Dagblaðið - 21.05.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. MAÍ1979.
9
Erlendar
fréttir
Danmörk:
Lögreglunni
þótti Anker
Jörgensen
grunsamlegur
Lögreglan í Kaupmannahöfn ætlaði
ekki að láta neitt fara úrskeiðis við
heimsókn Elísabetar af Bretlandi til
borgarinnar. Fengu lögreglumenn því
ströng fyrirmæli um að hafa auga með
öllum grunsamlegum mönnum.
Ungur lögreglumaður einn danskur
ætlaði heldur ekki að láta sitt eftir
liggja þar sem hann var á verði við
komu Elísabetar drottningar. Skyndi-
lega sá hann mann einn sem virtist vera
að reyna að komast að þar sem Margrét
drottning var ásamt öllu stórmenninu.
Lögreglumaðurinn ungi var fljótur
til og stöðvaði manninn og spurði hann
hvert hann væri að fara. Maðurinn
brást heldur önugur við en um síðir
kom í ljós að hann sagðist heita Anker
Jörgensen og vera forsætisráðherra.
Taldi hann sig eiga erindi þangað sem
stórmennin voru. Eftir skamma hríð
leiðréttist málið, danski forsætisráð-
herrann fékk að halda áfram en ekki
fara sögur af lögreglumanninum unga
og áhugasama.
Kínverjar hætta
við kjamorkuver
—eftir slysið við Harrisburg ætla þeir að einbeita sér að vatnsaf Isvirkjunum
M
Geng Biao varaforsætisráðherra Kína
og Ola Ullsten forsætisráðherra
Svíþjóðar skála fyrir nýjum fimm
ára viðskipta-
samningi á milli landanna.
Kínverjar ætla ekki að reisa fleiri
kjarnorkuver en þegar hafa verið
reist. Er ákvörðun þessi tekin í ljósi
þeirrar reynslu sem fékkst við slysið í
kjarnorkuverinu við Harrisburg í
Bandaríkjunum í fyrra mánuði.
Einn varaforsætisráðherra Kína
hefur verið í opinberri heimsókn í
Svíþjóð undanfarið. Sagði hann að
Kínverjar ætluðu að einbeita sér að
frekari nýtingu vatnsaflsins fremur
en kjarnorkunnar. Tvennt væri það
sem einkum væri fundið kjarnorku-
verunum til foráttu. í fyrsta lagi
væru þau dýrari í rekstri en áður
hefði verið reiknað með. í öðru lagi
hefði áhættan við þau verið mun
meiri en áður var talið. Vísaði vara-
forsætisráðherrann, Geng Biao,
meðal annars til reynslunnar í orku-
verinu við Harrisburg, sem bilaði í
fyrra mánuði.
í hei'msókninni til Svíþjóðar gekk
kinverski varaforsætisráðherrann frá
fimm ára viðskiptasamningi milli
landanna. Sagði hann að Kínverjar
hefðu meðal annars mikinn áhuga á
að kaupa ýmsar fullkomnar vélar og
tæki til iðnaðarframleiðslu frá
Svíþjóð. Þar er til dæmis talið að
ýmis tæki til vatnsorkuvera séu inni-
falin. í staðinn ætla Svíar að kaupa
vörur framleiddar af léttaiðnaði
Kínverjar, sem þegar er allþróaður.
Til að flýta fyrir kaupum Kínverja
hafa Svíar boðið þeim lán upp á 1,5
milljarða sænskra króna.
Kínverski varaforsætisráðherrann
bauð sænsku konungshjónunum og
forsætisráðherra landsins Ola Ullsten
I heimsókn til Kína við fyrsta tæki-
færi.
Ceausescu
í heimsókn
til Spánar
—fyrsti kommúnistaleiðtoginn sem
það gerir—viðurkenning á vaxandi
sambandi Spánar við Austur-Evrópu
Nicolae Ceausescu, forseti
Rúmeníu, kemur í dag í opinbera
heimsókn til Spánar. Er hann fyrsti
þjóðhöfðingi Austur-Evrópu sem
það gerir. Heimsóknin mun taka
fimm daga og er litið á hana sem
viðurkenningu á batnandi og vaxandi
sambúð Spánverja og kommúnista-
ríkjanna i Austur-Evrópu. Hafa þau
smám saman farið í vöxt eftir dauða
Francos einræðisherra Spánar árið
1975 og lögleyfingu kommúnista-
flokks landsins til að starfa opinber-
lega.
Ceausescu mun bæði ræða við
Juan Carlos konung Spánar og
Suarez forsætisráðherra. Meðal þess
sem rætt verður um er væntanleg
öryggis- og samstarfsráðstefna
Evrópuríkja sem haldin verður í
Madrid á næsta ári. Haft hefur verið
eftir rúmenska forsetanum að hann
telji að á þeirri ráðstefnu eigi að ein-
beita sér að afvopnunarmálum.
Ceausescu forseti, sem í mörgum
málum hefur tekið aðra stefnu en
leiðtogarnir í Moskvu, hefur að sögn
haldið því fram að höfuðmarkmiðið
ætti að vera að draga úr fjárframlög-
um til hernaðarþarfa og koma öllu
herliði á brott af erlendri grundu
svo fljótt sem auðið væri.
Þjóðarleiðtogarnir munu einnig
ræða um ýmis viðskiptamál en við-
skipti hafa aukizt mjög að undan-
förnu á milli Spánar og Rúmeníu.
Fullkomin, falleg ogvönduð
£5*^ á frábæru verði
x
CS-I
COSlfsj^
*
Verö með standard íinsu og tösku:
49.900.- Auto winder
44.000.- Linsa: 28 mm. 2,8
48.100.- Linsa: 135 mm. 2,8
58.400.- Linsa: 200 mm. 3,5
127.200.- Linsa: 35-105 mm. 3,5
151.200.- Linsa: 70-210 mm. 3,5
CS-1
meö 50 mm. f 1,7 MC
CS-3
meö 50 mm. f 1,7 MC
143.350.-
156.800.
0
COSIINIA
SJONVARPSBUÐIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SÍMI 27099