Alþýðublaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 3
Steffnuliós Sigurður E. Guðmundsson skrifar Grjótaþorp Grímsstaðaholt Undanfarna daga og vikur hafa nokkrar umræður farið fram i tilefni af hugmyndum tveggja ungra og gáfaðra arkitekta um gjörbreytingu á Grjótaþorpi i Reykjavik. Leggja þeir til, að flestöll hús frá liðinni tið, sem þar standa, verði fjarlægð i eitt skipti fyrir öll, og i þeirra stað verði reist nýtiskuleg steinhús. Ég er borinn og barnfæddur vestur- bæingur og má þvi til með að leggja orð i þennan belg. Auðvitað er það rétt, að mörg eru húsin i Grjótaþorpi orðin ærið óhrjáleg og sennilega til litilla nota núorðið. Annað mál er,hvort þar með sé lausnin sú, að setja jarðýturnar á þau og byggja siðan steinkastala i staðinn. Að minu viti þyrfti fram aðfara itarleg athugun á svæðinu og kanna til hlitar ástand og gildi þeirra húsa, sem þar standa. Verði niðurstaðan sú, að einhver verði að fara, aldurs vegna og litils gildis, er ekkert við þvi að segja, en jafnframt þarf þá að kanna hvað komið getur i staðinn. Augljóst virðist mér, að stór steinhús myndu spilla öllu samræmi á þessu svæði og tel raunar, að meira en nóg sé þar að gert. Hins vegar virðist mér koma mjög til greina, að hönnuð yrðu og reist ný timburhús i stað þeirra, sem felld verða, og yrðu þau þá að sjálfsögðu öll á þann veg, að þau féllu sem bezt inn I allt umhverfi svæðisins og ættu sinn rika þátt i að hefja Grjótaþorp á ný til vegs. Gamlir vesturbæingar hljót,a að hugsa til þess með skelfingu að Grjótaþorpi verði eytt og þar komi enn eitt steinsteypu- hverfið i viðbót. Þeir góðu arkitektar Ölafur og Guðmundur hljóta að vera utanbæjarmenn, i mesta lagi austurbæ- ingar. Og felli þeir Grjótaþorpið, fara þá ekki Þingholtin okkar góðu eða Skugga- hverfið næst? Annars vill svo ved — eða, réttara sagt, illa — til, að við Heykvikingar (sem meg- um ekki einu sinni skrifa okkur með stór- um staf lengur) höfum fyrir augunum bæjarhverfi, sem á sinum tima stóð vel fyrirsinu og var ein af rósunum i hnappa- gati þeirrar gömlu og góðu Reykjavikur. Þar á ég við Grimsstaðaholtið, sem á mínum sokkabandsárum var mjög merkilegur staður og sögufrægur um all- an bæ. Þar bjó mikið af merkilegu fólki, sem miklar og góðar sögur fóru af. En ef menn langar til að sjá hvernig fer fyrir Grjótaþorpi, ef jarðýtustefnan sigrar, ættu þeir að skreppa suður á holt. Ég hugsa, að flestum yrði löng leit að þvi gamla og góða Grimsstaðaholti, sem þar stóð með blóma áratugum saman og hafði sinn mikla sjarma. 1 stað þess hefur stein- steypustefnan haidið innreið sina með steinhúsum, sem öll eru eins — og sjarm- inn er horfinn. Borgaryfirvöldin hefðu get að tekið annan pól I hæðinni. Þau hefðu getað tekið ákvörðun um að vernda og varðveita þessa gömlu og söguriku byggð, sem var svo viðkvæm og þarfnaðist alúð- legrar og skilningsrikrar meðferðar. Það hefðji mátt gera með þvi að fella ónýt hús, sem ekkert gildi höfðu, en reisa i þeirra stað önnur hús úr samskonar efni, sem féllu inn i umhverfið. Þannig hefði mátt framlengja lif þessarar byggðar, öldnum og óbornum til yndis og ánægju. En þvi miður, þegar steinsteypan og jarðýturnar leggjast á eitt með dapurlega hugsandi skipulagsyfirvöldum er ekki góðs að vænta. f framhaldi af þessu er ekki úr vegi að benda mönnum á, að Reykjavik á sér mikinn sjóð menningarverðmæta i göml- um húsum og götum i eldri hverfum borgarinnar. Þar er um arf að ræða, sem ekki hefur verið sinnt sem skyldi og al- menningur gefur ekki nægilegan gaum. Gefi menn sér tóm til þess að fara fót- gangandi um vesturbæinn, miðbæinn og vestasta hluta austurbæjarins, munu þeir fara um margar gamlar , merkar og jafn- velfallegar götur. Vesturbærinn er þekki- legur um margt, þótt nokkuð misjafn sé, en jafnmerkust þykja mér Þingholtin og sumir staðir I Skuggahverfinu. Viða má sjá i þessum hverfum gömul, merkileg og falleg hús, sem taka á sig enn meiri ljóma (og göturnar með) ef maður þekkir sögu þeirra og feril að meira eða minna ieyti. Um þetta eru Reykvikingar allt of hirðu- lausir. Mér kæmi heldur ekki á óvart þótt aðfluttir Reykvikingar átti sig litt eða ekki á þessum hlutum og finnist sem borgin sé öll eins: steinsteypt hús og mal- bikaðar götur. En það er misskilningur, það er mikið og margslungið lif i elstu borgarhverfunum. Fyrir um það bil tveimur árum siðan efndi Alþýðuflokksfélag Reykjavikur til kynnisferða fyrir Reykvikinga um eldri borgarhverfin. Ferðir þessar voru allvel sóttar og tókust með afbrigðum vel, enda afar fróðlegar. A liðnu þjóðhátiðarsumri efndi Reykjavikur-sýningin i Laugardals- höll til sams konar fræðsluferða, sem mér skilst að hafi tekizt vel. Slikar ferðir þyrftu að verða fastur liður i borgarlifinu, þvi að þær hafa margþætt gildi fyrir borgarbúa og borgina sjálfa. En hvað sem þvl liður, þyrmið Grjótaþorpi, Þingholt- unum og Skuggahverfi — sjáið hvað hefur skeð með Grímsstaðaholtið og Skerja- fjörðinn. þ c> f réttaþráðurinn Dagsími til kl. 20: 81866 Kvöldsími 81976- „Þetta er tiunda árbók útgáfunnar i þessum flokki —stórviðburðir ársins I máli og myndum”, sagði Hafsteinn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri útgáfunnar Þjóðsögu, um leið og hann kynnti fyrir blaðamönnum „Árið 1974”, sem núerkomiðút. „Svo sem verið hef- ur frá 1966,er sérkafli um Island og islensk málefni, sem Björn Jó- hannsson fréttastjóri hefur annast. „Hér er um að ræða merkilegt heimildasafn, sem verður þvi verðmætara sem lengra liður. Haf- steinn sagðist nú gefa mönnum kost á, að kaupa bækurnar gegn af- borgun, en þrjár fyrstu bækurnar eru nú með öllu til þurrðar gengn- ar og lítið eftiraf sumum árgöngum öðrum. Bókin er að venju hin prýðilegasta að frágangi. Hún er 320 bls. prentuð i ZUrich i Sviss. Aðsetur Þjóðsögu er I Lækjargötu 10. ræna húsinu Á laugardaginn verður opnuð i Norræna húsinu sýning á verkum hins kunna danska listamanns Jens Urup Jensen. Þarna verða til sýnis um 30 oliumálverk, mál- uð á siðustu 10 árum. Auk þeirra sýnir listamaðurinn vatnslita- myndir, grafikmyndir, frumdrög að glermyndum, veggmyndum og myndvefnaði og eru nokkur verk- anna til sölu. Þá verða um 50 litskyggnur, er sýna kirkjur og opinberar bygg- ingar, sem Jens Urup hefur skreytt með glermyndum, vegg- myndum og myndvefnaði stöðugt sýndar meðan sýningin stendur yfir. Jens Urup Jensen er kvæntur islenskri konu, Guðrúnu Sigurð- ardóttur, sem einnig er listmálari og hafa þau m.a. unnið saman að gerð glermynda fyrir Sauðár- krókskirkju, en þær voru settar upp I fyrra. Sýningin verður opin daglega frá kl. 13 til 19 til 30. september og á sama tima er bókasafn hússins og kaffistofa opin. Samstarf toll- varða og lög- gæslu gott Samruni lögreglumanna og tollvarða á smærri stöðum úti á landihefurgefið góða raun. Sinna nú lögregluþjónar á viðkomandi stöðum einnig störfum tollvarða. Þessar upplýsingar fékk Alþýðu- blaðið hjá Kristni Ólafssyni toll- gæslustjóra. Aðspurður um samstarf lög- reglu og tollgæslu á fjölmennari stöðum landsins, einsog til dæmis hér I höfuðborginni, sagði Krist- inn: „Það er ekki mikil samvinna milli þessara aðila, enda er þarna oft um sérhæfð störf að ræða og við erum vel bfinir mannskap. Hins vegar hefur lögreglan ávallt tekið vel i okkar málaleitanir er við höfum beðið þá um aðstoð.” Um sögusagnir þær, að smygl það,er fannst i Langá á Húsavik á dögunum,væri samtengt þvi stóra smyglmáli, er uppvist varð á sið- asta ári og ýmsir töldu tengt Geirfinnsmálinu svonefnda, hafði Kristinn Ólafsson þetta að segja : „Við höfum engin tengsl fundið milli þessara mála. Stórsmyglið frá þvi i fyrra er úr okkar höndum og er nú á vegum dómstólanna. Æskilegt væri að afgreiðsla máls- ins frá þeirra hendi tæki styttri tima en nú er.” Nýtt húsnæði - nýtt nám Nýlega flutti nýi hjúkrunar- skólinn starfsemi sina i fram- búðarhúsnæði að Suðurlands- braut 18. Húsnæðið er hið glæsi- legasta og er vel búið að skólan- um þar. Skólinn var stofnaður árið 1972 og var fyrst til húsa i Endurhæf- ingadeild Borgarspitalans við Grensásveg. 1 skólanum fer nú fram allt ljósmæðranám og auk þess hefur hann annast námskeið sem út- skrifuðum ijósmæðrum hefur gefist kostur á að sækja til að öðl- ast hjúkrunarmenntun. Þessa dagana er einmitt að hefjast I skólanum seinna nám- skeiðið af þessu tagi og er þetta i slðasta sinn sem svona námskeið verðurhaldið, þvi eðlilegra er tal- ið að hjúkrunarkonum verði gef- inn kostur á námi I fræðum ljós- mæðra, en hafa þennan háttinn á. Nýlega útskrifaði skólinn 21 ljós- móðir, sem lokið hefur viðbótar- menntun i hjúkrunarfræðum. Þeir sem þessa menntun hafa koma til með að gegna veiga- miklu hlutverki i framtiðinni, sérstaklega þó úti á landsbyggð- inni. 1 vor annaðist skólinn 7 vikna námskeið fyrir heilsuverndar- hjúkrunarfræðinga og voru þátt- takendur á þvi námskeiði alls 37. Aþbl. gat þess i gær, að um þessar mundir væri að hefjast I skólan- um sérnám i geðhjúkrun sniðið að allverulegu leyti að norskri fyrir- mynd, en námsbrautarstjóri þar verður Þóra Arnfinnsdóttir yfir- hjúkrunarkona á Barnageðdeild Hringsins. Þá stendur yfir i skólanum námskeið i kennslutækni fyrir kennara sem starta munu við námsbraut Háskólans i hjúkr- unarfræðum. Kennari á þessu námskeiði er prófessor i hjúkrun- arfræðum við háskólann i Van- couver og er hér á vegum Alþjóða heilbri gðism álas tofnunarinnar WHO. Hún mun vera fimmti kennarinn sem hingað kemur á vegum þeirrar stofnunar. Stjóm skólans hafa borist óskir frá ýmsum sérdeildum Hjúkr- unarfélagsins um að á hans veg- um verði efnt til sérnáms. Má þar til telja m.a.sérnám i svæfingum, skurðstofuhjúkrun og ellihjúkrun. Skólastjóri nýja Hjúkrunar- skólans er Maria Pétursdóttir. Fimmfaldur tvímenningur Vetrarstarfsemi Tafl- og Bridgeklúbbsins i Reykjavik hefst i kvöld i Domus Medica við Eiriksgötu. Hefst starfsemin að þessu sinni á fimmföldum tvi- menningi. Nánari frétta af starfi klúbbsins er að vænta siðar. Ánægjameðsmá- auglýsingarnar Fjöldi fólks hefur haft samband við Alþýðublaðið til að lýsa yfir ánægju sinni með smáauglýs- ingaþjónustu blaðsins. Að sögn þessara aðila, sem allir hafa á einhvem hátt notað sér þessa biónustu blaðsins, hver á sinn hátt, var árangur upplýsing- anna mjög góður og fjöldi manns hringdi út á þær. Við viljum þvi enn frekar minna fólk á að nota sér þessa þjónustu okkar og vilj- um jafnframt benda á, að Al- þýðublaðiðeitt blaða, veitir þessa þjónustu lesendum sinum að kostnaðarlausu. Viðlagatrygging bætir 95% tjón „Viðlagatryggingunni er ætl- að”, sagði Ásgeir Ólafsson, for- stjóri við blaðamenn, ,,að bæta tjón, sem verða af náttúruham- förum. Lög um hana tóku gildi 1. sept. sl. og er þar ákveðið að bætt skuli allt að 95% tjóns, sem verð- ur af eldgosum, snjóflóðum, vatnsflóðum og skriðuföllum. Þetta nær þó ekki til tjóns, sem nemur undir 100 þús. krónum og miðast við tryggingarupphæð þeirra eigna, sem glötuðust eða skemmdust. Það nær og til inn- bús, ef tryggt er, ella ekki, en hús eru, sem kunnugt er skyldu- tryggð. Þetta er skyldutrygging á öllum tryggðum eignum. Iðgjald verður 0,25 pro mille af trygging- arupphæð i hverju tilfelli, en get- ur þó lækkað um helming, þegar tryggingarsjóður hefur náð 2 pro mille af vátryggingarverðmæt- inuog fallið niður þegar trygging- arsjóður nær 3 promille af heild- arverðmæti eða 1,8 milljarðar (á- ætluð tryggingarverðmæti eru nú 600 milljarðar). Vátryggingarfélögin munu sjá um uppgjör tjóna, hvert við sinn viðskiptamann, eins og um brunatjón væri að ræða, svo og innheimta iðgjöld. Sjóður tryggingarinnar mun geymdur i Seðlabankanum og ætlunin er að semja við hann um verðtryggingu á sjóðnum. Seðla- bankinn mun einnig annast bók- hald stofnunarinnar. Hér er um að ræða hreina eignatryggingu, en ekki á að bæta óbein tjón, s.s. reksturstjón eða þ.u.l. Leitað verður endurtryggingar á ábyrgð sjóðsins, sem raunveru- lega stendur á núlli nú, og er von um slika tryggingu á bærilegum kjörum, en tilboð um það voru opnuð i gær, svo ekki hefur gefist timi til ákvarðana eða samninga. Þetta breytir engu um starf- semi Bjargráðasjóðs, sem heldur sinu striki eins fyrir þessu, enda er starf hans að talsverðu leyti i öðru fólgið”, lauk Ásgeir Ólafsson máli sinu. Alþýðublaðið © Fimmtudagur 18. september 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.