Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Page 110
Landsbókasafnið 1990
BÓKAKOSTUR OG Bókakostur Landsbókasafnsins var í
BÓKAGJAFIR árslok samkvæmt aðfangaskrá 414.966
bindi og hafði vaxið á árinu um 8889
bindi. Mikill fjöldi binda var sem fyrr gefinn safninu eða fenginn í
skiptum.
Af einstökum gjöfum skal hér nokkurra getið:
Ingemar Liman, forseti Sænska ferðafélagsins, afhenti Lands-
bókasafni að gjöf verkið Kebnakaise eftir Pórð S. Guðjohnsen
lækni í Ronne á Borgundarhólmi. Hér er um að ræða ljósprentun
frásagnar hans af ferð á fjallið Kebnakaise í Lapplandi, er hann
skrifaði á sænsku og myndskreytti og gaf Svenska turistföreningen
á sínum tíma. En Þórður dó 25.8.1937.
Landsbókavörður veitti eintaki þessu viðtöku í sendiráði Svía
28. janúar.
Landsbókasafni barst um vorið að gjöf hluti íslenzkra bóka Jóns
heitins Sólmundssonar, er lengi bjó að Vitastíg 10A í Reykjavík.
Fóstbróðir hans, Jón Jósteinsson, afhenti bækurnar, en ekkja Jóns
Sólmundssonar, Emma Ribenholt, er búsett í Kaupmannahöfn.
Sören Sörenson, er lézt 22. nóvember 1989, hafði í erfðaskrá
sinni, dagsettri 29. maí 1980, ánafnað Landsbókasafni meginhluta
bóka sinna og handrita. Gjöf þessi var afhent í um 100 kössum í
júlímánuði á þessu ári, en hún var í vörzlu frú Aðalheiðar
Sigurðardóttur, systurdóttur Sörens, og Sverris sonar hennar.
í safni þessu er margt merkra bóka, ekki sízt orðabóka og
handbóka hvers konar, en Sören var málamaður mikill og fjöl-
fróður og lagði grunn að ensk-íslenzku orðabókinni stóru, er Örn
og Örlygur gáfu út 1984 og ber raunar nafn hans, þótt margir
aðrir kæmu þar að verki, áður en lyki.
Sendiráð Þýzka alþýðulýðveldisins færði Landsbókasafni að
gjöf 14 kassa af bókum, hljómplötum og snældum, er sendiráðs-
menn vildu, að yrðu hér eftir, þegar þeir bjuggust til brottfarar
vegna sameiningar þýzku ríkjanna.