Alþýðublaðið - 15.09.1969, Page 11
A'llþýðuhlaðið 15. september 1969 11
BERGMAN
Framhald bls. 2.
Rosselini, það kom líka niður
á börnunum, viðurkennir hún.
Peter var svo bitur í minn
garð, þegar hjónabandið fór út
um þúfur, að hann gerði allt
sem í hans valdi stóð til að
stía okkur Piu í sundur. Og
honum tókst það svo sannar-
lega. Mig hefði aldrei órað fyr-
ir því að svona langur tími
myndi líða þar til ég og elzta
dóttir mín sameinuðumst á
ný. En nú erum við sáttar og
allt leikur í lyndi.
Robertíno er eins lítið ítalsk-
ur í útliti og ég. Hann er há-
vaxinn, 185 cm. og ljóshærð-
ur. Hann er ekki ennþá búinn
að ákveða framtíðina, en ég
veit að ákvörðun hans verður
skynsamleg.
Isabella og Ingrid eru ólíkar
eins og dagur og nótt. Isabella
elskar að skemmta sér og ganga
í hippia-fötum, Ingrid lætur
aldrei sjá sig öðruvísi en óað-
finnanlega klædd, og hún er
feimin og hlédræg, eins og ég
var á hennar aldri. Þau eru öll
í skóla í Róm, og það eru gleði
stundir, þegar þau koma í heim
sókn til okkar.
Þriðja hamingja Ingrid
Bergman, er ólík þeim, sem
hún kallar fyrstu og aðra
hamingjuna.
\
★ Fyrstu hamingjuna var
hún lengi að finna. Æskuárin
í Stokkhólmi voru dapurleg.
Hún var dóttir ljósmyndarans
AXMINSTER býSur kjör viS allra hœfi
SIMI 30676
GRENSASVEGI 8
Viðskiptavinir athugið
nýtf símanúmer
2 66 30
Jóh. Ólafsson og Co. h.f.
heild'verzlun,
Hverfisgötu 18.
Sími í varahlutavíerzlun
Brautarholti 2 verður
ÁFRAM 1 19 84
RAFMAGNí
gólfteppum
ANTI—STATIC fjarlægir það.
GÓLFTEPPAGERÐIN H.F.,
Grundargerði 8. Sími 23570
Justin Bergman. Móðir hennar
var þýzk. Hún var veikluð
kona og dó fyrir aldur fram.
11' árum síðar lézt faðir henn-
ar úr krabbameini. Þá fór Ing-
rid í fóstur til Ellenar frænku
sinnar. Það öryggi entist í sjö
mánuði, eða þar til frænkan
lézt úr hjartaslagi. Þá varð
Ingrid fullorðin, 14 ára gömul.
Hún tók stúdentspróf og
sótti síðan um inngöngu í kon-
unglega leiklistarskólann í
Stokkhólmi, Eftir tvö ár hafði
hún fengið minniháttar kvik-
myndahlutverk, yfirgaf skól-
ann og var þar fyrir utan ást-
fangin af hávöxnum alvarleg-
um tannlækni, Peter Lind-
ström. Þau giftust 10. júlí 1937.
Er Ingrid Bergman fór til Ame-
ríku til að leika í kvikmynd-
inni „Intermesso" fór maður
hennar með henni. En hon-
um leiddist vestra. Hjóna-
bandið, sem almenningur hélt
að væri sérlega hamingjusamt,
var í veruleikanum allt annað
en gott. Lindström hafði gam-
aldags skoðanir um hvernig
eiginkona hans ætti að vera og
fannst að Ingrid ætti að vera
sér eilíflega þakklát fyrir að
hafa kvænzt henni — for-
eldralausri stúlkunni. Hann
gerði líka hvert axarskaftið af
öðru er hann gerðist umboðs-
maður konu sinnar. Sannleik-
urinn var sá, að Lindström var
farin að fara óskaplega í taug-
arnar á Ingrid.
.. í
★ Onnur hamingjan byrj-
aði árið 1949. Roberto Rossel-
ini var þá að byrja að vinna
að mynd sinni „Stromboli,“ þar
sem Ingrid átti að leika aðal-
hlutverkið. Rossellini var til
heimilis hjá hjónunum Berg-
man/Lindström, sem gestur
þeirra. Meðan Lindström vann
á sjúkrahúsi í Los Angeles,
•fóru jlngrid dg jl|ssellini í
kynnisferðir um nágrennið og
töluðu saman um væntanlega
kvikmynd. Síðar sagði Ingrid
í blaðaviðtali, að af kynnum
sínum við Rossellini hefði hún
fyrst fundið að hún væri lif-
andi og blóðheit kona. Það var
svo auðvelt að tala við hann
og enn auðveldara að hlusta
á hann tala, sagði hún.
Dagblöðin fengu nasasjón
af verðandi hneyksli og fylgd-
ust vel með Ingrid. Rossellini
yfirgaf Hollywood í febrúar,
Ingrid fór til hans til Rómar
í marz. Heimurinn stóð á önd-
inni af fyrirlitningu.
Lindström flaug til Rómar
til að reyna að tengja saman
endana á hjónabandinu, en það
var of seint. Ingrid óskaði
skilnaðar.
í desember 1949 vissu allir
að Ingrid og Rossellini áttu von
á barni. Þau giftust í Mexico
eftir fæðingu sonarins Ro-
bertíno.
Peter Lindström fékk hjóna-
band þeirra dæmt ógilt fyrir
dómstólum í Los Angeles og
hlaut foreldraréttinn yfir Piu.
Ingrid átti þó að fá leyfi til
að sjá hana í fríunum. En af
því varð þó ekki. Ingrid varð
að vera án dóttur sinnar í
naörg ár, það var ekki fyrr en
Pia var orðin uppkomin stúlka,
að endurfundirnir áttu sér stað
og þær sættust heilum sáttum.
Ekki löngu eftir fæðingu
tvíburasystrana, féll Rossellini
fyrir Sonali Das Gupta, sem
var gift indverskum leikstjóra.
Afleiðing þeirra kynna var
óskilgetið barn og aftur endur-
tók sagan sig. Ingrid og Rossel-
lini skildu árið 1958.
Er þau Ingrid og Lars kynnt-
ust var það ást við fyrstu sýn
og byrjunin á þriðju hamingju
Ingridar Bergman. Hún hefur
ekki alltaf dansað á rósum, en
hún hefur átt sálarstyrk til að
komast í gegnum erfiðleikana.
Sálarstyrkur, góð heilsa og
slæmt minni — það er leynd-
ardómurinn bak við þriðju
hamingjuna. —
Veggfóður
jypaniNN ?
Sími 22866
HÚSGÖGN
Sófasett, stakir stólar. — KlæSi gömul húsgögn. — Orval af
góSu áklæöi, meðal annars pluss í mörgum litum. — Kögur
og leggingar.
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS,
BERGSTAÐASTRÆTI 2 — SÍMI 16807.
Húsmæður!
Hvað er betra í dýrtíðinni en lágt vöruverð?
Gjörið svo vel að líta inn.
Opið til kl. 10 á kvöldin.
VÖRUSKEMMAN GRETTISGuTU 2.