Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 119
hann sérstaka áhersiu á aukið samband milli tilrauna-
manna og bænda. Teitur Björnsson tók undir sjónar-
mið Bjarna. Beindi hann því til formanns Stéttarsam-
bands bænda að hann beitti áhrifum sínum til þess að
meira fjármagn fengist til tilraunastarfa út um land en
nú er.
Jóhannes Sigvaldason tók mjög í sama streng og taldi
mikla nauðsyn að starfræktar væru sjálfstæðar tilrauna-
stöðvar út um landið. Egill Bjarnason ræddi sérstaklega
um að þörf væri á tilraunum sem víðast vegna breyti-
legra staðhátta og vöntun á tilraunum með framræslu
og ræktun. Ævarr Hjartarson ræddi þá um þátt ráðu-
nauta í tilraunastarfseminni og samband þeirra við til-
raunamenn, lagði hann áherslu á að niðurstöður til-
rauna væru birtar eins fljótt og mögulegt er.
Þá tók Gunnar Guðbjartsson til máls og svaraði ýms-
um fyrirspurnum er fram höfðu komið.
6. Fjárhagsnefnd lagði fram svohljóðandi fjárhagsáætl-
un, framsögumaður Teitur Björnsson:
G j ö 1 d :
Laun ........................... kr. 3.000.000,00
Efnivörur ........................ — 60.000,00
Ferðakostnaður ................... — 200.000,00
Viðhald tækja .................... — 30.000,00
Póstur, sími, pappír og ritföng .. — 80.000,00
Húsaleiga og rafmagn.............. — 350.000,00
Hreinlætisvörur og þvottur....... — 60.000,00
Trygging og þinggjald ............ — 150.000,00
Fundakostnaður ................... — 70.000,00
Afskriftir ....................... — 140.000,00
Bókasafn ......................... — 30.000,00
Ársritið ......................... — 300.000,00
Ýmis kostnaður ................... — 30.000,00
Samtals kr. 4.500.000,00
122