Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ1981. Erlent Erlent Erlent Erlent VILTU NA ÞÉR í EINA RÍKA? —rasaðu ekki um ráð f ram áður en þú kannar alþjóðlega hjónabandsmarkaðinn Blanca Jagger. Agnetha FlUtskog. Brigitte Bardot. Christina Onassis. Barbara Carrera. Dewi Sukarno. Marisa Berenson. Hérlendir piparsveinar ættu aö athuga vel sinn gang áður en þeir festa ráð sitt. Það hefur nefnilega komið i ljós að veröldin er full af ríkum ógiftum konum. Það er því vissara að rasa ekki um ráð fram og kanna stöðuna á alþjóðlega hjóna- bandsmarkaðnum áður en menn lenda í annarri hnappheldu. Til leiöbeiningar fyrir áhugasama piparsveina er rétt að nefna nokkrar ríkar sem enn ganga lausar. En rétt er að hafa hraðan á því margir eru um Karólina prinsessa. hituna. Ef þér lizt ekki á útlitið mundu þá eftir heimanmundinum. Við getum byrjað á Christinu Onassis. Hún er kannski ekki neitt sérstakt augnayndi en eftir að hún skiidi við Sergei sinn leitar hún aö hjásvæfli og manni til þess aö eyða skipamilljónunum með. Það ætti ekki að væsa um þig á einhverri grískri eyju með strá í glasi. Donna Summer. Nú, en sættirðu þig ekki við Christinu má benda þér á eina aust- ræna, Dewi Sukarno. Hún átti hinn gengna forseta Sukarno í Indónesíu. Arfurinn eftir forsetann ætti að gera þér ævidagana létta. En betra er að kunna hrafl í frönsku ef þú ætlar þér að fara á fjörur við hana því hún býr við bjarma eðalsteina i heimsborg- inni. Þegar hugurinn hefur reikað til Frakklands kemur önnur rik upp í hugann. Hún var líka faileg, a.m.k. hér á árum áður, þó eitthvað kunni að vera farið að slá í kroppinn. Brigitte Bardot ætti ekki að vera svo slæmur félagi og þú gætir liklega fengið að skoða einhverjar af gömlu myndunum hennar. En treystirðu þér alls ekki til þess að tjá þeirri ríku ást þína á frönsku má benda þér á nokkrar sem tala ensku. Þú ættir að klára þig á því og ef þú verður taugaóstyrkur í návist hennar má benda þér á gamalt ráð. Þú getur skrifað I love you inn í lóf- ann og notað það síðan í tíma og ótíma. Af þeim enskumælandi má nefna Donnu Summer eða Marisu Beren- son. Þú ættir að fínna þær i Banda- ríkjunum ef þú leitar vel. Þar eru einnig fleiri vel loðnar um lófana, þ.e. í óeiginlegri merkingu. Sjón- varpsstjarnan Barbara Walters er á lausu, svo ekki sé minnzt á Biöncu Jagger. Hún hafði nokkrar milljón- irnar út úr Mick kallinum Jagger, hinum varaþykka rolling. Sértu höfðingjasinnaður eins og vænta má af íslendingi, sem af Nor- egskonungum er kominn, þá sakar ekki að nefna það að fráskilin prins- essa gengur laus. Karólina prinsessa af Mónakó er álitlegt konuefni. Einu sinni var til Karólínuklúbbur hér á landi og ættirðu að ná þér í upplýs- ingar um tilgang þess klúbbs. Poppsinnuðum piparsveinum má benda á fjórðung sænsku hljóm- sveitarinnar ABBA. Það væri í anda norrænnar samvinnu að hugga Agnethu Faltskog. Hver veit nema hún gæfi þér Volvo. Viljirðu ná í Barböru Carrera ætt- irðu aö hafa hraðan á þvi gríski skipakóngurinn Niarchos er sagður hafa hug á henni. Það má því vera viturlegt að eyða ekki tímanum í hana en hugleiða hina kostina betur. V Carlos Reutemann er ef stur í Formula 1 Grand Prix „Gamlinginn” Carlos Reutemann frá Argentínu hefur forystuna í Formula 1 Grand Prix kappakstrinum. Hann varð þó að láta sér nægja þriðja sætið I San Marino keppninni á sunnu- daginn. Hann ók Williams bíl sínum 60 hringi (302 kilómetra) á einni klukku- stund, 51 mínútu og 46.86 sekúndum. — Sigurvegari varð Brasilíumaðurinn Nelson Piquet á Brabham. Hann lauk keppninniá 1:51:23.97. Piquet, sem er 28 ára gamall, átti lengst af i harðastri baráttu við Ferrari ökumennina Gilles Villeneuve og Didier Pironi. Þeir lentu i erfiðleikum vegna bleytu og urðu að láta sér nægja fimmta og sjöunda sætið. „Þetta var erfið keppni, en ég hafði heppnina með mér,” sagði Piquet er hann kom í mark. „Allt frá upphafi var Pironi hraðskreiðari á beinu köfl- unum. Mérgekk beturíbeygjunum.” Tímar fimm efstu manna í San Marino urðu þessir: 1. Nelson Piquet (Brasilia) Brabham 1:51:23.97 2. Riccardo Patrese (Ítalía) Arrows 1:51:28.55 3. Carlos Reutemann (Argentína) Williams 1:51:46.86 4. Hector Rebaque (Mexikó) Brabham 1:51:46.86 5. Didier Pironi (Frakkland) Ferrari 1:51:49.84 A0 fjórum umferðum loknum er staðan í heiras- meistarakeppninni þessi: stig Carlos Reutemann 25 10. DidierPironi 2. Nelson Piquet 22 Rene Arnoux 2 3. AlanJones jg EddleCheever 2 4. Riccardo Patrese io 13. Andrea de Cesaris 1 5. Alain Prost 4 Jacques Laffite 1 6. Hector Rezaque 3 Patrick Tatnbay 1 Mario Andretti 3 Elio de Angells 3 Marc Surer 3 Didier Pironi varð að láta sér nægja fimmta sætlð eftir góða keyrslu framan af. Carlos Reutemann frá Argentinu er efstur i Formula 1 helmsmeistarakeppninnl.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.