Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981. DB á ne ytendamarkaði Fcllitjaldið frá Tjaldborg er dýrasta tjaldið i Tómstundahúsinu. Það er reist á örfáum sekúndum en þess utan fer litið fyrir þvi. súlum en hin tjöldin. Það kostar 1368 krónur. Fimm til sex manna tjald kostar hins vegar 1612 krónur. Ef keypt er tjald með yfirsegli hækkar verðið nokkuð. Þannig fer tveggja manna tjaldið upp um 569 krónur. Segl á 5 manna tjald kostar 1067 krónur og fer verðiö á seglunum allt upp í 1525 krónur. Seglið þarf svo sem ekki en sé það sett yfir tjaldið lekur það enn síður, hægt er að geyma matinn undir skör seglsins og eykst þannig rýmið í tjaldinu og tjaldið verður hlýrra. Á sum tjöld er hægt að fá kant sem settur er framan við þannig að aukið geymslurými skapast án þess að himinn sé yfir öllu tjaldinu. Slikur kantur kostar 344 krónur á 5—6 manna tjald. Það sem við á að óta Þegar inn í tjaldið er komið er ekki allt búið. Ekki leggjast menn á bera jörðina og breiða yfir sig teppisræfil. Æ algengara verður að hafa svamp- dýnur undir svefnpokunum sem menn stinga sér í. Vindsængur hafa líka þótt gjaldgengar sem undirlög og óneitanlega fer minna fyrir þeim á ferðum en dýnunum. Svampdýnur með áklæði sem er stamt viðkomu, þannig að menn renna ekki til á þeim, kosta 272 krónur. Venjulegur íslenzkur svefn- poki kostar 544 krónur. Hægt er að renna saman tveim slikum pokum. Sérstakir jöklapokar, sem eru hlýrri en hinir venjulegu, kosta svo 610 krónur. Pokarnir eru íslenzkir, frá Bláfeldi. Dýnurnar eru frá Tjald- borg. Tvíbreið vindsæng kostar síðan 283 krónur. Þeir sem mikið ferðast segja það ekki síðra að hafa með sér góða sæng en svefnpokann. Sé sofið á svampdýnu þarf ekki lak til þess að sæmilega fari um fólk. Með því að nota sæng sparast peningarnir sem annars fara í svefnpoka. En hversu gott sem tjaldið er og hversu góður sem svefnbúnaður er er enn kalt í tjöldum á íslandi. Til eru sérstakir hitarar til þess að hita tjöld og kosta þeir 336 krónur. Þeir eru fylltir gasi á bensínstöðvum. Prímus- ar til þess að hita matinn kosta svo 244 krónur þeir miiinstu og einföld- ustu og 467 krónur þeir sem kveikja sjálfir á sér. Gasfylling i þá kostar 137 krónur. Eitt á eftir að nefna enn. Það eru töskur eða körfur með diskum úr plasti, hnífapörum ogglösum. Til eru slíkar töskur fyrir fjóra sem kosta 198 krónur og fyrir sex sem kosta 245 krónur. Dýr myndi Hafliði allur Þegar aUt er lagt saman er engin smáupphæð sem út kemur. Ef allt það ódýrasta er keypt handa tveim, en þó ekkert látið vanta, kostar þetta 3025 krónur. En sé hins vegar allt hið dýrasta keypt fer upphæðin upp í 8925 krónur. Þarna munar gífurlega miklu. Mestu munar auðvitað á verði tjaldsins. Gera má ráð fyrir að verð í öðrum búðum sé eitthvað breytUegt frá þess- ari, sumt dýrara og annað ódýrara. En þetta ætti að gefa lesendum örlitla hugmynd um á hverju þeir geta átt von. -DS. Fjórir verðlaunahafar Neytendasíðunnar Lokið hefur verið við að draga vinningshafa mánaðarlegra verð- launa okkar á neytendasíðunni úr nöfnum þeirra sem taka þátt 1 heimil- isbókhaldinu með okkur. Að þessu sinni eru verðlaunahafarnir fjórir, en við áttum eftir að veita verðlaun fyrir desember, janúar, febrúar og marz. — Nöfn þeirra, sem við drógum út, voru þessi: Jóhanna Harðardóttir, Kópavogi, Viktor Guðmundsson, Vogum, Björn St. Lárusson, Reykjavik, og Anna Jensen, Reykjavík. — Verð- launaveitingin sjálf hefur ekki farið fram og skýrum við frá henni þegar þar að kemur. Nú er um að gera að vera duglegur og skrifa allt niður sem keypt er, fylla síðan út veggspjaldið góða og af því er skrifaö inn á mánaðarlega seðilinn sem okkur er sendur. Við erum ekki alveg búin að reikna marz út en birtum hér aprílseðilinn. Seðillinn fyrir marz var birtur of seint hjá okkur og ædum við ekki að brenna okkur á sama soðinu tvisvar. Hvetjum við fólk til þess að taka þátt í heimilisbókhaldinu meö okkur. Það er áreiðanlega til mikilla hags- bóta og án efa einnig til spamaðar. Fyllið meðfylgjandi seðil út og sendið okkur sem allra fyrst. A.Bj. af þeim erlendu. Þau voru úr þynnra efni sem hreinlega rifnaöi f roki, lak f rigningu og sprakk í frosti. En þar sem von er á öllum þessum tegundum af veöri, jafnvel um hásumarið, er þetta ekki nógu gott hér. Islenzku tjöldin eru gerð fyrir þessar aðstæður og þykja að minnsta kosti þeim í Tómstundahúsinu þau miklu betri. Tjöldin kosta frá 876 krónum og alveg upp í 6113 krónur. Ödýrasta tjaldið er 2 manna tjald án yfirsegls en það dýrasta er fellitjald sem er til- tölulega nýtt á markaðnum. Þarna á milli má til dæmis nefna 2 manna göngutjald sem er meö mun léttari Þegar sumra tekur hugsa margir sér gott til glóðarinnar að fara i úti- legur og liggja í tjaldi. Menn komast i tengsl við náttúruna, hlusta á fugla- sönginn og lækjarniðinn og anda að sér hreinu lofti. Okkur lék hugur á því að vita hvað kosta myndi fyrir fjölskyldu að leggja upp í útilegu án þess að eiga fyrir neitt sem til þess þyrfti. Með öðrum orðum ef kaupa þyrfti tjald, svefnpoka, dýnur eða vindsængur, prímusa og jafnvel hita- tæki og diskasett. Viö litum inn í Tómstundahúsið og fengum afskap- lega elskulega stúlku til þess að sýna okkur þessa hluti. fslenzktjöld bezt Tómstundahúsið verzlar nú ein- göngu með íslenzk tjöld frá Tjald- borg og er það vegna slæmrar reynslu Viðlegubúnaður á þrjú til níu þúsund krónur Rögnvaldur Guðbrandsson hreiðrar þarna um sig 1 svefnpoka frá Bláfeldi á dýnu frá Tjaldborg. DB-mynd Bj.Bj. UpplýsingaseðiU til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplýsinganúðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskvldu af sömu stærð og vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- læki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í marzmánuði 1981 Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö Alls kr. kr. EB VIh\\ SKERA A SKOTUSEUNN LANGS- UM EN EKKIÞVERSUM Á dögunum hringdi til okkar kona og spurði hvemig ætti að hantéra og matreiöa skötusel. Sonur hennar, sem er sjómaöur, haföi gefið henni skötusel og baö um að fá hann mat- reiddan næst þegar hann kæmi í land. Við vissum í rauninni ekki svar við þessari spurningu en þar sem Hótel Holt er þekkt að því aö hafa á boðstólum margvíslegar „annarleg- ar” fisktegundir hringdum við í yfir- matreiðslumann hótelsins, Ingvar H. Jakobsson, og spurðum hann hvernig ætti að matbúa skötusel. Ingvar sagði að flaka ætti fiskinn og taka allar himnur vel af. Síðan á að skera fiskinn langsum, en ekki þvert á, eins og gert er við aðrar fisk- tegundir. Þessum litlu flökum er síðan vafið saman í litlar rúilur og samskeytin látin snúa niður. Rúliurn- ar eru soðnar í 6—7 mín. (eftir að suðan kemur upp). Á Hótel Holti er skötuselurinn jafnan soðinn upp úr frekar þurru hvitvíni og rjóma og síðan er búin til sósa úr soðinu. Við hin, sem verðum að „sniöa okkur stakk eftir vexti” og höfum ekki efni á hvítvíns- og rjómasósu, verðum að láta okkur nægja t.d. hoUenzka sósu frá Toro eða Knott. Einnig er hægt að steikja skötusel- inn. Þá á að skera þvert yfir hrygg- inn, stykkjunum er velt upp úr krydduðu hveiti. Síðan eru þau brún- uð vel í smjöri og steikt, krydduð að vUd hvers og eins. En takið eftir. Ingvar tók það skýrt fram að steikja ætti fiskinn í smjöri. Annað dugir ekki! Sannast bezt að segja höfum við ekki prófað skötuseUnn að neinu marki í tilraunaeldhúsinu okkar en hyggjumst gera það fljótlega. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.