Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Page 6
86 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Han hafði eldrei hugsað um lífið sem þá miklu dulargátu sem það er. Hann hafði öslað gegnum lífið með lokuð augu. Hann gæti sjálfur dottið niður dauður áður en sól væri af lofti. Og hver væri svo útkoman af æff hans? Þar mundi ekki talin # áform hans um þegar og ef — einhvemtíma í framtíðinni. Það liðna aðeins var staðreynd. Því sem orðið var var ekki hægt að breyta. Hver hlutur sem hann hafði gert var ritaður á töflur tímans, og ómögulegt að þurka hann út. Hann dró andann og fann til ununar af því hvernig svalt kvöldloftið fylti lungun. Hann lifði og hann langaði til að verða sæll í lífinu. Hann ætlaði að fara til for- stjórans undir eins og leggja spilin á borðið. Og svo varð það að koma sem koma vildi. Hann gat ómögulega skilið hvernig hann hafði dregist út í þetta ó- sæmilega líferni. Þegar hann leit um öxl fann hann, að eigin- lega hafði hann verið sælastur á því skeiði, sem hann eyddi engu í óþarfa. — Hann fór að næstaj símaturni og fletti heimilisfangi bankastjórans upp í síma- skránni. ★ ANS CLAUSEN nam staðar við blaðaskúrinn undir Sí- valturni og las efnismiðana frá kvöldblöðunum. Það hafði víst ekkert markvert skeð. Með stór- um stöfum, sem náðu yfir þrjá fjórðu af fregnmiðunum, var sagt frá því, að stúlka á hjóli og hestvagn hefðu rekist á við Norrebros Rundel. Tvö þúsund egg hefðu brotnað. Svo stóð, með miklu minna letri, að franska stjórnin væri oltin úr sessi, og að jörðin ætti, sam- kvæmt vísindalegum rannsókn- um, að farast eftir átta daga. Hans Clausen hafði lofað að fara í búðir fyrir konuna sína, en því gat hann frestað þangað til hann færi með lestinni heim. í staðinn keypti hann vönd af krysantemum og fór heim til Mögdu Winther. Hann hringdi dyrabjöllunni en það leið löng stund þangað til hann heyrði fótatak hennar í ganginum. — Jeg hjelt að þú værir — en hvað gengur að þjer? Hún ljet hann fara inn í stof- una og lokaði hurðinni. Hann lagði blómin á ofurlítið messing- borð. — Þú hefir grátið? — Hefirðu lesið kvöldblöðin, Hans? — Nei, svaraði hann. — Ekki ennþá. — Óli er dáinn. Hann hefir fallið suður á Spáni. — Hvað segirðu? Það getur ekki verið satt! — Jú, frjettin hefir komið um hendur utanríkisráðuneyt- inu, svo að hún hlýtur að vera rjett. — Óli var altaf æfintýra- maður. — Hann var góður maður. — Já, mjer þótti mjög vænt um hann. | — Það þótti mjer líka, sagði 'Magda, — en ekki nóg! Það er svo margt sem maður iðrast eft- ir — eftirá. Þú veist, að hann var ástfanginn af mjer og hann var altaf að reyna að vera mjer svo góður, en jeg svaraði hon- um, að jeg væri svo þreytt, og ætlaði að fara að hátta, þegar hann talaði við mig í símanum. Hann varð svo undarlegur þá — jeg hugsa að hann hafi heyrt í grammófóninum innan úr innri stofunni og hafi skilið, að það voru gestir hjá mjer. Og svo heyrði jeg ekki af honum eftir það. Þetta var síðast skiftið, sem jeg talaði við hann. Hann fór til Spánar mánuði síðar — og nú er hann dáinn. Jeg skammast mín eins og hundur. — Maður lítur alt öðrum aug um á hlutina, þegar maður get- ur ekki bætt fyrir það, sem mað- ur hefir gert öðrum rangt til, sagði Hans. — óla var það eig- inlega á móti skapi, að fara þangað suður. Hann var orðinn þreyttur á þessum sífelda erli. Einn daginn kom hann upp á skrifstofuna til mín og ætlaði að fá lánaðar tvö þúsund krónur, til að koma sjer upp smá versl- un. Hann ætlaði að fara að halda kyrru fyrir og starfa í næði. — En þú lánaðir honum ekki? — Jeg hafði peningana til en sagði nei. Þegar hann var far- inn var jeg að hugsa um að hlaupa á eftir honum og fá hon- um ávísun fyrir upphæðinni, og næstu daga var jeg kominn á fremsta hlunn með að senda honum þessi tvö þúsund krónur. Þetta, sem hann ætlaði að nota peningana til, virtist ráðlegt og heilbrigt. Og hann var í raun- inni áreiðanlegur, þó hann væri stundum öfgafullur. — Já, hann var ráðvendnin sjálf. — Já, það held jeg líka. Auð- vitað hefði hefði jeg átt að láta hann fá peningana. Þá hefði þetta aldrei komið fyrir. Jeg sá hann aldrei eftir þetta. En síðar heyrði jeg, að hann hefði siglt með vöruflutningadalli til Lissa- bon. — Við höfum 'mikið að saka okkur um, Hans. Hefðum við ekki brugðist honum þá hefði þetta aldrei skeð. — Nei, það er satt, Magda. Hún fór til hans og.settist við hliðina á honum í sófanum, dró höfuð hans að sjer og kysti hann á munninn. — Nei, vertu ekki að þessu, Magda, ekki núna. Mjer finnst það svo óviðfeldið. — Jeg ætlaði bara að hugga þig- — Fyrirgefðu. Jeg hefði ekki átt að segja þetta. Hann klappaði henni á hönd- ina. — Jeg get ekki að því gert, Magda, sagði hann skömmu síð- ar, — mjer finst jeg vera svo óhreinn. Jeg veit, að Óli var ástfanginn af þjer. Mjer fanst svo gaman, að geta náð í stelpu frá honum og gera hana ást- fangna af mjer. — Jeg er engin stelpa.------- — Það er ef til vill einmitt það ranga, að jeg hefi hugsað um það svona. Hann starði ofan í gólfið og strauk úr gólfdúkn- um með fætinum. — Jeg var svo hreykinn af því að geta bolað honum óla, sjálfu kvenna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.