Dagblaðið - 21.05.1979, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1979.
vandaóaðar vörur
Rafsuðuvelar
Ódýrar, handhægargeröir.
Oliufélagiö ^\T7\
Skeliunqur hf \__r
Shell
Heildsölubirqðir:
Smavorudeild Sími: 81722
Hmtesbf 400
PLASTPOKAH
O 82655
fflfnHTi
vandaðaðar vörur
Sambyggt
hleðslu- og
rafsuðutæki
Ódýrar, handhægargerðir.
Shell
Olíufélagið
Skeljungur hf
Heildsölubirgðir:
Smávörudeila Sími: 81722 I
KASSA-
BÍLA-
RALLY
SKÁTA
26. og 27. maí
FRÁ HVERAGERÐI
TIL
KÓPAVOGSHÆLIS
Tilstyrktar
mtmönnum
Kópavogshœlis
Markmiöiö er
að kaupa fólks-
flutningabílfyrir
vistmenn Kópavogshœlis
TEKIÐ Á MÓTI
FRAMLÖGUM Á
GÍRÓREIKNING
63336-4
Tónlist i sumarfríinu
Listahátíðir sumarsins í Evrópu
Nú er genginn i garð sá tími sem
menn nota ti! ferðalaga eða afslöpp-
unar erlcndis. Ferðaskrifstofur kepp-
ast við að auglýsa sól og hóglífi suður
við Miðjarðarhaf og sennilega gera
margir ekki meiri kröfur til frídaga
sinna. En til er fólk sem vill ekki að-
eins flatmaga og baka sig, heldur
reynir að njóta þeirra menningarvið-
burða sem finna má úti í löndum og
hér hafa heyrst raddir sem kvarta yfir
því að ferðaskrifstofurnar sinni þeirri
hlið ekki sem skyldi. DB hefur nú
komist yfir upplýsingar um tónlistar-
hátiðir í Evrópu á komandi sumri og
hér á eftir verður stiklað á stóru, en
þó reynt að kynna þær tónlistarhátið-
ir sem kynnu að verða á vegi íslenskra
ferðalanga.
Austurríki
Þar er um einar fjórar meginhá-
tíðir að ræða — Vínarhátíðina (19.
maí—24. júni) Carinthiu sumarhátið-
ina (27. Júní—28. ágúst), Bregenz
listahátíðina (I9. júlí—22. ágúst),
Haustlistahátíðina i Graz (6. okt,—
11. nóv.) og loks þá hátíð sem þekkt-
ust er, þ.e.Salzburgarhátiðin (26.
júlí—30. ágúst). Þar verður eitthvað
fyrir næstum alla. Karajan stjórnar
flutningi á Aida eftir Verdi, Karl
Böhm stjórnar Adriane auf Naxos
eftir Strauss, James Levine stjórnar
Töfraflautu Mozarts og hljómsveitir
á borð við Vinarfílharmóníuna,
Boston-sinfóníuna og ísraelsku sinf-
óniuna halda tónleika. Meðal hljóm-
sveitarstjóra eru Claudio Abbado,
Leonard Bernstein, Riccardo Muti og
Seiji Ozawa. Söngvarar eru þar ekki
af verri endanum: Kiri Te-Kanawa,
Martti Talvela, Dieter Fischer Diskau
og hljóðfæraleikarar ekki heldur:
Henryk Szgerny, Sviatoslav Richter
og Maurizio Pollini. Miðar munu
kosta frá fimm þúsund krónum upp
i 35 þúsund.
Bretland
í Bretlandi er að finna fjölda lista-
hátíða á hverju sumri, þ.á m. Mal-
vern hátíðina (21. maí—10. júní),
Glyndebourne óperuhátíöina (27.
mai—7. ágúst). Llandaff listahátíö-
ina í Wales(8.—19. júní), Aldeburgh
hátíðina (8.—24. júní), Greenwich
hátiðina (9.-24. júní), Chichester
hátíðina (7.—21. júlí), Welska
söngvahátíðin — Eisteddfod (30.
júli—13. ágúst), Swansea hátíðina
(1.—20. okt.) en meöal þeirra vin-
sælustu er Cheltenham hátíðin (6.—
15. júlí). Þar verður lögð áhersla á að
kynna breska samtímatónlist, m.a.
eftir Gordon Crosse og Malcolm
Arnold. En stærst þessara hátíða er
að sjálfsögðu Edinborgarhátíðin (19.
ágúst—8. sept.) Þar verður haldið
sérstaklega upp á dánarafmæli ball-
ettfrömuðarins Sergei Diaghilev með
flutningi óp>erunnar Gullfuglinn eftir
Rimsky Korsakov og mörgum ball-
ettsýningum konunglega ballettsins
og kúbanska ballettsins. Seji Ozawa
stjórnar Boston sinfóníunni og
pólska kammersveitin leikur. Meðal
ópera verða La Traviata eftir Verdi,
Iphgenia in Tauris eftir Cluck og The
Turn of the Screw eftir Britten.
Meðal tónlistarmanna verður öll
Rostropovisch fjölskyldan, Peter
Pears, James Galway, Janet Baker
o.fl. Leikhópar koma þangað frá
Traverse leikhúsinu, Old Vic í
Bristol, Glasgow Citizens Theatre,
leikhúsi í Tiblisi og Cori á Italíu.
Danmörk
í Tívolí í Kaupmannahöfn verður í
sumar haldið upp á 100 ára dánar-
afmæli danska ballettmeistarans
August Bournonville með sýningum
Konunglega danska ballettsins frá
24.—29. ágúst. Þar mun m.a. Peter
Martinus, sem er með New York
ballettinum, dansa aðalhlutverk.
Miðar munu kosta frá 3500— 7000
krónur og ættu menn að bóka sæti
með góðum fyrirvara. Kaupmanna-
hafnarsumarhátíðin verður haldin
frá 1. júli— 17. ágúst, þá verða alls
kyns hljómleikar haldnir um borgina
alla, þ.á m. jass, rokk o.fl. Þessir
hljómleikar eru ókeypis að mestu. í
Árhúsum verður svo mikið um að
vera frá 1. til 9. sept. — jass, rokk,
leikrit og ljóðalestur.
Finnland
1 Finnlandi er um einar 9 hátíðir að
ræða í sumar. Kuopio hátíðin
stendur frá 4.—14. júní og er öll
áhersla þar lögð á ýmiss konar dans.
1 Jyvaskyla verður haldin hátíð frá
26. júní—5. júlí. Þar verða sovéskir
hljóðfæraleikarar auk þess sem
haldin verður ráðstefna um verk
Alvars Aalto fyrir áhugamenn um
arkitektúr. í Savolinna verður tals-
vert mikið að gerast dagana 8.-26.
júli. Flutt verður ópera Verdis Don
Carlos með Martti Talvela o.fl. —
bæði á finnsku og ítölsku. Aðrar
óperur þar verða Töfraflauta
Mozarts og Síðustu freistingarnar
eftir finnska tónskáldið Kokkonen.
Þar mun hetjubassinn Talvela syngja
við undirleik Ashkenazy, Drengja-
kórinn frá Hanover syngur, Helsinki
kammermúsíksveitin flytur verk, svo
og Finnski útvarpskvintettinn. 22.
júlí mun svo óperusöngsveitin og
hljómsveitin flytja Requiem eftir
Verdi í Olavinlinna kastala. Miðar
eru frá 1000 kr. upp í 8000 krónur.
Fyrir jassunnendur fer svo Posi jass-
hátiðin fram frá 12. til 15. júlí . Þar
eru 24 hljómsveitir á dagskrá, 11 frá
Finnlandi, 12 frá Bandaríkjunum og
restin er frá öðrum löndum. f Kaust-
inen fer fram Alþýðulistahátíð 16.—
22. júlí, með tónlist, dansi o.fl. í
Kuhmo fer fram tónlistarhátið 27.
júlí—5. ágúst og er hún að mestu
helguð Beethoven en í Turku er
megináhersla lögð á forna tónlist
(4.—9. ágúst). Orgeláhugamenn geta
drifið sig til Lahti (6.—12. ágúst) þar
sem spilað verður í kirkju eftir Alvar
Aalto, auk fyrirlestra, sýninga o.fl.
En Helsinki listahátiðin er sú stærsta
þar í landi. Allar helstu hljómsveitir
borgarinnar munu leika, Zubin
Mehta mun stjórna fsraelsku fíl-
harmóníunni með Isaac Stern. Þarna
verður útvarpshljómsveitin austur-
ríska, Franz Lizt kórinn, I Solisti
Veneti, Beaux Arts Tríóið, La Salle
Kvartettinn og Alvin Ailey danshóp-
urinn. Auk þess verða margar listsýn-
ingar o.fl.
Frakkland
í Frakklandi ber kannski mést á
Parísarhátíðinni, sem stendur til 7.
október. Þá verða tónlistarviðburðir
i nær öllum kirkjum og sölum borg-
arinnar út sumarið. í Chartres verður
einnig stíft prógramm i allt sumar,
m.a. i hinni frægu dómkirkju staðar-
ins, cn þar verður Te Deum eftir
Charpentier flutt. Franskir tónlistar-
menn sjá að mestu um tónlistina.
Lyons listahátíðin stendur frá 7.
júní—7. júli. Þar verða ballett og
ópera á dagskrá og meðal gesta má
nefna Maurice Béjart og Xeqakis. í
Strassburg (8.-24. júní) stjórnar
Karl Richter kór og hljómsveit í dóm-
kirkju staðarins. Seji Ozawa er þar
einnig á ferð og stjórnar útvarps-
hljómsveitinn frönsku og meðal ein-
leikara má nefna Lazar Berman. í
Aix-en Provence er talsvert mikið að
gerast frá 15. júli til 6. ágúst. þar
flytja menn Brúðkaup Fígarós og
Werther eftir Massenet. í St. Sauveur
dómkirkjunni flytur St. Martin-in-
the-Fields hljómsveitin og kór Sköp-
unina eftir Haydn og fjöldi einleikara
treður upp á hátíðinni. í Paris fer
fram dálítið sérstæður festival 16.
júlí—23. september. Þar sýnir
Bolshoi ballettinn, verk Jerome
Robbins verða flutt og Teresa Berg-
anza og Pinchas Zukermann troða
upp. Síðan munu Harlem
Globetrotters taka þátt í ballett (alveg
satt . . .) og í óperunni verða fluttar
Nabucco eftir Verdi og Brúðkaup
Fígarós eftir Mozart. í Orange
nálægt Aix-en-Provence fer fram
tónlistarhátíð 3.—11. ágúst og í
Besancon dittó (31. ágúst—16. sept.).
Þar eru á dagskrá m.a. Seji Ozawa,
Rostropovitsch fjölskyldan, Jorg
Demus og svo Miriam Makeba.
V-Þýskaland
Þar má nefna t.d. Wúrzburg Moz- .
art vikurnar svokölluðu frá 6.—23.
júní. Þar verður Mozart að sjálf-
sögðu á dagskrá og aðalóperan er
Don Giovanni, en fjöldi frábærra
þýskra tónlistarmanna sér um flutn-
ing allan. Mozart-aðdáendur geta
líka farið til Augsburg (8.—13. júní)
en þar eru flestir tónleikar helgaðir
meistaranum. Þar er Don Giovanni
aftur á dagskrá. Miðar kosta frá
800—3500 krónur. í Passau fer fram
hátið með svipuðu sniði frá 15. júni
til 4. ágúst. Þar er Mozart á dagskrá
ásamt austurevrópskum tónlistar-
mönnum. 1 Hanover (17. júní—19.
ágúst) er margt að gerast. Ópera
Brittens Turn of the Screw verður
flutt svo og Júlíus Sesar eftir Hándel.
Mikið verður um ballett þar svo og
kórsöng. .í’ívlúnchen láta þeir ekki sitt
eftir liggja (9. júlí—3. ágúst). Þar er
Wagner fyrirferðarmikill með Meist-
arasöngvurunum sem m.a. eru
sungnir af Dietrich Fischer Diskau.
Fluttur verður Paradísarmissir eftir
Penderecki og margar aðrar óperur
með frábæru listafólki, þ.á nt.
Monserrat Caballé, Placido
Domingo, o.fl. i Hamborg beina þeir
sviðsljósinu að ballett (10.—21. júlí).
Þar verða ballettar eftir Balanchine,
Cranko og Jerome Robbins fluttir og
loks verður sérstök Nijinsky hátíð til
heiðurs ballettfrömuðinum Diagh-
ilev. í Bayreuth er Wagner að sjálf-
sögðu allsráðandi (25. júlí—-28.
ágúst). Þar er allur Hringurinn á dag-
skrá, auk Lohegrins, Hollendingsins
fljúgandi og Parsifals. Miðar munu
kosta frá 2500 krónum upp í 28.000
krónur. í Ansbach verður meistari
Bach hins vegar heiðraður (27. júli—
5. ágúst). Þar verður flutt m.a. Matt-
heusarpassían, Goldberg variasjón-
irnar, svo og kórsöngur frá Ítalíu og
Englandi. Miðar munu kosta frá 800
krónum upp í 8000 krónur. Berlinar-
litahátíðin er af mörgum talin mesti
listaviðburður ársins í landinu. Hún
fer fram 2. sept,—5. okt. Þar verða
frumfluttar tvær óperur og þrír ball-
ettflokkar troða upp: Stuttgart ball-
;ttinn,Konunglegidanskiballettinn og
spænski balleuinn. Aðrir listamenn
viðstaddir verða Lorin Maazel,
Cleveland sinfóniuhljómsveitin.Diet-
rich Fischer Diskau, Zubin Metha,
Herbert von Karajan og Leonard
Bernstein. Á pianóið leika Arturo
Benedetti Michaelangeli, Maruzio
Pollini, o.fl. Donaueschingen hátiðin
(19. okt.—21. okf.) er dálítið sérstaks
eðlis. Þar verður eingöngu frumfiutt
ný tónlist eftir allra þjóða höfunda.
Kvikmyndir verða sýndar og unnið
verður með elektróníska tónlist og
jass.
Seinna i.vikunni mun DB síðan
birta siðari hluta þessa yfirlits, um
tónlistarhátíðir í Grikklandi, Irlandi,
Ítalíu, Luxemburg, Hollandi,
Noregi, Spáni og Svíþjóð.
Tónlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON