Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Blaðsíða 51
UM VARÐVEIZLU BÓKAKOSTS OG ANNARRA GAGNA
51
sérstakar aðstæður. í British Library er rætt um fjórðung og hætta
þar talin meiri en að jafnaði í öðrum brezkum rannsóknarbóka-
söfnum.
Áætlun í Bandaríkjunum um varðveizlu stökkra rita - eða brittle
books, eins og þau eru kölluð, er talin munu kosta um 400 milljónir
dala, og þá er ekki tekið tillit til varðveizlu hvers konar skjala og efnis,
er telst ekki til bóka.
Þá vék Rogers að þeim vanda, er steðjaði að í hitabeltislöndum, og
væri hann víða meiri en svo, að rönd yrði við honum reist sökum hins
mikla kostnaðar.
I alþjóðlegri áætlun um aðgerðir yrði að kanna, hvað til ráða væri
til varðveizlu rita slíkra landa.
I öðrum þætti yfirlitsins, þeim um helztu úrræði, var einkum rætt
um fernt:
1. Rétta meðferð og geymslu.
2. Viðgerð og eyðingu sýru úr pappír.
3. Flutning texta úr einu formi í annað, og loks
4. Viðbúnað við hvers konar háska, þ.e. eldi, vatni o.s.frv.
Um fyrsta atriðið, sjálfa meðhöndlun gagnanna í söfnunum, hvort
heldur ætti í hlut starfslið eða gestir, sagði, að yfir þessum þætti þyrfti
og ætti að vaka miklu betur en gert er. Hann nefndi sem dæmi hin
svokölluðu „Xerox-hræ“, rit, sem komin væru í tætlur vegna ómjúkr-
ar meðferðar í ljósritunarvélum, en gestum er, sem kunnugt er, víða
hleypt í ljósritunarvélarnar.
Rogers dró út úir erindunum nokkur meginheilræði, og rifja ég hér
upp nokkur þeirra:
Hita- og rakastigi skal haldið hvorutveggja svo lágu sem kostur er
og sem stöðugustu. Forðast skal meiri sveiflu en sem nemur 4 gráðum
á dag.
Rakastig stenzt, sé það á bilinu 20-50%, en helzt þarf það að vera
lægra en 40% og aldrei hærra en 60%.
30—35% virðist ákjósanlegast.
Við ílutninga skal varast, að rakastigsmunur fari fram úr 5%.
Vandinn er að gera bæði fólki, bókum og hljómplötum til hæfis —
nefndi hann 18 stiga hita og 40% rakastig sem heppilegasta
málamiðlun.
Nefnt var, að segulbönd væru viðkvæm fyrir áhrifum frá ýmsum
rafbúnaði, svo sem hátölurum, hlustunartækjum, upptökutækjum,
segulmögnuðum dyralæsingum o.íl.