Vísir - 15.11.1975, Blaðsíða 4
4
KIRKJAM O
Hugleiöing Kirkjusiöunnar i
dag fjaliar um fyrirgefn-
inguna og þaö hugarfar, sem
er forsenda hennar.
Höfundur þessarar hug-
vekju er presturinn á Raufar-
höfn — sr. Kristján Valur
Ingóifsson. Hann er Þingey-
ingur, f. á Grenivfk áriö 1947,
varö stúdent áriö 1968 og lauk
prófi I guöfræöi 28. sept. 1974.
Daginn eftir var hann vígöur
til Raufarhafnarprestakalls,
þar sem hann var settur prest-
ur en skipaöur 1. mái 1975. Siö-
an 1. febrúar s.I. hefur hann
veriö settur prestur I Sauöa-
nesprestakalli.
Kona sr. Kristjáns er
Margrét Bóasdóttir Ur Mý-
vatnssveit, f. 1952. Hún er
kennari aö mennt og hefur
iokiö tónmennta- og einsöngv-
araprófi.
Hún kennir nú viö skólann á
Raufarhöfn.
HUGLEIÐING
EFTIR SR.
KRISTJÁN VAL
INGÓLFSSON
Lífsvatnið
Jesús sagði: Hvern þann, sem
drekkuraf vatninu, sem ég mun
gefa honum, mun aldrei að
eilifu þyrsta, heldur mun vatn-
iö, sem ég mun gefa honum
verða i honum að lind, er sprett-
ur upp til eilifs lifs.
Sambandslínan
Ljótur munnsöfnuður var eit-
ur i beinum móður minnar. Ef
það henti okkur að segja ljótt
orð, var óðara tekið fyrir það
með umvöndunum og leiðbein-
ingu. „Blótsyrði er ákall til
myrkrahöfðingjans,” sagði hún.
Þau væru sambandslina milli
mannsins og hins illa vjalcfs þótt
maðurinn gerði sér ekki ’grein
fyrir þvi, og ljótum munnsöfn-
uði fylgdi fleira óhreint. — Þetta
var hennar skoöun.
(Ásm. Eiriksson.)
ÞÚ MUNT
LEIÐA MIG
Þú munt leiða mig eftir
ályktun þinni og siðan láta
mig ná sæmd. Hvern á ég ann-
ars að á himnum? Hafi ég þig,
hirði ég eigi um neitt á jörðu.
Þótt hold mitt og hjarta tærist
er Guð bjarg hjarta mins og
hlutskipti mitt um eilifð.
Sálm. 73, 34-36.
LÍF HANS
VAR LEIT
Llf hans var leit að hinu æðsta,
fyrst og fremst að Guði. Hann
leitaði og hann fann. Og Guð
var ekkií storminum og ekki i
landskjálftanum og ekki i eld-
inum. Hann var, eins og forð-
um i hinum bliða blæ. Og
trúarjátning Matthiasar var
þessi:
1 sannleik hvar, sem sólin skin
er sjálfur Guð að leita þin.
(Einireiöin 1935).
GJAFIR TIL
KRISTNIBOÐS
A þessu ári til ágústloka námu
gjafir til Kristniboðssam-
bands Islands rúml. fimm og
hálfri milljón króna eða
nákvæmlega kr. 5.589.862.
Á TÍMAMÓTUM
Við stöndum á alvarlegum
timamótum i áfengismálum
nú, svo alvarlegum, að mig
furðar næstum á, að hver
einasti kennari og prestur
skuli ekki skipta sér saman i
sveit til að firra þjóð sina eftir
megni því mikla böli, sem
áfengið er að valda þjóðfélag-
inu”.
Þessi orð skrifaði Hannes J.
Magnússon i Kirkjuritið fyrir
40árum. Ekki eiga þau sið-
ur við nú. Hver kennari og
prestur getur áreiðanlega
tekið þau til sin i dag eins og
fyrir fjórum tugum ára.
Raufarhafn-
arkirkja
Þessa fallegu mynd af kirkj-
unni á Raufarhöfn tók Jó-
hanna Björnsdóttir á fögrum
sumardegi, þ. 12. júli 1969.
Myndin er líka talandi fyrir
atvinnu sóknarbarnanna.
Báturinn i fjörunni minnir á
sjósókn og sjávarútveg.
Raufarhafnarkirkja var
reist áriö 1928, þvi aö meö
stjórnarráösbréfi fimm ár-
um áöur var ákveöið aö
flytja skyldi kirkjuna frá
Asmundarstöðum á Sléttu I
þéttbýliö á Raufarhöfn. Og
meö iögum frá árinu 1936 var
þaö lögfest aö presturinn
skyidi búa á Raufarhöfn en
ekki á Svalbarði i Þistilfiröi
eins og veriö haföi um alda-
raöir.
Sira Kristján Valur
Ingóifsson er fjórði sóknar-
presturinn, sem á heima á
Raufarhöfn.
Bæn: Frelsa oss Drottinn Guö frá
þeim anda, sem vekur missætti
frá þvi skaplyndi, sem neitar að
fyrirgefa og vill ekki gleyma, og
frá vantrú á mátt þinn tii að
breyta hjörtdm mannanna. Þess
biöjum vér þig sakir Drottins
vors Jesú Krists. Amen.
Þú manst eftir guðspjallinu um
skulduga þjóninn, sem ekki gat
greitt húsbónda sinum. Þú manst,
að húsbóndinn gaf honum upp
skuldina, sem þó var mjög mikil.
Þessi sami þjónn var þó gvo
miskunnarlaus, að hann lét varpa
samþjóni sinum i fangelsi, af þvi
hann gat ekki greitt smáupphæð.
Og guðspjallið segir: En er
samþjónar hans sáu hvað orðið
var, urðu þeir mjög hryggir, og
þeir komu og sögðu húsbónda sin-
um allt sem orðið var. Þá lét hús-
bóndi hans kalla hann til sín og
segir við hann: Illi þjónn, ég gaf
þér upp alla skuldina, með þvi að
þú baðst mig, bar þá eigi einnig
þér að vera miskunnsamur við
samþjón þinn, eins og ég var
miskunnsamur við þig. Og hús-
bóndi hans varð reiður, og seldi
hann i hendur böðlunum, þangað
til hann hefði borgað alla skuld-
ina. Þannig mun einnig faöir
minn himneskur breyta við yöur
ef þér fyrirgefið ekki hver og einn
af hjarta bróöur yöar. (Matt. 18:
23-35).
Þannig endaði Jesús þessa
dæmisögu.
Þessi setning knýr oss til
ihugunar um lif vort og starf.
A margra vörum er nú einskon-
ar máltæki svohljóðandi: ,,Nú eru
erfiðir timar”. Vissulega eru
erfiðir timar. Þeir hafa verið það
um aldaraðir. Til er saga, sem
segir frá manni nokkrum, sem
skarst illa á höfði. 1 stað þess að
leita læknis, tróð hann húfu á
höfuðið til þess að hylja sárið.
Hann hafði samt sáran verk i
höfðinu, og hann hugsaði: Þung-
an kross verð ég að bera, sem er
þessi höfuðverkur. — Sárið bólgn-
aði og það gróf i þvi, og það hljóp
drep i það, sem siðan breiddist út,
með þeim afleiðingum að maður-
inn dó.
Þessi saga er áreiðanlega lygi.
Meira að segja ótrúleg lygi. Samt
er nákvæmlega samskonar lygi
að gerast allt i kring um oss.
Það eru kýli á þjóðarlikaman-
um, og vér troðum á þau húfu-
pottloki og segjum: Það eru erfiö-
ir timar! Vist verður aö stinga á
þessum kýlum.en þaðeitt er ekki
nægjanlegt, þaö þarf að kveða
niður þá kýlapest, sem herjar allt
mannlif og gerir hina góðu
sköpun Guðs, veröldina, illa að
yfirbragði.
Pestarvaldurinn, — sýkillinn,
er finnanlegur i oss sjálfum i liki
e.igingirni og sjálfselsku. Þar
verður þvi hreinsun vor að hefj-
ast.
Það er almennt viðurkennt, að
ég verði að vera fljótur til að rota
andstæðing minn, ef ég vil ekki
liggja sjálfur. Hið gamla orð:
Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn
sýnist enn i fullu gildi, enda er því
dyggilega haldið uppi af fyrr-
greindum sýkli.
Hún virkar hjáróma röddin
sem segir: Elskið óvini yðar og
biðjið fyrir þeim sem ofsækja yð-
ur.
Inntak þessa guðspjalls er
fyrirgefning, en það er kúnst, sem
sjálfselska og eigingirni kunna
ekki, og' vilja ekki læra.
Fagnaðarerindið er heiminum
heimska.
Hvað stoðar það þótt einhverjir
kennimenn hrópi það yfir söfnuð-
ina að Orð Guðs standi stöðugt,
og að það sé óbrigðult lifakkeri,
þegar heimurinn allur er á önd-
verðum meiði. Það er þá kannski
slegið af kenningunni, og boðuð
afsláttar guðfræði, kærleikur
Guðs með sykurhúð og súkkulaði-
sósu. Allt er svo fallegt og gott, að
meðan heimshyggjan gæðir sér á
súkkulaðinu, heldur hrunadans-
inn áfram með meiri hraða, af þvi
að Guð er álitinn alvörulaus Guð,
einskonar gervijólatré til að
skreyta og dansa i kring um við
hátiðleg tækifæri. Hvað varðar
oss um fyrirgefningu Guðs? Ekk-
ert? Ef ég segi þér i krafti þess
orðs er ég er settur til að þjóna
að þú sért ábyrgur fyrir Guði, af
þvi þú ert á pappirnum skráður i
kirkjuna hans og verðir krafinn
reikningsskapar, þá er málið
leyst með þvi að segja að ég sé
fordóma- og hrokafullur. Ef Guðs
orð segir þér að þú sért dauðasek-
ur, af þvi að þú reiðist við bróður
þinn, og þarft fyrirgefningu Guðs
til að öðlast eilift lif, þá er sagt að
nú séu breyttir timar, og þar með
breytt merking þessarra orða.
VCRIÐ FÚS Tll
AÐ FYRIRGCFA
Vér erum sek. Sekt vor er svo
mikil, að hún er ekki lengur
geymd i fylgsnum hugans, heldur
hrópar hún á strætum úti. Fyrir-
gefning Guðs er bundin skilyrði.
Hún fæst aðeins ef þú fyrirgefur
sjálfur. Ef ekki þá kallar þú yfir
þig reiði hans, og þér er kastað
út. Reiði hans er hin agandi reiði,
sem rekur oss á knén, er vér sjá-
um hver brestur vor er til þess að
biðja hann fyrirgefningar. Og þá
mætir oss þetta orð hans, svo sem
þér fyrirgefið skuldunautum yð-
ar, þannig fyrirgef ég einnig yð-
ur, sem eruð eilifir yfirtroðslu-
menn, ósjálfbjarga ef þér eruð
ekki daglega leiddir við hönd. All-
ar sjálfstæðar tilraunir til að
komast upp til himna eru fyrir
fram vonlausar. Allar tilraunir til
að hreinsa hjörtu voru af eigin-
girni og sjálfselsku sömuleiðis.
Vér getum aldrei byggt neins-
konar himnariki á jörð. Allar
tilraunir til að leysa heiminn úr
þvi illa feni, sem hann lyktar af,
eru vonlausar. Við höfum fallið
frá Guði, og tekið að tilbiðja afguð
i oss sjálfum.
Sérðu, — finnurðu þörfina fyrir
hreinsun, endurnýjun?
Þá hefur Guð snortið þig með
heilögum anda sinum. Krjúptu.
Guð fyrirgefur. Hann hefur sjálf-
ur byggt brúna, sem vér þörfn-
umst. Reikningurinn þinn er þú
gætir aldrei greitt er stimplaður
með einum krossi. Guð kom til
móts við þig, og keypti þig lausan
i krossdauða Jesú Krists.
„Verið þessvegna góðviljaðir
hver við annan, miskunnsamir og
fúsir til að fyrirgefa hver öðrum,
eins og lika Guð hefur i Kristi
fyrirgefið yður. (Ef. 4:32). Amen.