Alþýðublaðið - 03.09.1969, Side 14
14 Alþýðublaðið 3. sieptember 1969
aS halda áfram aS lifa eftir ósigurinn en fyrir þau
hin.
En ég veit, að pabbi er svona, og ég veit líka, að
, það getur ekkert breytt honum.
Að vissu leyti er ég dóttir föður míns og kannski
! bregzt ég líkt við sorg og gleði og harrn. Wleðan Frið-
‘ mey grét, hélt ég utan um hana og spurði þurrlega:
— Hvað átti ég svo sem að gera? Sitja hjá henni
j bílnum og drepast líka?
Að þú skulir segja annað eins og þetta- sagði
Friðmey hneyksluð.
[ —En ykkur finst þetta nú samt. Mér er svo sem
I sama, hvað þið haldið, sagði ég. — Þetta var slys
og ég var hvergi nálæg. Hún var bara svona óheppin
og ég var svona heppin. Hvað var hún líka að gera
við það að aka um í fjöllurrum þar, sem hún þekkti
ekkerf til. Ég var ekki með henni.
Hvar varstu þá á meðan?
! — Ég fór til Kaupmannahafnar daginn, sem slys-
ið varð.
Hvers vegna fórstu ekki aftur til hennar, þegar
1 þú fréttir um slysið? .
— Mig langaði ekkert til þess, skal ég segja þér.
Ég fór til Svíþjóðar, Noregs, Færeyja og endaði loks
aftur í Kaupmanrrahöfn. Ég vissi það ekki, hvað hafði
komið fyrir, fyrr en ég fékk skeytið, sem beið mín
á hótelinu og ...
Ég þagnaði. Þetta var ekki satt. Ekki allt saman.
Mér hafði svo sem verið sama um það, hvað kom fyr-
ir þau Guðjón. Þau vildu ekki sjá mig, hvort eð var
og höfðu aðeins haft mig að skálkaskjóli til að geta
ferðazt saman. En ég varð að halda mig frá Guðjóni.
Ég mátti ekkert um hann hugsa framar. Hann var lif.
andi, en hún var dáin og hann var ekki einu sinni
hjá henni, þegar hún dó.
— Voruð þið Guðjón að rífast einu sinni enn?
spurði Friðmey og horfði rannsakandi á mig.
— Já, svaraði ég og sneri mér undan.
Ég fann það, að Friðmey stóð og horfði á bakið
á mér, og ég vissi um leið, að henni fannst ég alltaf
þreytandi, þegar ég vildi ekki trúa henni fyrir á-
hyggjum mínum.
— Það var leitt, að svona fór fyrir henni, sagði
Friðmey, og ég heyrði það á henni, að hún var að
reyna að friðmælast við mig. — Hún var svo falleg
og hún stóð alltaf ein. Ég hef aldrei getað skilið það,
hvers vegna hún vildi alltaf helzt ferðast ein.
-— Henni þótti það skemmtilegast, sagði ég. —
Það finnst flestum öðrum en þér og Hákoni. Ég get
ekki að mér gert. Ég fór að kjökra.
Kannski hefur Friðmey fundizt hún skilja mig fyrst
núna. — Já, það vorum við Hákon, sem alltaf vild-
um ferðast saman, eins og þið Guðjón. Ég skil þig
svo vel. Það er orðið alltof mikið um það, að fólk
|ári eitt í sumarleyfi og skemmti sér sitt í hvoru lagi.
En þú ert gamaldags eins og ég, eisku telpan mín.
* Það leið löng bið áður en ég skildi, hvað húrr
INGIBJÖRG JÓNSDÖTTIR
hafði eiginlega átt við og leit á hana. — Hún var
alltaf að fara út með hinum og þessum. Ætli hún
hafi ekki farið með einum þennan daginn og öðrum
hinn. Ég veit það ekki, ekki var mér boðið með. Ég
gat ekki að mér gert. Það runnu heit tár niður kinnar
mínar. —■ En ég veit, að hún var ein í bílnum, þegar
slysið varð. Hvað vi|tu, að ég segi fleira?
— Pabba þínum fannst, að þú hefðir átt að koma
heim um leið og þú fréttir um slysið. Það hefði
verið ósæmilegt, ef þú hefðir látið þig vanta við
jarðarförina, og....verið í burtu. ...og....
Hún þagnaði, og ég vissi, að henni fannst ekki
auðvelt að segja þetta við mig. Já, mig hafði ekkert
langað að fara til Kaupmannahafnar, hvað þá til Nor-
egs og mér leiddist að fara á skíði um páskana. Ég
var kannski svona mikill heimalningur, að mér fannst
að það væri miklu skemmtilegra að fara á skíði í
Kerlingarfjöllum eða í skíðaskálann á ísafirði eða
Akureyri.
En það var ekki nægilega gott fyrir hana stjúpu
mína. Hún vildi heldur skemmta sér erlendis en
hérna heima og ég vissi það af gamalli reynslu, að
stjúpa mín fékk alltaf sínum vilja framgengt.
Það var svo sem auðskiljanlegt, að stjúpa mín
vildi helzt hafa mig með sér. Ég gagnrýndi ekki gerð-
ir hennar eins og Friðmey frænka hefði gert. Ég gladd
ist yfir því, hvað hún var unggæðisleg og góð við
mig. Því að það var hún alltaf.
— Þið voruð svo góðar vinkonur, sagði Friðmey.
— Já, ætli við höfum ekki verið það, svaraði ég
og minntist þess, sem á undan hafði farið. Þá varð
ég að líta undan. Ég leit út um gluggann.
— Hvernig samdi ykkur, þegar Guðjón kom til
ykkar? spuröi Friðmey. — Voruð þið kannski orðin
ósátt þá?
—• Hvílík forvitni! sagði ég og reyndi að gera
mér upp hlátur. — Þú gerir mér erfitt fyrir, en ég
get samt trúað þér fyrir því, að við vorum hamingju-
söm.... Ég gat ekkert að því gert, að rödd mín brast,
þegar ég sagði „hamingjusöm."
— Og hvað kom svo fyrir? spurði Friðmey.
Þessi eilífðar forvitni! hugsaði ég. Ojá, ég vissi
það allra manna bezt, hvað Friðmey var forvitin. Ég
vissi það og skildi, hvað hún varð glöð og ánægð, þeg
ar allir héldu, að ég væri hamnigjusöm og ástfangin.
Ég fékk að heyra það úr öllum áttum. Og ekki mun-
aði minna um það, þegar ég hafði opinberað trúlof-
un mína, og pabbi tók hann sem aðstoðarmann sinn
og gaf mér í skyn, að Guðjón gæti með tímanum orð-
iö eins konar varaforstjóri og jafnvel meðeigandi,
þar sem ég átti hvort eð er að erfa allt draslið. En
ég verð að játa það, að mig dreymdi aldrei um að
verða þessi fulkomna skrifstofustúlka eða einka-
ritari, sem hann hafði lagt aðaláherzlu á að mennta
mig í að verða.
I
I
I
I
I
I
I
,
!
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Smáauglýsingar
TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Látið fagmann annast viðgerðir og viðhaid á txéverki
húseigna yðar, ásamt breytingum á nýýu og eldra
húsnæði. — Sími 41055.
VOLKSWAGENEIGENDUR!
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok
— Geymslulok á Völíkswagien í allfllestum Iitum.
Sklptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrír á-
kveðið verð. — Reynlð viðsklptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25,
Símar 19099 og 20988.
GLUGGAHREINSUN og rennuhrelnsnn. VönduS
•g góð vinna. Pantið í tima I síma 15787.
BIFREIÐASTJÓRAR
Gerum við ahar tegundlr bifreiða. — Sérgrein:
hemlaviðgerðir, hemlavarahlutir.
Hemlastilling h.f., Súðavogi 14, Simi 30135.
BÓLSTRUN — SÍMI 83513.
Hef flutt að Skaftahlíð 28, klæði og gerl við bólstruð
húsgögn. Bolstrun Jóns Ámasonar, Skaftahlíg 28,
sími 83513.
Munið Nýþjónustuna
Tek að mér allar minniiháttar viðgerðir og
klæðningar á bólstruðum Ihús'gögnium í heima
húsum. — Upplýsliingar í síma 14213 kl. 12—
1 og 7—8 á kvöldin.
AGNAR ÍVARS, húsgagnabólstrari.
——————■——mmmmmmmm— i n. i —■ i ————m M
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hrein
lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum.
Guðmundur Sigurðsson
Súni 18717
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til lelgu litlar og stórar jarðýtur traktorsgröf-
ur og bílkrana, tll allra framkvæmdá, lnnan og utan
borgarinnar.
Jarðvinnslan sf. x
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Heimasímar 83882 — 33982.
MATUR OG BENSÍN
allan sólarhringinn.
Veltingaskálinn, Gelthálsf.