Helgarpósturinn - 28.03.1996, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 28.03.1996, Blaðsíða 8
8 F1MMTUDAGUR 28. MARS1996 Stúlkurnar fjórar sem réðust á Ingunni Pétursdóttur á Akranesi í janúar gengu fram af mikilli hörku og veittust ítrekað að fórnarlambi sínu með höggum og spörkum, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Vesturlands. Atlagan að Ingunni er rakin hér á eftir eins og henni er lýst í málsskjölum. Árásin var Idómi Héraðsdóms Vestur- lands yfir stúlkunum fjórum sem réðust á Ingunni Péturs- dóttur á Akranesi í janúar kem- ur fram að árásin var lífshættu- leg, hrottafengin og tilefnis- laus. Líf Ingunnar, sem er 16 ára, hafi hangið á bláþræði. Tvær stúlknanna sem stóðu að árásinni voru 15 ára þegar þessir atburðir urðu, ein var nýlega orðin 16 ára og sú fjórða 18 ára. Högg og spörk Ingunn var stödd í miðbæ Akraness aðfaranótt laugar- dagsins 20. janúar. Um tvöleyt- ið um nóttina hitti hún stúlk- urnar fjórar við húsið Kirkju- braut 8. Þær töldu Ingunni hafa tekið í heimildarleysi tvær bjórflöskur frá bróður eins þeirra. í framhaldi af stutt- um orðaskiptum vegna þessa réðust þrjár stúlknanna á Ing- unni, hrintu henni og veittu henni högg þar til hún féll til jarðar. Eftir það spörkuðu þær í hana þar sem hún lá. Tvær stúlkur sem þarna voru á gangi gripu í taumana og Ingunn reyndi að komast undan. Stúlk- urnar fjórar eltu hana og náðu henni á ný við verslun Guð- mundar B. Hannah við Akra- torg. Þar héldu þær barsmíð- inni áfram. Barst leikurinn síð- an yfir Suðurgötuna að húsun- um númer 62 og 64 og linnti ekki barsmíðunum fyrr en elsta stúlkan hafði tekið í hár Ingunnar og skellt höfði henn- ar í hné eða læri sitt. Stúlka sem kom að þegar þetta var af- staðið fór með Ingunni í þvottahús á heimili sínu þarna við. Um klukkan 2.30 um nótt- ina fór Ingunn ásamt vinkonu sinni á sjúkrahús Akraness vegna höfuðverks en var send heim að skoðun lokinni. Seinna um nóttina fundu nokkrir unglingar Ingunni með- vitundarlausa á dyrapalli. Far- ið var með hana á sjúkrahúsið og síðan flogið með hana til Reykjavíkur. „Kallað Mac Fly“ í dómi Héraðsdóms segir að allar stúlkurnar fjórar hafi tek- ið fullan þátt í árásinni. Fram- burðir stúlknanna voru ekki samhljóða um þátt hverrar fyr- ir sig í árásinni. í dóminum seg- ir meðal annars: „Ákærða, R, kvaðst hafa komið að I (Ingunni, innskot HP) og meðákærðu B við Kirkjubraut númer 8 í þann mund að meðaákærða B hafi verið að „slá“ I. Ákærða kvaðst hafa verið á tali við unglinga sem voru þar við. Er hún hafi gefið þeim aftur gaum hafi I legið í jörðinni. Kvað hún allar ákærðu nema meðákærðu L hafa sparkað í I liggjandi. Nán- ar aðspurð um hvar spörkin hafi lent segir ákærða: „Hún (I) lá á hlið og var öll saman- kreppt og var með lappirnar á kviðnum, ég sparkaði þar en það hefur bara farið í lappirn- ar.“ Hún kvaðst ekkert hafa hugsað út í það á þeim tíma hvar spörkin komu á I. Að- spurð um það hvort spörk hennar hafi getað farið í höfuð- ið á I þá sagði ákærða R: „Það er kallað Mac Fly, það er rétt að strjúka, en það þarf ekki að vera að það hafi farið í hausinn á henni, hún kveinkaði sér ekki og sýndi ekki nein viðbrögð." Heyrðist smellur Varðandi framburð elstu stúlkunnar segir meðal annars í dóminum: „Ákærða, L, hefur sagt, að hún hafi verið við Kirkjubraut 8 þegar meðákærða, R, hafi kallað til hennar að með- ákærðu ætluðu að ráðast á I og síðan hafi R hlaupið bak við húsið. Kvaðst ákærða L hafa hlaupið á eftir þeim og horft þar á meðákærðu slá I og sparka í hana. Hún kvað með- ákærðu hafa hrint I til og frá þannig að hún hafi dottið í jörðina, en meðákærðu spark- að í hana þar sem hún lá. Ákærða kvaðst þá hafa farið frá litla stund, en þegar hún hafi komið aftur hafi hún séð meðákærðu hlaupa á eftir I út á Suðurgötu þar sem barsmíð- unum hafi verið fram haldið. Ákærða kvað I hafa enn hlaup- ið frá þeim yfir götuna, en ákærðu elt og meðákærðu haldið áfram að áreita hana. I hafi viljað tala við meðákærðu, B. Ákærða kvaðst þá hafa sagt „passaðu að B geri ekki svona“ og tekið aftan í hnakka I og skellt höfði hennar í læri sér. Enni I hafi lent á lærinu ofan við hnéð og hafi við það heyrst smellur. Kvaðst ákærða hafa gefið I fastara högg en hún hafi í raun ætlað að gera, hún hafi aðeins ætlað að gera hana hrædda." Fyrir dómi bar ákærða B meðal annars að hún hefði fyrr um kvöldið reynt að gefa Ing- unni sams konar „hnéspark" og ákærða L gerði síðar, en það hafi mistekist. Stúlkurnar sem réðust á Ing- unni báru að margir unglingar sem voru á ferli hefðu kvatt þær til að halda áfram að veit- ast að Ingunni. Mikil blæðing inn á höfuðid I vottorði Þóris Ragnarsson- ar, sérfræðings í heila- og taugaskurðlækningum, sem hann staðfesti fyrir dómi, seg- ir meðal annars um ástand Ingunnar Pétursdóttur við komuna til Reykjavíkur: „Strax við komu var ljóst að þessi stúlka hafði orðið fyrir miklum og alvarlegum áverka með teikn um aukinn þrýsting inni á höfðinu og var því í skyndi gerð tölvusneiðmynda- rannsókn á höfði, sem sýndi geysilega stóra og mikla blæð- ingu inn á höfuðið hægra meg- in, um var að ræða svonefnda utanbastsblæðingu eða epi- dyral hematoma, það er að segja blæðingu milli ystu heilahimnu og höfuðkúpu- beins. Þessi blæðing var geysi- lega stór og hafði valdið mikl- um þrýstingi á heilann. Sjúk- lingur var því í skyndi flutt á skurðstofu þar sem gerð var aðgerð á höfði sjúklings og blæðing tæmd út og frekari blæðing stöðvuð. Aðgerðin gekk algjörlega áfallalaust. Eft- ir aðgerðina sýndi I strax merki um verulegar framfarir en hafði þó lengi merki um mikla og alvarlega truflun í heilastarfsemi, sérstaklega heilastofnsstarfsemi með verulega miklu spasticitet eða stífleika í öllum útlimum og verulega skerta meðvitund lengi framan af. Eftirlitstölvu- sneiðmyndir af höfði sýndu blæðinguna alia tæmda í burtu en sýndu einnig merki um bjúg eða bólgu í hægra heilahveli, en þessar breytingar gengu síðan smám saman til baka. Við höfuðaðgerðina kom í ljós sprunga í höfuðkúpu á hægra gagnaugasvæði og beint undir sprungunni var rof í æð í ystu heilahimnu og var sú æð blæð- andi þegar höfuðið var opn- að...“ Að mati Þóris var höfuð- högg orsök blæðingarinnar. Gagnaugabein sé afskaplega þunnt og því þurfi ekki mikið högg til að brjóta það. Hins vegar sé ekki hægt að fullyrða hvort höggið hafi verið eitt eða fleiri. Líklegast sé að Ing- unn hafi orðið fyrir höggi á þeim stað á höfðinu þar sem sprungan var, en þó sé ekki útilokað að sprunga geti kom- ið fram þarna við högg annars staðar á höfuðið. Læknirinn kvað Ingunni nú heilsast vel og góðar horfur væru til þess að hún næði sér að fullu, sam- kvæmt því er kemur fram í dómi Héraðsdóms Vestur- lands. Breyttu framburði í dóminum, sem Hervör Þor- valdsdóttir kvað upp, segir að sannað sé með framburði ákærðu og vitna, að ákærðu réðust á Ingunni aðfaranótt 20. janúar með höggum og spörk- um. „...Eins og rakið hefur ver- ið eru framburðir ekki sam- hljóða um þátt hverrar ákærðu fyrir sig í árásinni. Auk þess, sem framburðir ákærðu, ann- arra en ákærðu L, við aðalmeð- ferð málsins, voru ekki sam- hljóða framburðum þeirra á fyrri stigum málsins. Þá hafi spörk þeirra ekki komið í höf- uð ákærðu, nema þetta eina spark L. Spörkin hafi heldur ekki verið þung og þær jafnvel verið að moka snjó á I með fæt- inum, þar sem hún lá á jörð- inni. Ákærðu hafa ekki gefið skýringar á þessum breyting- um á framburði sínum. Þá eru framburðir vitna um árásina ekki með öllu glöggir, en um- rædd vitni eru jafnaldrar og/eða kunningjar ákærðu og fylgdust misvel með atvikum. Virðist sem sum vitnin dragi úr því, í framburði sínum fyrir dómi, sem þau höfðu áður skýrt frá hjá lögreglu, að árás- in hafi verið ofsafengin. Öll vitni að sparki ákærðu L bera þó, að töluvert hljóð hafi verið samfara sparki þessu.“ Dæmdar í fangelsi í dómi Héraðsdóms segir meðal annars að við ákvörðun refsingar beri sérstaklega að hafa í huga, að þrátt fyrir að Ingunn hafi nánast náð sér að fullu hafi árásin verið lífs- hættuleg, „...líf hennar hékk á bláþræði og afleiðingar miklar æskuhetjan ■ Jón Múli Árnason CIA og áróður auðvaldsfasistanna Undirritaöur ólst upp viö út- varpshlustun þar sem engum fréttatíma var sleppt og þeim sið hefur veriö haldið. Jón Múli Árna- son var einn þeirra útvarpsmanna sem öll þjóðin þekkti og margir dáöu. Hann starfaði hjá Rikisút- varpinu frá 1945 til 1985 eða í nær fjörutíu ár. Síðan hafði hann umsjón meö djassþætti í mörg ár til viðþótar og enginn djassunn- andi lét þá þætti framhjá sér fara. Auk fjölbreyttra starfa í Útvarpinu blés hann á kornett í ein tuttugu ár með Lúðrasveit verkalýðsins. Hann er einn stofnenda sveitar- innar og nú heiðursfélagi þar. Þá má ekki gleyma því að Jón Múli samdi leikritið Deleríum Búbónis meö Jónasi bróöur sínum og hef- ur það víða veriö sýnt við miklar vinsældir. Þeir bræður sömdu raunar fleiri leikrit meö söngvum og hefur fjöldi þeirra verið gefinn út á plötum og diskum. En hlustar Jón Múli mikið á út- varp í dag og hvernig líkar hon- um það sem hann heyrir? „Ég hlusta á Útvarp Reykjavík, langbylgjuna. Þaö er nú ekki mikið útvarp miðað við öll hin útvörpin, en ég hlusta ekki á þau. Ég hlusta meðal annars mikið á frétt- ir, mér til mikillar skapraunar og skelfingar. Ég heyri hljóðið og þekki það. Það er hljóðið úr CIA, ómengaöur áróður bandarísku auðvaldsfasistanna," sagði Jón Múli í stuttu spjalli viö HP. Þú hefur greinilega ekki breytt þínum pólitísku skoðunum? „Nei. Þegar maöur kemst ungur á rétta sporið dettur manni ekki í hug að breyta því. Ég veit ekki til þess að bókstafur hafi breyst í kenningum Marx, Engels, Leníns og Stalíns. Það stendur allt sem stafur á bók.“ Þú ert þá ófeiminn við að kalla þig kommúnista? „Ég væri stoltur af því að hafa leyfi til að kalla mig kommúnista, en ég er ekki slíkur afreksmaður að ég hafi heimild til þess. Ég hef ekki heimild til að taka mér slíkt sæmdarheiti." Ertu eitthvað að skrifa eða semja um þessar mundir? „Ja, það er nú eins og segir í bresku kvæði: Those moments are few and bad between," sagði Jón Múli Árnason. - SG meðan þær vörðu. Árás ákærðu var hrottafengin og til- efnislaus. Létu ákærðu sér ekki segjast þrátt fyrir afskipti fólks, en snerust öndverðar gegn því og eltu I um götur Akraness og héldu árásinni áfram og stóð hún því yfir í nokkra stund. Hins vegar ber að líta til þess að ákærðu B og R voru einungis 15 ára er at- burðir gerðust og ákærða G nýlega orðin 16 ára. Ákærða L var 18 ára. Ákærðu hafa ekki áður sætt refsingu. Samkvæmt því þykir rétt að ákærðu R, B og G sæti hver um sig fangelsi í tólf mánuði. Refs- ing ákærðu L þykir hæfilega ákveðin tuttugu mánaða fang- elsi. Til frádráttar refsingar ákærðu B og R komi tveir dag- ar, sem þær sættu gæsluvarð- haldi, frá 21. janúar til 22. janú- ar. Til frádráttar refsingar ákærðu G komi þrír dagar, sem hún sætti gæsluvarðhaldi, frá 21. janúar til 23. janúar. Til frá- dráttar refsingar ákærðu L komi 55 sólarhringar, sem hún sætti gæsluvarðhaldi, frá 21. janúar til dagsins í dag. Dæma ber ákærðu til að greiða allan sakarkostnað". Það var Bjöm Helgason sak- sóknari sem flutti mál þetta af hálfu ákæruvaldsins. -sg lífshættuleg og hrottafengin

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.