Vísir - 09.02.1974, Qupperneq 1
64. árg. — Laugardagur 9. febrúar 1974. — 34. tbl.
SÚ GAMLA
KLÁRAÐI
SIG - BAKSÍÐA
Verður löndunarbann?
— líkur ó að loðnubrœðslurnar taki drœmar við loðnunni á
nœstunni vegna yfirvofandi verkfalla
Fáum við
okkar
STRIK?
Svo kann að fara, að ekki
bara Austurstræti verði
göngugata i framtiðinni, —
heldur einnig Bankastrættog
Laugavegur. Þá fengju
Key kvikingar kilómetra
langa götu fyrir þá, sem
sinna búðarandi. Má segja,
að höfuðborgin hafi þá eign-
azt sitt strik, álika og þeir
hafa i Kaupinhafn. — Bls. 3
Það hœttu
baro allir
að hlusta
— sjá frétt um
fréttatíma
útvarpsins
— baksíða
Smyslov
efstur
Smyslov er nú kominn
með 4 vinninga á skákmótinu
og er efstur. Eftir umferöina
I gærkvöldi erú svo Forintos
og Friðrik næstir, með 3 1/2
vinning. 1 gærkvöldi vann
Guðmundur Kristján,
Forintos vann Jón, Ciocaltea
vann ögaard, Smyslov
vann Magnús og Tringov
vann Kristján. Benóný mætti
ekki til leiks við Freystein og
tapaöi þvi á tima.
— ÓH
Lesendur hafa
sitt af hverju til
mála að leggja
— bls. 2
Alþjóðíegt
kommúnulíf í
Vestm.eyjum
— bls. 3
Stjórnendur loðnu-
bræðslnanna héldu með
sér fund i Reykjavik i
gærdag, þar sem fjallað
var um hugsanlegar
ráðstafanir vegna yfir-
vofandi verkfalla. Verk-
föll hafa verið boðuð frá
og með 19. febrúar, og
þá lizt verksmiðjustjór-
um og eigendum illa á
að vera með fullar þrær.
Ákveðið var að gefa út sameig-
inlega yfirlýsingu um niðurstöðu
fundarins i gær, og kemur sú yfir-
lýsing út seinnipartinn i dag.
Visir reyndi i gærkvöldi að
hlera niðurstöður fundarins, og
virðist ljóst, að verksmiðjustjórn-
ir reyna að gripa til einhverra
ráðstafana.
Hverjar þær ráðstafanir eru, er
ekki gott að segja, en sennilega
ætla verksmiðjustjórar ekki að
stoppa bræðslu, setja á löndunar-
bann allt i einu. Likur hljóta að
vera á, að dregið verði úr bræðslu
hægt og hægt, ekki landað svo ört
úr bátum, að jafnan fyllist i það
skarð sem myndast i þrónum við
bræðsluna.
Þetta þýðir einfaldlega — ef
rétt er ráðið i það. sem Visir þyk-
ist hafa hlerað — að verksmiðju-
stjórnir ætli að taka við einhverri
loðnu áfram. löndunarbannið
verði ekki algert.
En yfirlýsingin kemur út
seinnipartinn i dag. —GG
Sala á
áfengi
hefur
minnkað
— Minna hefur verið
keypt ó
vínveitingahúsunum
eftir síðustu
ófengishœkkun
i stað þess að aukast hefur
sala á áfengi staðið i stað og
fremur dregið úr henni en að
hún hafi aukizt. Það eru samt
stórar upphæðir, sem keypt er
fyrir sem fyrr. Samkvæmt
upplýsingum skrifstofustjóra
Afengisverzlunar rfkisins var
salan 15S.3 milljónir króna á
fyrsta mánuði ársins.
Á sama tima i fvrra var selt
áfengi fyrir samtals 125.3
milljónir, sem er að visu 26
prósent lægri upphæð. en það
ber að hafa i huga. að siðan
hafa orðið áfengishækkanir og
sú siðasta þeirra stærst. eða
sem nam 25 prósentum.
Ýmsar getgátur voru á lofti
siðasta mánuð ársins um áhrif
þjónaverkfallsins og hinna
þurru mánaða af þess völdum.
Bjuggust margir viö. að
áfengisneyzla yrði drjúg á
veitingahúsunum fyrst eftir að
úr hinu langa verkfalli levstist
og barirnir opnuðu að nýju.
Nú hefur það komið i ljós. að
á allflestum véitingahúsunum
hel'ur sala áfengis fremur
dregizt saman frá þvi sem var
fyrir verkfall. Er þar kennt
um áfengishækkuninni. sem
varð aðeins örfáum dögum áð-
ur en barirnir opnuðu að nýju
með stórhækkuðu sjússaverði.
Sannazt hefur réttmæti
þeirra orða blaðafulltrúa
þjónanna. sem hann lét hal'a
eftir sér i viðtali eftir áfengis-
hækkunina: ,,Við stöndum
uppi með óseljanlega vöru eft-
ir þessa miklu hækkun".
DYRIN FA SINN SPITALA
- Watson afhendir hann formlega á mónudag
Já, það er ekki ástæða til annars
en að treysta honum Lappa,
þessum lifsreynda og gáfaða
hundi. Og þaö er greinilegt, að
barnið kann vel að meta þennan
félaga sinn. Hann Lappi hefur
lent i mörgu um svina. Haustið
1972 fannst liann i reiðileysi við
Menntaskólann i Hamrahlið,
var tekinn þar af góðviljuðum
nemendum, sein komu honum
til Hundavinafélagsins. Þaðan
var honum ráðstafað til góðs
fólks i Eyjum, — Og svo fór að
gjósa. Enn þurfti Ilundavinafé-
lagið að koma til sögunnar, og
að þessu sinni fékk Lappi nýja
húsbændur heima hjá fjölskyldu
Guðmundar Sigurdórssonar.
Við hittum Mark Watson að
máli i gærdag, en hann er hér i
heimsókn. Hann tjáði okkur, að
á mánudaginn kl. 16 mu.ndi
dýraspitalinn formlega al'hent-
ur við athöfn, sem fram á að
fara i Höfða. Eins og kunnugt er
gaf Watson þjóðinni spitalann,
sem enginn treysti sér lengi vel
að taka við.
—JBP—