Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 112
var gerð grein fyrir fóðurgildi heyfengs þeirra út frá hey-
efnagreiningum, auk þess sem gerð var úttekt á því hjá
nokkrum þeirra hvernig þeir fóðruðu. Var í því sambandi
vigtað heyið í ærnar. Var heygjöfin mjög mismunandi að
magni og gæðum. Má segja að notagildi heyefnagreining-
anna hafi víða komið vel fram með þessu lagi.
Um sumarið var haldinn fundur að bændaskólanum á
Hólum varðandi framkvæmd sýnatöku, þar sem mættu, auk
okkar Jóhannesar, allflestir héraðsráðunautar á svæðinu,
ásamt gestum að sunnan, en leiðbeiningaþjónustan var
einnig á dagskrá.
Sumarið 1973 var nokkuð um ferðalög, einkum í sam-
bandi við SAB-verkefnið. Mætt var á einum bændafundi
haustið 1973, en hann var haldinn að Víðihlíð í V.-Húna-
vatnssýslu.
Fundir og ferðalög frá áramótum 1974 hafa þróast í svip-
aða átt og frá fyrri áramótum. Setin var ráðunautaráðstefna
B.í. í marz. Fjallaði hún að þessu sinni um jarðrækt.
Þá var mætt á tveim búnaðarfélagsfundum í Eyjafirði,
þrem í Skagafirði, einum í A.-Hún. og einum í V.-Hún.
Dagana 4.-6. júní var setin ráðstefna í húsakynnum
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins að Keldnaholti, þar
seni rætt var um fóðurþörf skepna. Alls voru boðaðir um tíu
fulltrúar frá rannsóknastofnunum, bændaskólum og leið-
beiningaþjónustunni á samkundu þessa. Höfuðtilgangurinn
var að samræma þær tölur, sem notaðar hafa verið yfir fóð-
urþarfir skepna, — þ. e. hin svonefndu fóðurnorm. Má segja
að full eining hafi ríkt um þau fóðurnorm, sem ákveðið var
að nota þar til innlendar tilraunaniðurstöður liggja fyrir
hér að lútandi. Þá voru eyðublöð fyrir niðurstöður þjón-
ustuheyefnagreininga endurskoðuð að öðru leyti og lögð
drög að eyðublöðum fyrir fóðuráætlanagerð fyrir bændur.
Síðasta vikan í júní sl. var notuð til að ferðast um meðal
bænda í Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum í því skyni að
ræða við þá um heyverkun og þá einkum með tilliti til súg-
þurrkunar. Heimsóttir voru á milli 50 og 60 bændur í ein-
um 8—10 hreppum í þessum sýslum. Væntanlega verður
115