Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1963, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1963, Blaðsíða 3
Tveir þættir, í ljóði, tónum og dönsum. Tónlist: Igor Stravinsky. Texti: Charles Ferdinand Ramuz. I*orsteinn Valdimarsson ísl. eftir norskri þýðingu Pauline Hall, Persónur: Jósef dáti, Kölski og Söguþulur. Sögubulur: Dáti nokkur feginn flýtir för að morgni í hvítabýtið. Fjórtán á hann orlofsdaga, ákaft þráir hann bernskuhaga. Rastir íram að lokum leiðar liggja' um skóga, fjöll og heiðar. „Fjandinn hafi hermennskuna", hugsar hann, en lækjarbuna » hrífur hann af þungum þönkum: „Þarna' er mál að teygja úr skönkum", segir hann og sveiflar snjáðum sekk af herðum, rekur frá leyniþvenginn, leitar, finnur ljósmyndina af unnustunni, greiðubrot og glýjuspegil, gamalt nisti með Jósef helgum, myntir sem við sólu gljá — sjðast það sem dýpst var grafið: fíaiu sína að sarga á. Dátinn: (stillir fiðluna) Sker í eyrun! Skömm að heyra! Skildingsvirði, ekki meira! S: Dátinn leikur við lækinn káta, — lækinn grunar, en ekki dáta, að skammt að baki skuggagestur skrefum hljóðum læðist nær, undirheima æðstiprestur, úfinn krangi, læðist nær með fiðrildaháf í hendinni — hann var á veiðum í grenndinni. Kölski: Gefðu fiðlugarminn þinn gömlum manni, piltur minn! D.: Ég ætti nú ekki annað eftir! K.: Eitthvað gæti ég borgað! D.: Nei! K.: Taktu þessa skræðu í skiptum! D.: Nei, skrambinn, ég sem er naumast læs! K.: Á sálma, þar gildir sama um mig, settu það ekki fyrir þig! Þú skríður úr þeim skammarkrók, — og skruddan þessi er meira en bók, hún er peningaskápur, piltur minn, og pungur við belti, úttroðinn af sæmdartitlum, seðlum og gulli! D.: Ég sinni’ ekki þessu herjans bulli, — ég skrapp ekki’ úr móðurskauti 1 gær! K.: Svona, skyggnstu í bók'ina, sonur kær. S.: Hann rýnir i letrið, stafar og stautar, standandi hissa á því sem hann tautar. D.: Reikningur, valúta, renta, pr. ár... S.: Sá rúnagaldur — og hann svona blár! D.: í hreinskilni botna ég hér í fáu.... K.: Ó, hver byrjar ekki hið stóra á smáu! D.: Jú, góð er víst skræðan, ef skilin yrði, en skárri er fiðlan, heilt spesíuvirði! K.: En verðið á kverinu! Krossdalafarganið! D.: Jæja, kaupum þá — fyrst þig munar í garganið! Fyrri þáttur Valúta ... gjalddagi... reikningur. ... kauphallarverðskrár laugardaginn 31.... En er nema 28. í dag.. ? Svo hún er þá á undan ríminu og samtíðinni, sú gamla, sviptir hulunni af óorðnum hlutum. Það var grikkur! K.: (reynir að tjónka við fiðluna, en ferst ekki hönduglega) Ég verð að fá tilsögn að temja skrukkuna,— hér er tráustið fánýtt á skollalukkuna! Þú kemur heim með mér, heilladrengur! D.: Hversvegna? K.: Æ, það er boginn .... mér gengur illa, og langar að læra strokið! D.: Nú lízt mér á! Nei, felldu nú sprokið! Ég á tæpa stund, en því lengri leiðina: K.: Ég lána þér vagninn minn — þrumureiðina! D.: Og í dyrunum stendur hún móðir mín... K.: Hún mátti nú löngum bíða þín! D.: Og stúlkan mín bíður og skimar um skjá... K.: Hverju skipta þrjú dægur til eða frá? D.: Hvar býrðu þá? K.: Ýmist þar eða hér — og þægilega, hvar sem ég er, að öllum föngum: ég á þess von þú unir þar eins og konungsson — og akir frá mér með auð og seim í eldingareiðinni til þín heim. D.: Áttu drafla og gamlan geitarost? K.: Já, það geturðu bókað, — og fínni kost! D.: Og veigar að dreypa á varirnar? K.: Já, vsrtu bölvaður! Himneskar! D.: Og rudda í pípu að svæla sér? K.: Nei, við svælum nú havannavindla hjá mér. D.: Jæja, fjandakornið, ég skal koma og taka á mig krókinn; þú ekur mér spölinn til baka. S.: Og heim til kölska komu þeir; í kot var ekki vísað þar, sem djöfsi sagði, um drykk og reyk; og dýrar voru krásirnar. Og stundin leið við glaum og gaman; sá gamli æfði fiðluleikinn, og bókina lásu báðir saman. Hinn þriðja morgun, er röðull rann við regnþung ský (hann snerist á áttinni) og Jósef klæddist, þá stóð kölski í gáttinni. K.: Ertu afþreyttur nú og útsofinn, drengur? D.: Útsofinn víst, og nú dvelst ég ei lengur. K.: Og þú ert í engu af mér prettáður? D.: Nei, öðru nær, bæði drukkinn og mettaður! K.: Og þú ert ánægður þá? D.: Eftir atvikum, já! K.: Þá leggjum við á! S.: Þeir klifrast í vagnsætin; keyrið smellur í köldu leiftri, og þruma gellur, og Jósefi bregður, um bríkina læsir hann báðum höndum, en ekillinn hvæsir fram milli tanna: O, bændu þig bannsettur! — Breiðstrætið opnast fararskjótunum, ólmum og stormfextum, eldingar þjóta allt um kring, er þeir sporna fótunum hálsa og dali, æ hraðar, fljótar, — hamingjan sanna þeir tylla ekki lengur skeifu við grjótunum, gana til skýja, bölvuð glæfradýrin — um seinan að flýja þessa helvítisreið! — sjá regnskýjaflákai-nir blása úr nös við blánandi heiðinu.... K.: Nii brunar skeiðin! Hvernig gezt þéf að leiðinu? D.: Á öðru skárra er varla völ. Hvað Verðum við lengi þennan spöl? K.: Hver hugsar um tímann! Hann skiptff öngu; við hættum að mæla hann fyrir löngu. S.: Áfram sömu íleygiferð! Fáorð saga‘ er þar um gerð hvernig reiðin skjóta um skýjageim skilar þreyttum ferðalangi heim. — Lengi þráði hann þessa stund, Þennan vina endurfund. D.: Nei, húrra! kominn heim! og endaö stjá! Hvert hús, hver þúfa bernsku minni frá Framhald á bls. 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS------------------------------------ ------------------------ 8. tölublað 1963 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.