða á fyrningareglum, þannig að skattar á fyrirtæki hækka. Tómas Árnason hafði einnig staðið gegn þessu. Skipulagsgjald og flugvallar- skattur hækka. Eins og DB hefur áður skýrt frá, kemur 50% skattþrep nú á hæstu tekjur einstaklinga og 65% hjá fyrirtækjum i samræmi við tillögur skattanefndarinnar. -HH/HP Dekkjamálið: 5 játa hjól- barðasvikin „Þetta er nokkuð vel gengið upp og játað af hálfu allra, sem hlut áttu að máli,” sagði Hallvarður Einvarðsson, rannsóknarlögreglustjóri ríkisins, i samtali við DB í morgun um „dekkja- málið”á Keflavíkurflugvelli. Enn sitja tveir nienn í gæzluvarð- haldi vegna málsins. deildarstjóri og fulltrúi í birgðadeild, en þriðji maður- inn — sem einnig er deildarstjóri — losnaði úr haldi á mánudagskvöld. Fimm menn hafa viðurkennt svik in, þ.e. að hafa fengið greitt fyrir um 1800 hjólbarða án þess að þeir hafi nokkru sinni verið afgreiddir til hers- ins. Augljóst virðist, að hagnaður þeirra hefur verið verulegur. Sé reikn- að með lágmarksverði á hverjum hjól- barða, um 15000 krónur, þá hafa feng- ist um 27 milljónir fyrir þessa 1800 hjólbarða. Hallvarður vildi i morgun engar tölur nefna í þessu sambandi. ÓV. Karl og Þor- steinn fóru til La Louviere — Skagamenn fá greidslur, Kef Ivík- ingar senda leikmenn og þjálfara sér að kostnaðarlausu —sjá íþróttir ' gær var gengið frá samningsuppkasti milli Karls Þórðarsonar og La Louviere. Bjarnleifur Bjarnleifsson Ijósmyndari DB var þar að sjálfsögðu. Hér er Kari ásamt Heiman, framkvæmdastjóra La Louviere, og föður sinum, Þórði Jóns- Jólasveinninn minnir okkur á að nó er um að gera að drifa i þvi að kaupa jóla- gjafir, þvi stutt er til jóla. En hann minnir lika á að það er ekki verðið scm skipt- ir máli, heldur hugurinn að baki gjöfinni. Hcimatilbúna gjöfin frá yngsta heimil- ismanninum verður ef til vill sú dýrmætasta. DB-mynd Bjarnleifur. Sextán síður um jólagjafir í dag Jólagjafahandbókin fylgir blaðinu i dag. 1 henni getur að líta yfir 200 hug- myndir að ódýrum og góðum jólagjöfum, því miður fer það tvennt þó ekki allt- af saman. Við höfum flokkað þær gjafir sem við fundum niður í sex flokka, gjafir fyrir minna en 1500 krónur, gjafir handa börnum 0—6 ára, gjafir handa börnum 7—12 ára, gjafir handa táningum, gjafir handa henni og gjafir handa honum. Jólagjafahandbókin er ekki auglýsing fyrir þá sem selja vöruna heldur þjón- usta DB við lesendur sina. Jólagjafahandbókin erá bls. 17—32. DS.. Brauzt BBBBBF ógnaði með hnífi og stal Rannsóknarlögreglan Ieitar nú manns, sem sl. laugardagskvöld brauzt inn í ibúð hjá ungu fólki i miðborg Reykjavíkur, stal þar pen ingum og ógnaði heimilisfólkinu með hnífi. Ekki er fyllilega Ijóst hver öll málsatvik voru. Heimilisfólkið þekkti ekki manninn, enda reyndi hann að gera sig torkennilegan. * Hávaxta- stefnan fallin Frumvarpið um hávexti, sv»- nefnt raunvaxtafrumvarp, virðist falliðá Alþingi. í fjárhagsnefnd stóðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins með Alþýðu- bandalaginu að þvi að leggja til, að frumvarpið yrði fellt. Alþýðu- flokksrnenn voru einir á báti fylgj- andi frumvarpinu. Gcir Hallgrimsson (S) hafði þó í þingræðu lýst stuðningi við „meginstefnu” frumvarpsins, en hann var ofurliði horinn i þing- flokknum. Var fulltrúum flokksins þar falið að túlka afstöðu þing- flokksins, sem þeir gerðu með and- stöðu við frumvarpið. Sjálfstæðismenn lögðu svo til, að bankarnir réðu sjálfir vöxtuni sinum en ekki Scðlabankinn og bann við verðtryggingu almennt yrði numið úrgildi. -HH ✓ V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.