Helgarpósturinn - 15.06.1995, Side 17
15:30
Þegar þú
horfir yfir
Menntaskóla-
túnið áttar þú
þig á að það er
engin von til
þess að þú
finnir börnin(
þín. Hvert eitt
og einasta barn
undir tólf ára
aldri hefur ver-
ið málað í framan með fánalitunum af þar til
menntuðum fóstrum. Ofan á þetta leggst síðan
þykk skán af kandíflos. Af fyrri reynslu veistu að
þetta mun ekki nást af börnunum fyrr en eftir
tvo eða þrjá daga. Það verður því ekki fyrr en
mánudag, þriðjudag að þú munt þekkja aftur
börnin þín. Við þessa uppgötvun fellurðu saman
og byrjar að snökta undir flugþránni hans Sigur-
jóns. Og situr þannig þegar tvær konur með
barnavagna ganga framhjá og önnur segir: „And-
skotinn að þessir menn geti beðið til kvölds með
að detta í það heldur þurfi að gera það hérna fyr-
ir framan börnin." Þér finnst þú þekkja tóninn
frá fyrrverandi eiginkonu þinni í þessu og verður
við það enn örvinglaðri. Bíddu tvær umferðir á
meðan þú jafnar þig.
17TI5
Þú stend-
ur við sölu-
tjald kven-
f é 1 a g s
badminton-
d e i 1 d a r
Fylkis og
b o r ð a r
pylsu í
k ö 1 d u
brauði með
valstómat-
sósu. Loks-
ins eitthvað
þ j ó ð 1 e g t
hugsar þú og horfir á Tóta trúð koma þeirri
hugsun inn hjá úttauguðum og uppgefnum börn-
um að trúðar eigi ekki að vera fyndir. Alla vega
ekki á ísiandi. í útlöndum og í sjónvarpinu eru ef
til vill til hellingur af fyndnum trúðum. En á ís-
landi er bara einn trúður og hann er Tóti. Þú
leggst í vangaveltur um sögu þjóðarinnar, sjálfs-
mynd hennar og sjálfsvirðingu. Hvers konar
þjóð er það sem heldur upp á afmæli sitt með
Tóta trúð sem aðalnúmer ár eftir ár? Allt í einu
byrjar þér að þykja vænt um Tóta, sérð hann
sem þjóðarsálina holdi klædda og getur ekki
stilit þig um að ganga til hans og faðma hann þar
sem fer með sitt þunglyndislega atriði frammi
fyrir gáttuðum börnunum. Og þegar þú gengur í
burtu heyrir þú börnin hlæja. Atriðið með mann-
inum sem kom utan úr buskanum og faðmaði
trúðinn var það fyndnasta hingað til. Aukakast
fyrir það.
19TI5
Á Ingólfstorgi
grípur þig sú
tilfinning að
aðrir megi eiga
jafnvondan dag
og þú og vísar
m i ð a l d r a
frönsku pari
sem er að leita
að Kaffi Reykja-
vík eitthvert langt vestur í bæ. Svona gera menn
náttúrlega ekki og færðu þig aftur um þijá
reiti.
11:15
Til að drepa
tímann röltirðu
yfir í Dómkirkj-
una til að hlýða
á hátíðar-
messu. Læðist
inn svo að Dav-
íð sjái þig ekki
og hreiðrar um
þig á aftasta
bekk. Þú sérð
að Diddú á að
syngja, hugsar
þér gott til
glóðarinnar en
sofnar út frá
þeim hugsun-
um. Hrekkur upp klukkutíma síðar í tómri
kirkju og bíður þar af leiðandi í þrjár umferðir.
14:55
Þegar þú
þvælist yfir á
Ingólfstorg er
þjóðdansafé-
lagið nýbúið að
ljúka sér af og
komið að suð-
ur-amerískum
dönsum undir
stjórn Her-
manns Ragnars
og Hennýjar
Hermanns. Þú
ert orðinn hálf-
örvinglaður og
veist ekki fyrr
en þú ert farinn
að tuða upphátt um hvað sé eiginlega verið að
sýna suður-ameríska dansa á sautjándanum. Og
hvað eiga þessir andskotans eldgleypar og
stultulið um allan bæ að fyrirstilla? Halda menn
að sautjándinn sé einhver latínsk kjötkveðjuhá-
tíð? Hafa íslendingar gleymt öllu því sem ís-
lenskt er? Þurfa þeir að liggja flatir fyrir öllu sem
lítur út fyrir að vera útlenskt? Þegar þú vaknar
upp af þessu tekurðu eftir að þú hefur safnað í
kringum þig hópi af jábræðrum; Gerard Le-
marquies, Elíasi Davíðssyni og Tryggva Hansen.
Þú finnur þig strax illa í þessum félagsskap og
skilur þá eftir í hrókasamræðum um þjóðlegri
hátíðarhöld með steinaspili, torfhleðslum og
klassískum íslenskum leiðindum. Þrír spilarar
þér á hægri hönd sitja hjá eina umferð en þú
mátt halda áfram.
18:05
Bærinn er að tæmast af börnum. Aðeins ein og
ein fjölskylda sem þú mætir á Tjarnargötunni.
En þegar þú gengur fyrir hornið á Ráðhúsinu
sérð þú gamlan kunningja, manninn á bjúkkan-
um að útskýra skemmdirnar á bílnum fyrir eld-
gleypi. Þú neyðist til að húka á hominu í tvær
umferðir þar til hann hefur farið nákvæmlega of-
an í málið fyrir fjölskyldu austan úr sveitum,
pylsusala og einum þingmanni. Gott ef þér sýnd-
ist þingmaðurinn ekki lofa honum að beita sér í
málinu. Þá loks fór hann heim til að pakka bjúkk-
anum inn fyrir næstu fimm árin og þú gast hald-
ið áfram niður í bæ.
12:15
Þú ert að verða of seinn að sækja börnin og
reynir að rifja upp hvar þú skildir bílinn eftir í
gærkvöldi. Finnur hann eftir nokkra leit á bak
við Kaffi Reykjavík og rýkur á stað upp í Hlíðar.
Á Miklubrautinni beygirðu inn í skrautakstur
Fornbílaklúbbsins og sniglast með henni á rúm-
lega fimm kílómetra hraða. Þegar þú finnur
taugaáfall af óþolinmæði vera að hellast yfir þig
gefur þú í, beygir út úr röðinni en tekur með þér
annað afturljósið á Buick 56-módelinu. Öll bíla-
lestin snarstoppar eins og hún hafi orðið fyrir
sameiginlegu áfalli. Maðurinn á bjúkkanum get-
ur ekki varist gráti og spyr í sífellu: „Veistu hvað
ég var lengi að gera hann upp þennan? Veistu
hvað ég þurfti að leita lengi að original aftur-
ljósi? Veistu hver átti þennan bíl? Veistu að ég
hef ekki tekið hann út úr skúrnum í fimm ár til að
spara hann?“ Þú segir samviskusamlega nei á
eftir hverri spurningu en gefst svo upp og keyrir
í burtu. í baksýnisspeglinum sérðu manninn
hvar hann stendur óhuggandi og horfir á brotna
afturljósið og þú sérð ekki betur en mennirnir
þrír sem standa hjá honum séu líka grátandi. Þú
skammast þín og ferð aftur um einn reit.
14:30
í Bankastræti færð þú að vita
að tapaðir og fundnir einstakling-
ar geti leitað eftir hjálp í Smjör-
húsinu á Lækjartorgi. Þú þangað.
Önug lögreglukona spyr þig að
hverjum þú sért að leita og þegar
þú segist sjálfur vera týndur og
þurfir að láta kalla nafnið þitt
upp svo börnin þín geti náð í þig,
snýr hún upp á sig og segist ekki
geta eytt tíma sína í miðaldra
karlmenn. Þú verðir bara sjálfur
að finna þín börn. Og bætir við:
„Auk þess get ég varla ímyndað
mér að þú viljir gera börnunum
þínum það að heyra föður sinn auglýstan tapaðan og fundinn á
sjálfan sautjánda júní.“ Þú hrekst út ráðalaus um framhaldið.
bíddu eina umferð.
14:00
Þar sem þú situr á Shanghæ
tekur þú eftir gömlum skólafé-
laga við annað borð og færir þig
yfir til hans. Hann er ekki í góðu
skapi. Hann þolir ekki sautjánda
júní. Ekki frekar en hann þolir
ekki Þorláksmessu og aðra daga sem fá fólkið úr Breiðholtinu til
að koma niður í bæ. Sjálfur býr hann við Laugaveginn og vill helst
fá að hafa hann út af fyrir sig þessa daga eins og alla aðra daga árs-
ins. Eftir byrjunina á þessum degi þá sekkur þú smátt og smátt
niður í þunglyndið til hans, ert helst á því að gefa þessum sautj-
ánda frí en manst þá eftir börnunum þínum og drífur þig af stað.
Þú færð prik og eitt aukakast fyrir það.
t
t
13:40
Þegar þú ert kominn
að Frakkastígnum
heyrir þú að skrúð-
gangan er beint fyrir
neðan þig á Laugaveg-
inum og þú tekur strik-
ið niður eftir. Þetta er
fjölmenn ganga og þú
reynir að hoppa upp
til að sjá betur yfir til
að koma auga á kon-
una og börnin. En
meðan þú ert að
hoppa þetta rekst maður utan í þig, þú missir jafnvægið, reynir að
bera fyrir þig hendurnar en ekki vill betur til en þú grípur um legg
á manni á stuitum sem missir jafnvægið og steypist inn um glugga
á annarri hæð í húsinu á móti. Þú ferð í panik og reynir að dyljast í
fjöldanum en nokkrir stultu-menn sem eru stumra yfir félaga sín-
um koma auga á þig, hrópa „þarna er hann“ og taka til við að
skeiða á eftir þér. Þér líst ekki allskostar á að glíma við fimm metra
menn og tekur á rás niður Laugaveginn, rekst utan í manninn með
symbalana í Lúðrasveit verkalýðsins og það verður ekki til að
vekja á þér minni athygli. Enn eru stultumennirnir á eftir þér og
þér líður eins og stráknum með tröllskessurnar stóru og stórstígu
á eftir þér en enga búkollu. Sem betur fer eiga stultumennirnir í
erfiðleikum með að fóta sig í mannþröng og þegar nokkuð hefur
dregið á milli ykkar stekkurðu inn á Shanghæ, finnur dýpsta og
myrkvaðasta borðið lengst inn í sal og pantar þér bjór og súpu.
Fyrir utan gluggann sérð þú stultumennina labba fram og til baka í
leit að þér eins og vélmennin í Innrásinni frá Mars. Þeir komast
hins vegar ekki inn um dyrnar og þú ert óhultur á Shanghæ í
tvær umferðir.
13:20
Fornbílaklúbburinn hefur tafið
þig og það er engin kona og engin
börn í Hlíðunum. Af ótta við að
rekast aftur á manninn á bjúkkan-
um ekur þú Kringlumýrarbraut-
ina og Skipholtið niður á Hlemm
og felur bílinn bak við Hampiðju-
húsið. Við þetta tefst þú um eina
umferð og sérð á eftir skrúð-
göngunni framhjá Trygginga-
stofnun og manninn á bjúkkanum
að beygja inn Laugaveginn frá
Rauðarárstíg. Þú sérð þann kost
vænstan að hlaupa niður Grettis-
götuna í veg fyrir skrúðgönguna.
Aðsóknin á
sveita-
böll sum-
arsins er farin að
taka á sig nokkra
mynd. Um síðustu
helgi hélt SSSól sitt
fyrsta sveitaball í
Ýdölum í Aðaldal þar
sem yfir þúsund ung-
menni mættu. Sólar-
menn hafa sjálfsagt
gert ráð fyrir góðri
aðsókn enda hafa
þeir eftir áralanga
reynslu náð að
spotta út hvar þeir
eru vinsælastir, en
sem kunnugt er ætl-
ar Sólin aðeins að
taka sveitaböll á fá-
einum stöðum í sum-
ar. GCD hefur einnig
farið nokkuð vel af
stað þó ekki hafi allt-
af verið yfirfullt hjá
þeim á öllum sveita-
böllum. Til að
mynda gekk GCD frá-
leitt eins vel í Ýdöl-
um um síðustu helgi
og Sólinni helgina á
eftir. En það er bæði
gömul saga og ný að
ekki eru ailar hljóm-
sveitir jafnvinsælar í
öllum hornum lands-
ins. Sem dæmi af
þessum toga er
Hreðavatnsskáli enn
í eigu Milljónamær-
inganna sem ár eftir
ár hafa troðfyllt skál-
ann, þar á meðal fyr-
ir tveimur helgum
síðan. Og hyggjast
þeir gera slíkt hið
sama á þjóðhátíðar-
daginn...