Alþýðublaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 16
SH flutti út fyrir 13.7 milljarða í fyrra Talsverð aukning varð á frystingu þorskafurða og rekstur Coldwater gekk vel Á síðasta ári var heildarframleiðsla hrað- frystra sjávarafurða hjá hraðfrystihúsum innan Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna tæplega 65 þúsund lestir, sem er 10,5% minna magn en ár- ið áður. Stafaði þetta af mun minni loðnu- frystingu, sem var 398 lestir í fyrra en liðlega 13.600 lestir árið 1974. Hinsvegar varð aukning á frystingu þorskafurða, eða úr lið- lega 56 þúsund lestum í rúmlega 62 þúsund lestir. Otflutningur fyrir 13,7 milljarða. A siðasta ári flutti SH út rúm- lega 70 þúsund lestir, sem var 10% meira en árið áður. Verö- mæti þessa útflutnings nam 13,7 milljörðum króna. Mest var flutt út til Bandarikjanna, eða tæplega 43 þúsund lestir, til Sovétrikjanna rúmlega 18 þúsund lestir og til Tékkó- slóvakiu og Bretlands liðlega 3000 lestir. Hagkvæmur rekstur Coldwater. Betur gekk hjá Coldwater Seafood Corporation, dóttur- fyrirtæki SH, en i fyrra en árið áður. Mikil aukning varð i sölu á bandariskum markaði og verð- lag fór hækkandi á árinu. Fyrir- tækið seldi fyrir rúmlega 17 milljarða islenzkra króna. Salan jókst úr 78 milljónum dollara árið 1974 i rúmlega 100 milljónir dollara i fyrra, eða um 29%. 1 fyrra var unnið að smiði frystigeymslu i Everett i Bostón og tekur hún 5000 lestir af fryst- um fiski. Geymslan var tilbúnin i mai, Nú hefur verið ákveðið aö hefja smiði fiskiðnaðarverks- miðju i tengslum við frysti- geymsluna, og á hún að geta tekið til starfa eftir eitt ár. — AG íslenzku hestunum gengur vel í 100 daga ferðinni Þann 31. fyrra mánaðar lögðu 6reiðmenn á 12 islenzkum hest- um af staö i 100 daga ferð þvert yfir Bandarikin. Þessi ferð er farin i tilefni af 200 ára búsetu hvitra manna i rikjunum og auk hinna islenzku hesta verða þar stórir hópar hesta af öðrum kynstofnum reyndir. Ferðin hófst vestarlega i Ne'.w York riki frá smábæ, sem heitir Frankfort, i Herkim- er héraði. Gert er ráð fyrir að ferðinni ljúki i Sacramento i Kaliforniu I septembermánuði n.k. Farið verður um margskonar torleiði, m.a. um Nevada eyði- mörkina. Þær fregnir, sem borizt hafa af islenzku sveitinni benda til að okkar hestar láti sinn hlut ekki eftir liggja, en hinsvegar hafa nokkrir aðrir þegar helzt úr hópnum. Flugleiðir stefna að stækkun flugflotans A aðalfundi Flugleiða, sem haldinn var i' gær, kom meðal annars fram, að stjórnin telur timabært að hefja á næstunni undirbúning að aukningu flug- flota félagsins. Ekki yrði komist hjá þessari aukningu fyrir sumarið 1977. Flugflotinn er nú fullnýttur og von á aukningu i flutningum, ef hagvöxtur heldur áfram i ná- grannalöndunum eins og verið hefur. I þessu sambandi var rætt hvort og hvenær aukning á hlutafé félagsins væri timabær. Stjórnin. 1 stjórn Flugleiða fyrir næsta á voru kosnir: örn Ö. Johnson, Alfreð Eliasson, Svanbjörn Frimannsson, Bergur G. Gi'sla- son, Kristinn Olsen, Einar Arnason, Öttarr Möller, Kristján Guðlaugsson, Birgir Kjaran, Sigurður Helgason og Sigurður Jónsson. Jakob Frimannsson baðst undanendurkjöri, ogvar honum sérstaklega þakkað farsælt og langt starf i þágu Flugfélags Is- lands, en Jakob hefur átt sæti i stjórn frá stofnun Flugfélags Akureyrar árið 1937. Á fundinum var samþykkt að greiða hluthöfum 2,95 prósent arð af hlutafjáreign. 2.7 mill- jarða lántaka erlendis Á fundi borgarráðs á þriðju- daginn samþykkti ráðið fyrir sitt leyti lántökuheimild til handa Landsvirkjun. Leitað var heimildar fyrir lántöku að upp- hæð allt að 15 miiljónir banda- rikjadala eða jafnvirði þeirrar upphæðar i öðrum gjaldmiðli. Þetta jafngildir liðlega 2,7 miiljörðum króna og er lántöku- beiðnin tilkomin vegna Sigöldu- virkjunar. —SG Er brennivínið ódýrt, þegar allt kemur til alls? Brennivínsverð borið saman við verð á kaffi og ýsu Hinar tiðu verðhækkanir hér á landi, hafa oft á tiðum gefið reiknimeisturum tilefni til ýmiskonar útreikninga. Hefur þá gjarnan verið farið aftur i timann og reiknað út hvað hin eða þessi varan hafi hækkað mikið i samanburði við aðrar, getur það oft á tiðum verið mjög athyglisverðar út- komur sem menn fá úr slikum dæmum. Nýlega geröi Afengisvarna- ráð slikan samanburð á Brenni- vini annarsvegar og kaffi og ýsu hinsvegar. Var þá borið saman verð i nóv.1967 við verðið 13. mai 1976. nóv. 1967 Ýsadkg.)................ 15 kr. KaffiUkg.).............. 84 kr. Brennivin (1 fl.).......315 kr. 13. mai 1976 ÝsaU.kr.)............. 160kr. KaffiU.kg.)........... 720kr. BrennivinU.fi.) ......2600 kr. Var það niðurstaða áfengis- varnaráðs, að ef Brennivins- verð hefði hækkað jafn mikiö og verð á kaffi ætti það að vera 2700 kr. Ef Brennivinsverð hefði hins vegarhækkað jafnmikið og verö á ýsu, ætti það að vera 3.360 kr. Það skal þó bent hér á sem hugsanlega skýringu á þessu misræmi, að ekki er um sömu þyngd að ræða á þessum vöru- flokkum sem bornir eru saman. Til dæmis mun innihald Brenni- vinsflöskunnar ekki vega mikiö meira en 700 gr. —gek 1 verðbólgunni hefir verð á ófengi ekki stigiö til jafns á við verft d nauðsynjavörum. FÖSTUDAGUR 1 I- JÚNÍ 1976 alþýðu blaölö Heyrt: Að þeim Ólafi Ragnari Grimssyni og Eysteini Jónssyni hafi lent harkalega saman i um- ræðum á aðalfundi SIS i Bifröst. Var það að vonum harður skellur, þvi Eysteinn var i eina tið búinn að hæla Ólafi mjög við Austfirðinga sem væntanlegum eftirmanni slnum i kjördæminu. Ólafur sveik þó Framsóknar- flokkinn og Eysteinn varð að flýta sér austur tii að taka aftur allt lofið um Ólaf. Lesið: I Lögbergi-Heims- kringlu, að nú sé hvert sæti skipað i flugvél, sem fer frá Winnipeg með Vestur-Islend- inga til íslands 29. þessa mánaðar. Tveir Vestur-ís- lendingar, sem hafa stofnað ferðafélagið Viking Travel Ltd., skipuleggja þessa ferð, og hafa þegar byrjað að undirbúa ferðir 1977. Þeir ætla þá meðal annars að reyna að fá farþega frá Is- landi. Heyrt: Að almenningur sé nú orðinn mjög undrandi á fram- gangi Geirfinnsmálsins. Ekkert hefur heyrzt um rannsókn þess i langan tima, og spyrja menn nú hvort þetta mál eigi að lognast útaf eins og mörg önnur. Vart yrði það til að auka traust þjóðarinnar á dómsvaldinu. . m: Tekið eftir: Að skoðana- könnunum Alþýðublaðsins og Dagbiaðsins um það hvort Bandarikjamenn eigi að greiða fyrir aðstöðu sina hér á landi eða ekki, ber mjög saman. Af hverjum 100, sem Dagblaðið spurði, voru 70 meðmæltir gjaldi. Af hverjum 100, sem tóku þátt i skoðanakönnun Alþýðu- blaðsins, voru um 56% með- mæltir þvi að taka leigu fyrir herstöðina. Aronskunni virðist þvi hafa vaxið fiskur um hrygg. m Lesið: I Islendingi á Akureyri, að rétt til fundarsetu á aðalfundi KEA hafi átt 211 fulltrúar frá 24 félagsdeildum, en alls hafi komið 204 fuíltrúar frá 20 deildum. Af þessum 204 full- trúum voru 7 konur, þar af 5 úr Akureyrardeildinni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.