Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 19 Bætifláki 1þróttafréttamenn í lélegri cefingu í DVþann 30. september skrifaði blaðamaðurinn Gunnar Sveinbjörnsson í fjölmiðlapistii: „Stundum hefur mér nefni- lcga þótt sem þcir [Bjarni Fel- ixson og Arnar Björnsson] séu í svo „lélegri œfmgu“ að „skipting“ vœri fullkomlega réttlœtanleg. Þar á ég við þegar félagarnirþckkja ekki leikmenn í sunditr ogfara rangt með staðrcyndir. Þreytandi getur líka vcrið að heyra í tíma og ótín að annar haldi með Leeds United og hinn Arsenal. „Giskari vikuttn- ar“ ergott innlegg í þáttinn en von- andi hœtta þeirfélagar að birta sín- areigin spár.“ fengið svipaðar athugasemdir frá greinarhöfundi og finnst rök- stuðningur hans heldur peysu- legur. Ég tel mig vera sæmilega á heimavelli í knattspyrnufræðun- um enda eyði ég miklum tíma í undirbúning íþróttalýsinga. Ég vísa þvi til Versala að ég þekki ekki leikmennina á vellinum. Mér er aldrei meira skemmt á ferðum mínum erlcndis eftir kappleiki en þegar margfrægir spekingar í sparkinu þekkja lítið til sumra þeirra leikmanna sem þeir eru að fjalla um. Þeir eru nefnilega til sem ekki stunda heimavinnuna sína nógu vel. Fjölmiðlarýnir DéVaff verður að vera í betri æfingu næst þegar hann lætur reiði sína bitna á mér. Sjálfum finnst mér vera kominn tími á innáskiptingu á blaðinu. Áfram Völsungur! Með kveðju.“ ■ Nefndaseta Jóns H. Karlssonar færir honum drjúgar aukatekjur í vinnutímanum í fyrsta lagi... Aftur hætftur aðborða Skrífaði afsökunarbréf til þeirrn sem töpuðu aurunum sínum I apríl síðastliðnum var stofnsett nýstárlegt fyrirtæki undir nafninu Króna hf., en markmið þess var að standa fýrir uppboðum á bílum og bjóða biffeiðaeigendum nýjan val- kost í ökutækjaverslun. Hug- myndasmiður og eigandi Krónu hf. er Hilmar Kristjánsson, en rekst- ur fyrirtækisins stöðvaðist eftir að það hafði verið rekið í þrjá mánuði. Ljóst er að tapið á þessu ævintýri nemur milljónum króna, en Hilm- ar skrifaði þeim sem eiga um sárt að binda vegna þessa eftirfarandi bréf: „Tilraun til að bjarga Krónu hf. með samningum við skuldunauta hefur ekki tekist. Afborganir og vextir af skuldabréfum vegna kaupa á Mýrargötu 26 nema tæpri milljón á mánuði. Ekkert útlit var fyrir að hægt væri að standa við þessa skuldbindingu án samninga við skuldunauta og endursamninga á greiðslum skuldabréfa. Samkomulag hefur náðst við Granda hf. um riftingu á þessum kaupsamningi. Eftir riftingu á kaupsamningi Mýrargötu 26 eru eignir Krónu hf. engar, en skuldir fyrirtækisins eru ca. kr. 13.000.000. I öllum viðskiptum er áhætta, en aldrei óraði mig fyrir því að bíla- umboð myndi gersamlega bregð- ast. Ég fékk ættingja, vini, kunn- ingja og fjölda annarra til að fram- kvæma þau verk sem þurfti að gera. Það hefði ég ekki gert nema hafa fuila trú á að þetta fýrirtæki myndi takast. Fyrirtækið tókst ekki og því mið- ur hef ég valdið fjölda fólks miklu tjóni. Ég hefði óskað að geta greitt hluta af þessu tjóni persónulega, en ég hef lagt allar mínar eignir í fyrir- tækið og gott betur. Þótt þetta hafi farið svona vildi ég þakka þeim sem stóðu með mér af alhug.“ Morgunpósturinn spurði Hilmar um viðbrögð fólks við bréfinu. „Ég var nú búinn að tala við þá alla áður en ég sendi bréfið,“ segir Hilmar. „Það voru allir jafnundr- andi og ég á að þetta skyldi ekki ganga." Það hefur enginn hafnað erindinu og sagt að það þýddi lítið að biðjast afsökunar? „Nei, það hefur ekki verið gert. Þetta er staðan og ég hef bara verið að láta fólk vita af því hver hún er. Það þýðir ekkert að stinga hausn- um í sandinn þegar maður á í erfið- leikum. Maður verður að standa viðþað sem maður gerir.“ Attu þá ekki krónu eftir þetta œv- intýri? „Nei ég tapa nokkrum milljón- um. Ég hafði fulla trú á að þetta myndi ganga og lagði alla peninga sem ég gat í þetta.“ -LAE Hvers vegna erfjárlaga- fmmvarpið hans Friðriks Sophussonar allra besta fjárlagafrumvarp sem hægt var að leggja fram? í fyrsta lagi Frumvarpið er fallegt og fer vel í skúffu, enda er það fyrst og fremst ætlað til þess. Því er ekki ætlað að verða að fjárlögum frekar en önnur fjárlagafrum- vörp sem lögð hafa verið fram í upphafi þings. Þeim er alltaf snúið á haus um miðjan desember þegar ráðherrar og þingmenn hafa velt fyrir sér ríkisfjármálum um tíma. Til- gangur þessa frumvarps er fyrst og fremst sá að minna þingmenn og ráðherra á að nokkuð er til sem heitir ríkisfjármál. í fjórða lagi Þrátt fyrir að frum- varpið sé þykkt er engin ástæða fyrir nokkurn mann að lesa það af fyrr- greindum ástæðum. Það er ekkert í því og það mun enginn taka mark á þvi. Það er því lítil! vandi að leggja það frá sér ólesið. í fimmta lagi Þrátt fyrir þetta er ekki þar með sagt að ekkert gagn sé að bókinni. Þar sem hún er þykk og þung má nota hana til að þurrka blóm, hækka leslamþa eða berja maka sinn með. Allt eftir innræti þess sem á heldur.B Jón H. Karlsson, aðstoðarmað- ur Guðmundar Árna Stefánsson- ar félagsmálaráðherra, sagði í sam- tali við Morgunpóstinn að hann hygðist hætta störfum í ellefu af þeim tólf nefndum sem tengjast heilbrigðismálum og hann hefur átt sæti í. Drjúgur tími fór í fúndasetur hjá Jóni meðan Guðmundur Árni var heilbrigðisráðherra en nú verður væntanlega breyting á því. Eftir því sem næst verður komist sat Jón vart færri en tuttugu fiindi á mánuði í hinum ýmsu nefndum. Lengd fúndartíma var að sjálfsögðu breytilegur en ekki er ofætlað að reikna með að hver fundur hafi staðið í tvær klukkustundir að með- altali. Sem þýðir að Jón hefur eytt heilli vinnuviku á mánuði á fundum sem heyra ekki beinlínis undir starf hans sem aðstoðarmanns ráðherra. Þegar Jón var spurður hvort hann hefði góðar aukatekjur af nefnda- starfinu vildi hann sem minnst gera úr því. „Það liggur á borðinu hvað ég fæ fýrir setu í stjórnarnefnd Ríkis- spítalanna og samstarfsráði sjúkra- húsanna og það er verulegur hluti af þeim tekjum sem ég fæ fýrir nefnda- störf. Hitt er „peanuts11 meira og minna.“ Fyrir setu í stjórnarnefnd Ríkis- spítalanna fær Jón rúmar 41 þúsund krónur á mánuði, samstarfsráð sjúkrahúsa í Reykjavík færir honum 21 þúsund og stjórn heilsuverndar- stöðva Reykjavíkur og samstarfsráð heilsugæslunnar í Reykjavík 13 þús- und samanlagt. Ekki fengust upplýs- ingar um greiðslur vegna hinna nefndanna átta en þumalputtaregl- an er sú að 824 krónur eru greiddar á tímann fýrir setu í flestum nefnd- ur staðið í tvær stundir, þá hefúr hann fengið sem svarar rúmum 26 þúsund krónum á mánuði fyrir það. Samtals hefur hann því að minnsta kosti fengið rúmlega 101 þúsund krónur á mánuði fyrir nefndastarfið. Reikna má þó með að sú upphæð sé talsvert hærri. Þessar tekjur koma ofan á laun hans sem aðstoðarmanns ráðherra. Sjö af nefndunum tólf eru fasta- nefndir og flestir fundir þeirra haldnir á hefðbundnum vinnutíma, þannig að Jón var heila vinnuviku á mánuði á tvöföldum launum hjá rikinu. Málið er þó ekki alveg svona ein- falt því tvær nefndanna hafa lokið störfum og ein hefur ekki enn verið kölluð saman. Það breytir þó ekki heildarupphæðinni sem neinu nem- ur. -SG Dían Valur vill póli- tískt hæli utan íslands Hilmar Krisljáns- son á ekki kronu Hilmar Kristjánsson, eigandi Krónu hf. „Fyrirtækið tókst ekki og því miður hef ég valdið fjölda fólks miklu tjóni.“ Islenski Búlgarinn Dían Valur Dentchev er enn á ný farinn í hungurverkfall til að berjast fýrir að umgengnisréttur hans og sonar hans verði virtur. Eins og kunnugt er gerðu lögfræðingar Díans Vals og barnsmóður hans, samning um umgengni feðganna í kjölfar 48 daga hungurverkfalls Díans 29. júní síðastliðinn, en engu að síður hefur ekki tekist að koma á eðlilegri um- gengni þeirra á milli. I samningn- um var farið fram á að Þjóðkirkjan hefði milligöngu í málinu en til- raunir hennar til að fá honum fýlgt eftir hafa farið út um þúfur. Þá var Dían Val einnig veitt gjaf- sókn til að reka skilnaðarmál sitt og Hönnu Ragnarsdóttur fyrir Hér- aðsdómi en hann telur starfsmenn dómsmálaráðuneytisins hafa blekkt sig til að skrifa undir skilnaðarsátt- mála þeirra á nrilli. Eins og komið hefur fram í gagn- rýni íslenska Búlgarans á stjórnvöld telur hann þau hafa brotið mann- réttindi þeirra feðga ítrekað og til að undirstrika andúð sína á því hef- ur Dían Valur nú afsalað sér ís- lenskum ríkisborgararétti. Hann hyggst reka mál sitt fyrir Mannrétt- indadómstóli Evrópu og fara fram á að dómstóllinn útvegi sér pólit- ískt hæli í einhverju öðru landi en íslandi. -LAE í öðru lagi Frumvarpið hans Frið- riks er eins og fjár- lagafrumvörp eiga að vera. í því eru engar skattahækk- anir, engin aukin út- gjöld — ekki neitt. Þetta er frumvarp stjórnar eins og stjórnir eiga að vera — stjórnar sem lætur fólk í friði. í þriðja lagi í frumvarpinu eru eng- ar kúvendingar boð- aðar. Þar er allt við það sama. Engin ný stefnumörkun í ríkis- fjármálum, landbún- aðarmálum, heil- brigðismálum, menntamálum — eða nokkrum öðr- um málum. í því eru engin tíðindi — hvorki góð né slæm. Jón H. Karlsson, að- stoðarmaður félags- málaráðherra: „Það liggur á borðinu hvað ég fæ fyrir setu í stjórnar- nefnd Ríkisspítalanna og samstarfsráði sjúkra- húsanna og það er veru- legur hluti af þeim tekj- um sem ég fæ fyrir nefndastörf. Hitt er „pe- anuts“ meira og minna.“ um ríkisins. En þegar starf þeirra felst í meiru en sjálfúm fundasetun- um er tekið tillit til þess. Ákvörðun um hversu háar greiðslurnar eru umfram 824 krónurnar er þá í höndum svokallaðrar þóknunar- nefndar, sem skipuð er Þorsteini Geirssyni, ráðuneytisstjóra í dóms- málaráðuneytinu, og Þórhalli Ara- syni, skrifstofustjóra í fjármálaráðu- neytinu. Ef gengið er út frá því að Jón hafi fengið 824 krónur á tímann fýrir fundasetuna í nefndunum átta, sem er afar varlega áætlað, fundað hafi verið tvisvar í mánuði og hver fúnd- Heil vinnuvika í mánuði fer í aukavinnuna

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.