Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 27
27 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ1981. Útvarp Sjónvarp D \ DALLAS—sjónvarp kl. 21,15: Vinsælasti myndaflokkurinn sem hefur verið framleiddur —fjallar um geysiauðuga og volduga f jölskyldu sem einskis svíf st í f jármálaviðskiptum Myndaflokkurinn Dallas hefur göngu sina í sjónvarpinu í kvöld. Sjálfsagt hafa lesendur flestir heyrt minnzt á hann áður því hann hefur verið sýndur víða um heim og vakið mikla athygli. Áttatíu sjónvarps- stöðvar eru með Dallas á dagskrá og er talið að um 400 milljónir manna, tíundi hluti mannkyns, fylgist með honum. í Bandaríkjunum einum er talið að 40 milljónir manna sitji fyrir framan sjónvarpið þegar Dallas er rennt í gegn á föstudagskvöldum. Dallas fjallar um geysiauðuga og volduga fjölskyldu í Texas, Ewing- fjölskylduna. Það er engin tilviljun að þessi fjölskylda skuli vera auðug því meðhmirnir setja fátt fyrir sig þegaj gróðavon er annars vegar. Svik og prettir eru þau ráð sem gjarnan eru notuð til að auðgast. ' ' ' '*■! S ' ' ,V.N| Heimill hinnar vellauðugu Ewing-fjölskyldu. Stórstirnið í Dallas myndaflokkn- um er Larry Hagman, 49 ára gamall, giftur og tveggja barna faðir. Móðir hans, Mary Martin, er stórt nafn á Broadway en faðir hans, Ben, var lögfræðingur í Texas og flestum brögðum kunnur. Foreldrarnir skildu þegar Larry var fimm ára gamall svo fram á táningsaldur var hann ýmist í heimavistarskólum eða þá að tjalda- baki i leikhúsum. Á sextánda ári ákvaö hann að setjast að hjá föður sínum í Weatherford, Texas, en Ben var þá i framboði til öldungadeildar. Larry var skipaður bílstjóri og fékk svo sannarlega tækifæri til þess að kynnast heimi þeirra er einhvers máttu sín í Texas. Telur hann misk- unnarleysi það og eigingirni, er fram kemur i hlutverki hans, J.R. Ewing, vera hreinasta barnaleik samanborið við þá hluti sem hann varö vitni að í þá daga. Þetta hefur hann hagnýtt sér óspart í J.R.-túIkun sinni; er blið- mæltastur þegar honum gengur hið versta til og viröist aldrei heiðarlegri en þegar slægðin er að baki. Larry Hagman hefur leikiö ýmis minni háttar hlutverk í kvikmyndum en var þó eftirminnilegastur í The Group. Einna þekktastur mun hann vera hérlendis fyrir hlutverk sitt í Dísu, sem sjónvarpið sýndi á sínum tima, auk þess lék hann í The Edge of Night um tveggja ára bil. Hagman var orðinn heldur lang- leiður á bragödaufum hlutverkum þegar honum barst handritið að Dallas sem honum þótti mikið til koma, eða eins og hann sjálfur kemst að orði: „Það var ekki ein einasta viðkunnanleg manneskja í því. Jafn- vel móðirin var fráhrindandi. Ég var orðinn leiður á verkefnum þar sem allir voru elskulegir, hlýir og notaleg- ir.” Túlkun Hagman á J.R. hefur gert hann gulls ígUdi fyrir aðstandendur Dallas-þáttanna enda gætti hann sín á því að endurtaka ekki mistökin sem honum urðu á í Disu en þar fékk hann ekki neinn ágóða fram yfir um- samið kaup. Þegar í ljós kom hversu vel Dallas ætlaði að ganga fór stjarn- an einfaldlega i verkfaU og harðneit- aði að snúa aftur til vinnu fyrr en hann fengi stærri og vænni bita af kökunni. Það tókst með miklum ágætum og aðferðum sem hefðu verið J.R. til sóma. Þýtt og endursagt úr Tirne. F.G. Larry Hagman i hlutverki J.R.Ewing. ------------- Larry Hagman: Stórstimið í Dallas Fjölskyldufaðirinn, Jock Ewing, fjandseminni eins og vera ber með lagðigrunninnaðfjölskylduauðnum. rótgrónar hefðir. J.R. ber fána Ew- Hann og félagi hans, Digger Barnes, inganna en Cliff, hálfbróðir Pam, sköpuðu í upphafi mikinn auð og bögglast við að koma honum fyrir efniviðurinn var olía. Vináttan og kattarnef og þaö af virðingarverðri samvinnan fóru veg allrar veraldar en þrautseigju. Ewing tókst að sölsa undir sig me.st Cliff, sonur Diggers, er lögfræð- af fjármagninu. Ekki bætti ú: að ingur að mennt. Hann vinnur að því hann hirti konu af Barnes í leiðmni, að kanna viðskipti Ewing-fyrirtækis- Ellie, sem Barnes hafði unnað af eins ins í þeirri von að geta upplýst sak- heilum hug og honum var auðið. næm athæfi. Þannig vonast hann til Fjörutíu árum síðar var Ewing Oil að geta hefnt föður síns sem lenti í orðið mikið og öflugt bákn og Ellie klóm Bakkusar. og Jock Ewing höfðu aukið kyn sitt J.R. Ewing, potturinn og pannan í um þrjá syni. J.R. (Larry Hagman) Ewing-veldinu, er mjög kaldrifjaður tók við stjórn fyrirtækisins úr náungi sem svífst einskis. Virðist sem höndum toðu. síns sem dró sig í hlé. ekkert mannlegt sé til i honum. Enda J.R. átti sér fyrir eiginkonu fyrrver- hata allir, sem horfa á Dallas, þennan andi fegurðardrottningu Texas, Sue J.R. Hatrið er svo mikið að Larry Ellen. Miðsonurinn, Gary, reyndist Hagman hefur fengið ótal líflátshót- til lítils nýtur annars en eignast heldur ^nir M sjónvarpsáhorfenH ótraustvekjandi dóttur, Lucy. Yngsti sem lítinn mun /irðast gera á r un sonurinn, Bobby, sýndi það fádæma vt r jikammi og því Ieikna. skilningsleysi á viðteknar fjölskyldu- Sjónvarpið hefur keypt 29 þætti af hefðir að taka sér fyrir eiginkonu Dallas en þegai hafa verið framleidd- Pamelu, eða Pam, dóttur erkifjand- ir á milli 80 og 90 þættir. Mynda- ans og fyrrverandi vinarins, Digger flokkurinn er talinn sá vinsælasti sem Barnes. Énda lendir vesalings konan hingað til hefur verið gerður í heimin- milli tveggja elda því tveir efnilegir un en á eftir honum að vinsældum hafa nú tekið að sér að viðhalda koma Prúðu leikararnir. -FG/KMU. BIAÐIÐ óskar eftir að ráða: Bókasafnsjrœðing til starfa við heimildasafn ritstjórnar. Starfssvið: Dagleg umsjón með heimildasafni, flokkun og skráning á filmum, Ijósmyndum, úrklippum og bókum, upplýsingaþjónusta og heimildaleitir. Aðstoðarmann til starfa við heimildasafn ritstjórnar. Starfssvið:Vélritun, röðun á safnefni, afgreiðsla o.fl. Upplýsingar um fyrri störf og menntun sendist Dag- blaðinu fyrir 10. maí nk. merkt „Safnvörður”.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.