Vísbending - 18.01.2002, Síða 1
V
V i k n
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
18.janúar2002
3. tölublað
20.árgangur
Bjartsýni á hlutabréfamarkaði
Síðasta ár reyndist að mörgu leyti
erfitt á hinum íslenska hlutabréfa-
markaði. Lægst fór úrvalsvísitalan
þann 21. september sl., niður í 995,51
stig, í kjölfar hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum. Þann 15.janúarsl. fórvísitalan
yfir 1.200 stig en það em um tíu mánuðir
síðan vísitalan skartaði fleiri stigum.
Hækkun úrvalsvísitölunnar frá því í
september nemur rúmlega 20% sem
verður að teljast ágæt ávöxtun á fjórum
mánuðum. Og bjartsýni virðist ríkja um
áframhaldandi hækkanir.
Árið 2001
Bankamir gáfu nýlega út spár um
afkomu félaga árið 2001, sem er í
raun einungis spá um ijórða ársfjórðung
ársins þar sem flest fyrirtæki gefa nú
orðið frá sér níu mánaða uppgjör. Þegar
hreyfingarávísitölum atvinnugreinaeru
skoðaðar má sjá að væntingar hafa verið
mestar í kringum sjávarútveginn frá því
í september þegar markaðurinn virðist
hafa náð botninum. Greina má 54% hækk-
un á vísitölunni á síðustu ljórum mánuð-
um. Framlegðin í sjávarútvegi hefurlíka
snarbatnað en miðað við spár bankanna
þá hefur afkoma þeirra fyrir afskriftir og
ljármagnsliði rúmlega tvöfaldast á milli
ára. Sjávarútvegurerþó ekki eini geirinn
sem vonir eru bundnar við því að greina
má um og yfir 30% hækkun á vísitölu
iðnaðar og framleiðslu, verktakastarf-
semi og olíudreifingar. Mesta bjartsýnin
virðist þó bundin við lyljagreinina, sem
hefur hækkað um 50% frá því september
og uppsveiflan verið nær stanslaust frá
árinu 1999. Vísitala Qármála- og trygg-
ingaíyrirtækja hefur hækkað minna eða
um 18%. Litlar breytingar hafa orðið á
þjónustu og verslun, santgöngum og
upplýsingatækni.
Ef íyrirtækin í úrvalsvísitölunni eru
skoðuð kemur í ljós að nær undantekn-
ingarlaust, Eimskip og Samherji eru
undantekningarnar, er því spáð að hagn-
aður aukist verulega árið 2001 í saman-
burði við árið 2000, eða um 117% (fyrir-
tækið Össur er undanskilið). En það er
nærri lagi að hagnaður þeirra fyrirtækja
sem spáð er fyrir (sjá töflu) fjórfaldist á
Úrvalsvísitala aóallista Verðbréfaþings Islands frá byrjun
árs 2000 til 15. janúar 2002
milli ára (án Össurs) og nemur tæpuni 12
milljörðum í heildina. Islandsbanka er
spáð mestum hagnaði, um 2,9 milljörðum
króna en áætlað er að fyrirtæki eins og
Pharmaco, Landsbankinn, Kaupþing
og Baugur skili öll rúmlega milljarði í
hagnað á árinu 2001. Versta afkoman
kemur hins vegar í hlut gömlu risanna,
Flugleiða og Eimskipa.
Horfur
Gengisfall krónunnar einkenndi
síðastliðið ár þar sem fj ármagnsliðir
sumra fyrirtækja hækkuðu upp úr öllu
valdi og skuldastaðan versnaði. En
gengisfallið virðist þó ekki hafa haft
mjög neikvæð áhrif á afkomu flestra fyrir-
tækja. Skattalækkunin á fyrirtæki úr 30
í 18% hefur aftur á móti í flestum til-
vikuni jákvæð áhrif og leiðir til tekju-
færslu hjá fyrirtækjum.
Greiningadeildir bankanna virðast
horfa nokkuð björtum augum á árið 2002
en þær spáðu allar mun minni verðbólgu
á milli desember og janúar en raunin
varð. Það setur heildarspár þeirra eitt-
hvað úr skorðum þar sem slíkar verð-
bólgutölur draga úr I íkum á vaxtalækkun
frá Seðlabanka íslands. Vonir virðast
bundnar við að „hin nýja þjóðarsátt"
geti skapað verðstöðugleika, traustan
gjaldmiðil og svo miklar vaxtalækkanir
og nýja uppsveiflu á seinni hluta ársins.
Hugsanlega getur sá draumur ræst en
mörg fyrirtæki virðast þó geta siglt góðu
skriði án þess að hafa slíkan byr í bakið.
Meðaltalsspá bankanna um
hagnað fyrirtœkja á árinu 2001
Fyrirtæki Hagn. 2000 Hagn. spá-2001 Brcyt. hagn Hl.vcrð °/ 1.16.02 br. m.v. 21.9.01
AcoTæknival 80 -944 -1.024 1,01 -75%
Bakkavör 172 392 220 7,50 79%
Baugur 591 1.050 459 11,50 6%
Búnaðarbankinn 202 822 620 4,05 4%
Delta 222 796 574 44,10 40%
Flugleiðir -939 -1.963 -1.024 1,75 -13%
Grandi -96 244 340 5,65 31%
Hampiðjan 125 163 38 4,30 -4%
HB -666 -180 486 4,30 8%
Bimskip 520 -1.102 -1.622 5,30 16%
Húsasmiðjan 318 271 -47 14,30 2%
Islandsbanki 662 2.910 2.248 4,50 21%
lslandssímt -493 -940 -447 1,65 -41%
ÍA 203 40 -163 2,30 31%
Jarðboramr 95 40 -55 7,20 13%
Kaupþing 727 1.105 378 12,80 21%
Landsbankinn 955 1.533 578 3,45 24%
Lyfjaverslunin 42 548 506 4,35 10%
Marel -29 228 257 26,50 8%
Nýherji 289 -49 -338 5,65 -6%
Oliufélagið 429 752 323 12,40 9%
OIis 102 323 221 6,70 6%
Opin kerfi 307 -91 -398 17,00 53%
Pharmaco 893 1.743 850 56,50 47%
Samherji 726 688 -38 10,50 38%
SÍF 726 474 -252 4,60 61%
Sjóvá almennar 424 522 98 28,00 4%
Skeljungur -208 601 809 8,50 6%
Skwr 314 -61 -375 6,10 30%
SR-Mjöl -799 -49 750 2,30 12%
SH 152 638 486 4,75 55%
Tryggingamiöst. 172 418 246 52,00 7%
UA -779 -97 682 6,05 23%
Þorbjörn Fiskanes -89 160 249 3,90 30%
Þormóður rammi -555 -187 368 3,40 28%
Össur -6.679 814 7.493 54,50 45%
Samtals -1 884 11.612 13.496
* 21. september er notaður til þess að skoða breytingu hluta-
bréfaverðs þar sem sú dagsetning er nærri lagi að vera lág-
punkturinn á síðasta ári.
1
Nýlega gáfu bankarnir út
hagnaðarspár fyrir árið
2001 og viðsnúningurinn
er mikill fráfyrraári.
2
Fiskeldi virðistafturveraá
allra vörum eftirtíu ára hlé
og enn er það kapp frekar
en forsjá sem ræður fór.
3
Tryggvi Þór Herbertsson
dregur upp mynd af
ástandinu í Argentínu og
fjallar um hvað brást.
4
Framhald af grein um nýjar
hugmyndir um fiskeldi þar
sem óskað er eftir opinberu
fjármagni í ævintýrið.