Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. Fisksölur erlendis skapa atvinnuleysi víða um land í lok siðasta mánaðar voru skráðir 644 atvinnulausir i landinu en i lok október var tala atvinnulausra hins vegar 370. Þetta kemur fram i skýrslu er - félagsmálaráðuneytið hefur sent frásér. Skv. þessari skýrslu virðist sem hlut- fallslega sé tala atvinnulausra hæst i Grundarfirði en þar voru 49 skráðir atvinnulausir um mánaðamótin. Á Sauðárkróki var einnig mikið at- vinnuleysi en þar var 51 á skrá um mánaðamótin og á Siglufirði voru 56 atvinnulausir. í höfuðborginni voru alls 149 skráðir atvinnulausir. Dagblaðið hafði samband við nokkra þá staði þar sem atvinnuleysi var mikið eftir þessari skýrslu að dæma og kom þá í Ijós að mjög erfitt er að henda reiður á hið raunverulega atvinnuleysi þar sem það stendur stundum ekki nema í einn eða tvo daga. Til dæmis er enginn atvinnulaus núna í Grundarfirði. Atvinnuleysi þetta sem fram kemur i skýrslu félagsmálaráðuneytsins var mjög timabundið að sögn Árna Emils- sonar sveitarstjóra. Atvinnuleysið mun hafa verið þannig til komið að togarinn hafði siglt utan með aflann og komið til atvinnuleysisskráningar I frystihúsinu af þeim sökum. En á sama tima vantaði fólk annars staðar í bænum. Svipaða sögu er að segja af Siglufirði. Þar voru 56 á atvinnuleysis- skrá um siðustu mánaðamót en daginn eftir var sú tala komin niður I 4. Að sögn Bjarna Þórs Jónssonar bæjarstjóra hafði vinna legið niðri hjá Sigló-síld vegna þess að þeir voru búnir að vinna upft í samninga en nú er vinna hafin þar á nýjan leik. Bjarni sagði að karlmenn hefðu allir nóg að gera en lítil yfirvinna væri i frystihúsinu. Á Sauðárkróki erú nú 29 at- vinnulausir en voru 51 um mánaða- mótin. Togararnir hafa siglt töluvert utan með aflann upp á síðkastið, en eru nú farnir að landa á nýjan leik og heldur bjartara framundan. 1 Grindavík er ástandið hins vegar mun dekkra. Þar eru þó ekki nema 22 á skrá, en álitið að þeim fari fjölgandi á næstunni þar sem búið er að loka tveim hraðfrystihúsum. íslenzkur fiskur kominn á uppboðsstað á bryggju f erlendri höfn. Á Akranesi eru nú 24 á at- vinnuleysisskrá, mestallt konur en frystihúsið Heimaskagi er lokað í desember. Á Eyrarbakka eru nú aðeins 3 á skrá, en voru 32 um mánaðamótin, en þá stöðvaðist frystihúsið I smátíma vegna hráefnisleysis. Þannig virðist ástandið heldur hafa skánað a.m.k. í bili á mörgum þcim stöðum. þar sem atvinnuleysi var mest um mánaðamótin. Atvinnuleysisdagar i nóvembcr voru 9.058 en til samanburðar má geta þess að þeir voru 4.346 i október. GAJ Fjallað um réttar stöðu leigjenda —áfundiíkvöld Ragnar Aðalsteinsson hrl. flytur i kvöld kl. 20.30 erindi, „Um réttarstöðu leigjenda”, á fundi sem Leigjendasam- tökin efna til i Norræna húsinu. Þar verður auk þess gefið yfirlit yfir starf Leigjendasamtakanna i sumar og haust og starfshópar kynntir. Að loknum fyrirlestri verða fyrir- spurnir leyfðar og geta menn þá borið upp vandamálsín. Ástandið á hinum almenna leigu- markaði hefur í haust verið með versta móti. Er því talin mikil þörf á efldri starfsemi og virkari þátttöku leigjenda i samtökum sínum, en meðlimir sam- takanna, sem stofnuð voru í vor, eru nú á 3ja hundrað. -ASt. Ragnheiðarstaðametið var þá ekki met: Tók upp kartöflurnar með jólamatnum á aðfangadag Jónas Jónasson, bóndi á Bæjar- skerjum á Miðnesi, hafði samband við blaðið vegna fréttar fyrir skömmu þess efnis að gulrætur hefðu verið teknar uþp'á Ragnheiðarstöðum í Flóa allt fram I desember, og væri liklegast einsdæmi að jarðávextir héldust svo lengi heilir í jörðu. Sagði hann að eitt góðærið fyrir all nokkrum árum hafi þau hjónin geymt skák úr einu kartöflubeðinu alveg fram að jólum. Á aðfangadagskvöld hafi hann farið út í kartöflugarð og tekið upp fyrirtaks kartöflur, sem borðaðar hafi verið með góðri lyst meðjólamatnum. Freistaðist hann til að reyna þetta aftur næsta ár, en þá frusu kartöflurnar og ónýttust. G.S. MEIRA skApa 0G HILLU SAMSTÆÐUR Verð frá kr. 431.490.- GLÆSILEGT BORÐSTOFUSETT MEÐ 6 STÚLUM. Greiðsluskilmálar Staðgreiðsluafsláttur Seljum litið gölluð sófaborð á mjög hagstœðu verði. Á.GUÐMUNDSS0N HÚSGAGNAVERKSMIÐJA SKEMMUVEGI4 - SiMI 73100 MEIRA BORÐSTOFU- SETT Verð aðeins SÖFABORÐ hnota* Verðfrákr. 66.000. kr. 399.500.- Verzliö hjá jramleiöanda SPIRA SVEFN- BEKKUR Hentug jólagjöf. Verð kr. 63.800.-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.