Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 95
Þar er allmikið af krækilyngi og er það mest allt dökk-rauð-
brúnt á lit en virðist þó vera lifandi a.m.k. ennþá. Mosinn
er svipaður útlits og norður af Pétursey, mikið er af fléttum
víða á aurunum og virðast sumar tegundirnar mikið
skemmdar t.d. fann ég fjallagrös sem allt niður að miðju
voru dökk og saman hrokkin, ekki var sjáanleg skemmd á
hreindýramosa.
28. mars fór ég vestur suðurlandið allt að Selfossi, skoðaði
þá gróðurskemmdir hið næsta þjóðvegi, en sumsstaðar var
gráði á jörð, og sást því illa til gróðurs á þeim svæðum.
Undir Eyjafjöllum eru miklar skemmdir á mosa, sumsstaðar
líta hlíðarbrekkur út eins og brennd hafi verið sina í þeim
fyrir nokkrum dögum, en við nánari skoðun sést að nokkru
stafar það af ösku í grasrótinni. Sumsstaðar er mosi farinn
að losna af bergi og virðist aldauður.
í Landeyjum er mosi sunnan í þúfum allmikið brunninn
og krækilyngið við Ossabæ er að mestu brúnt á lit en virð-
ist þó lifandi, þá er óvenju mikið dautt af toppbrumi á
víði.
í Hvolsvelli skoðaði ég lyng og mosa, og sá nokkuð á
hvoru tveggju þó mun minna en í Landeyjum. Ég leit á
grenitré í nokkrum görðum í kauptúninu, nokkuð bar á
gulleitu barri í sumum görðum en mun minna en í Mýrdal.
15. apríl fór ég inn í Deildarárgil að sunnanverðu til at-
hugunar á gróðri. Köldugrasið er mikið skemmt, svartflekk-
ótt og blaðsneplarnir dökkir og uppundnir og gróhirslur
eyðilagðar. Nokkuð ber á brún-gráum blettum á blöðum á
selgresi sem lifað hafa í vetur. Hárdeplublöðin eru mikið
brúnflekkótt en að öðru leyti virðist hún óskemmd og nær
sér ugglaust í sumar. Á vetrarblómi sér lítilsháttar vestan í
móti en blómstrar þó að mestu eðlilega. Á steinbrjótum sér
ekki. Sumt af mosanum er illa farið, aðallega eru það mos-
ar sem talist geta stórvaxnir, og yfirleitt allir mosar sem taka
til sín rakann beint úr loftinu og hafa lítt þroskaðar rætur,
en lágvaxnir mosar sem taka rakann úr jarðveginum virðast
að mestu hafa sloppið við skemmdir, þó hefur allur mosi
drepist sumsstaðar á bergi vestan í móti, eins virðist í þurr-
98