Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.1945, Blaðsíða 2
466
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Trinity Great Court.
mikilvægi í cnsku þjóðlífi er af
allt öðruni rótum runnin. í dag eru
íbúar sjálfrar borgarinnar uni 80
þúsund. Stræti hennar eru ílest
þröng og sum í ótal hlykkjum.
•
Háskólaborgin.
UM LANGT skeið hcfir verið
nokkur metningur milli Cambridge
og Oxford um það, hvor borgin
væri eldri sem háskólaborg.
Cambridgemcnn tclja örugt að
miða stofnun háskóla í Cambridge
við ákveðið ár. Snemma á 12. öld
er talið að grundvöllur hafi verið
lagður að slíkri starfsemi þar. En
það er ekki fyrr en í byrjun 13.
aldar, sem örugg vissa er fengin
um tilvist hennar.
Árið 1209 kemur til uppreisnar
og óeirða meðal stúdenta í Oxford.
Afleiðing þess varð sú, að tölu-
verður hluti Oxfordstúdenta flutti
þaðan til Cambridge. Af þessu
virðist mega ráða tvennt: I fyrsta
lagi að háskólinn í Oxford hafi form
lega verið stofnaður á undan Cam-
bridge háskóla. I öðru lagi er auð-
sætt, að því aðeins hafa Oxford-
stúdentar getað flúið til Cambridge,
að einhver skólastofnun hafi þegar
verið þar fyrir hendi. Annars hafa
háskólarnir ekki verið komnir í
eins fastar skorður sem stofnanir
eins og þeir síðar komust í. „Stú-
dentar“ þessa tima voru þessvegna
að mestu leyti sínir eigin herrar,
sem varla þurftu að lúta öðrum
boðum og reglugerðum en þeir settu
sjer sjálfir. Ber saga háskólaborg-
anna þetta mjög með sjer. Óeirðir
og uppþot meðal stúdenta voru tíð
og gáfu konungs- og kirkjuvaldi
ástæðu til íhluirunar. Upp af þeirri
íhlutun spruttu svo ákveðnar regl-
ur, sem smámsaman sköpuðu háskól-
unum og Collegeunum agavald og
lögðu hornsteinana að mörgum þeim
venjum, sem enn þann dag í dag
► eru þar í keiðri hafðar.
700 ára þróunarsaga.
SAGA Cambridge sem háskóla-
borgar nær því nú yfir rúm 700 ár.
Fyrsta Collegeið, eða stúdentagarð-
urinn, er stofnaður þar árið 1284.
Sjálfur háskólinn hefur þá staðið
í allmörg ár. Stofnandi þessa fyi'sta
College var Balsam biskup í Ely.
Var það nefnt Feterhouse cftir sjálf
um Sankti Pjetri. Á 14 öldinni
voru síðan stofnuð 5 ný College og'
á 15. öld bættust enn 4 við. Á 16.
öld cru stoi'nuð tvö þeirra Cðllegca
sem nú eru stærst og íjölmennust,
Trinity, sem mun vera eitt fræg-
asta College í Cambridge, og St.
Johns. Auk þeirra voru á þcssum
tíma stofnuð 4 smærri College. At-
hyglisvert er að mörg bcra Coll-
cgcin nöfn sem erú af kirkjulegum!
uppruna. Má þar til nefna Corpus
Christi College, Christ Collegc og
Jesus College.
Heildarfjöldi stúdentagarðanna í
Cambridge er nú um 20. f Cam-
bridge háskóla voru, áður en síðari
heimsstyrjöldin hófst, um 5 þúsund
stúdentar. Bjó þorri þeirra í Coll-
egeunum en nokkur hluti þó jafn-
an í leiguherbergjum í borginni.
Á meðan styrjöldin stóð fækkaði
stúdentunum mjög og muuu þeir
flest þau ár ekki hafa verið yfir
tvö þúsund. Nokkur Collegeanna
voru og tekin til afnota hersins og
stjórnarinnar.
Saband háskólans og
Collegeanna.
FLESTUM, sem koma til Cam-
bridge. fer svo, að þeir litast um
eftir sjálfum háskólanum. Þeir bvi-
ast við að finna hjer glæsilega stór-
byggingu, sem sje aðalheimkynni
hins fræga háskóla. En þessu er
ckki þannig varið. Við finnum eng-
an háskóla í þcssurn skilningi, t. d.
hliðstæðan háskólabyggingunni okk
ar í Reykjavík. Cambridge háskóli
á cnga slíka byggingu. Kennslusal-
ir hans, fyrirlestrarsalir, rannsókn-
ar- og vinnustofur eru drefðar lit
um alla borg. Þetta er afleiðing
þess fyrirkomulags, seni Collegein
hafa lagt grundvöll að. Iláskólinn
er fyrst og fremst samncfnari þeirra
Stúdentagarðarnir cru ekki aðeins
bústaður flcstra stúdentanna heldur
skipuleggja þeir nám þeirra, sjá
þeim fyrir kennslu og kennslurúmi
við háskólann og hafa að meira eða
minna leyti sjálfstæða vinnukrafta,