Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1967, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1967, Blaðsíða 3
n Ellsworth Bunker, sem nýlega var tilnefndur sendiiherra Banda- ríkjanna í Suður-Víetnam, er um margt athyglisverður maður og skipun hans í þetta embætti eftir Henry Cabot Lodge kom engum á óvart. Hann hefur á undanförnum árum tekið i ð sér hvert hlutverk- ið eftir annað sem sérlegur sendi- herra lands síns til þeirra landa og þjóða þar seir mikils hefur þótt við þurfa, að erfið mál leystust far- sællega. Þannig var hann fyrir fá- um árum sérlegur sendifulltrúi lands síns í Saudi Arabíu, Brazi- líu og Indónesíu og eftir það var hann árlangt í Dóminikanska lýð- veldinu á vegum ríkisstjórnar sinn- ar. Er sú dvöl sögð vera einhver sú athyglisverðasta, sem sérlegur sendifulltrúi hefur átt í öðru landi eftir síðari heimsstyrjöldina. Því að enda þótt á ýmsu gengi og oft kæmi afturkippur í samkomulagsumleit- anir urðu málalok Bandaríkja- mönnum til heiðurs. Þótti það vel af sér vikið, því að afskipti Banda- ríkjamanna höfðu hafizt af illri nauðsyn og að sumra áliti hafði framkoma þeirra í þessum málum í upphafi verið til skammar. Það var því haft á orði, er Bunker kom heim til Bandaríkjanna síðastliðið sumar, að hann hefði getað valið um næstum hverja stöðu sem vera vildi á vegum ríkisins nema embætti Deans Rusks. Hann kaus þó að vera áfram sérleg- ur sendifulltrúi ríkisstjórnarinn- ar. Starfsbróðir hans í þeirri grein er Averell Harriman, sem einnig þykir meistari í því að leysa af ELLSWORTH BUNKER hendi viðfangsefni, sem öðrum virðast óleysanleg. Þegar Bur.ker var fyrst falið að gegna embætti sérlegs sendifull- trúa, vakti val hans undnun og furðu margra. Hann var þá alger- lega óþekktur á opinberum vett- vangi. Það var Dean Adheson, sem í ráðherratíð sinni sendi Bunker til Argentínu árið 1951. Þá stóð valda- tímabil Perons sem hæst og mjög órólegt ástand ríkti í landinu í alla staði. Þeir sendifulltrúar, sem sótt höfðu landið heim á vegum Banda- ríkjastjórnar, höfðu sízt orðið til að bæta ástandið, því að þeir höfðu margir hverjir verið sambland spákaupmanna og sendiherra og komið fram í báðum hlutverknm. Þarna var því brýn þörf á hæfum manni, gætnum og rólegum sendi- fulltrúa, sem væri þess umkominn að bæta um ýmis afglöp fyrirrenn- ara sinna. Sagt er, að Dean Adheson haíi hugsað sig vel um áður en hann vaidi mann til að takast á hendur sendifull- trúaförina til Argentínu Og þegar hann tók ákvörðun að lokum hafði hann ekki valið manninn úr hópi stjórnmálamanna eða starfsmanna utanríkisþjónustunnar. Hann hafði horft lengra aftur í tímann í leitinni að hæfum manni og að lokum valið vin sinn og kunningja frá liá- skólaárunum í Yale og einn af félóg- unum úr róðrarsveitinni. Bunker ^ar um 'þessar mundir forstjóri sykurverk- smiðiju, en hafði þá enga reynslu af ut- anríkismálum . iÞað sýndi sig þó brátt, að Adheson hafði valið rétt. Bunker tókst ekki að- eins og koma meiru til leiðar í Buones Aires en nokkrum öðrum manni hafði fyrr tekizt, heldur hélt hann áfram að vinna sig í álit í sendiherrastörfium á ítalíu og á Indlandi. En ýmsir spurðu, hvað hefði gert það að verkum, Fram eftir ævi var hann lítt þekktur kaupsýslumaður, en er nú einn athyglisverðasti sendi- fulltrúi Bandaríkjastjórnar. Hann hefur til að bera óbil- andi traust viðmælenda sinna, jafnvel úr hópi andstæðing- anna. að Ac'heson valdi Bunker til að senda hann til Argentínu 1901. Og er Acheson var spurður þeirr- ar spurningar nú fyrir skemmstu, hvað hefði valdið því, að hann fól óreyndum kaupsýslumanni stöðuna í Argentínu, sagði thann: ,,Þið skuluð gera ykkur ljóst, að það er mikill munur á Ells'wortih og ýmsum öðrum. Fólk er ekki hvað öðru líkt eins og sardínur í tunnu. Ellsworbh er Ellswortih. Hvar sem Ellsworth fer er hann alltaf sjálfum sér líkur og í allri sinni fram- göngu er hann trúverðugur fulltrúi Bandaríkjanna. Hann er ekki eins og sumir þessir menn, sem sveipa um sig skikkjunni og ganga inn í hlutverkið. Hann er ætíð agaður og ró og jafnvægi hvílir yfir öllu hans fasi. Einu sinni bað Neihru mig að senda sér fleiri slíka menn. Hann sagði mér að hann vildi ekki fá þessa verðandi Indíána". Enda þótt Bunker sé kurteis í fram- göngu og brjóstgóður, getur hann einnig verið ósveigjanlegur og þol hans er óbil- andi. Bæði elskulegt viðmót hans og harka hans og úthald kemur honum að góðu haldi þegar honum er fengið það hlutverk að miðla málum milli ósættan- legra aðila. Og hann hefur enn til að bera tvo eiginleika, sem eru honum gagnlegir í þessum viðfangsefnum: hann er þolinmóðir og það sem er enn mikilvægara, hann vekur traust, og það jafnvel hjá andstæðingum, sem vegna vantrausts hvor á öðrum höfðu lokað öllum möguleikum til samkomulags og höfðu tilhneigingu til að telja sér hvern þann mann fjandsamlegan, sem reyndi samkomulagsumleitanir. Árið 1963 áleit Faisal konungur, sem þá var krónprins Saudi Arahíu, að Bandaríkin hefðu hallazt á sveif með Nasser í deilunni um Yemen. Er hann að lokum samþvkkti að hætta hernað- araðgerðum, gaf hann til kynna, að það væri persónulegt traust sitt á Bunk- er, sem hafði verið sendur til málamiðl- unar, sem gerði það að verkum að hann veldi þessa leið. Ellswort'h Bunker er fæddur í Yonk- ers New York 11. maí 1894. Faðir hans var auðugur sykurveiksmiðjueigandi. Eins og áður segir stundaði Bunker nám í Yale-háskólanum, og það hafði hvarfl- að að honum að gerast kennari, en nið- urstaðan varð hins vegar sú, að hann gerðist starfsmað'Ur fyrirtækis föður síns. Auk starfa sinna þar tók hann ætíð nokkurn þátt í félagsmálum. Þá hefur hann alla ævi verið mikill bóka- maður. Bunker kvæntist i janúar sl. Carol C. Laise, ambassador Bandaríkjanna 1 N'epal. Bunker er nýgiftur, og hér er hann ásamt konu sinni, Carol C. Laise, ambassador í Nepal. 16. apríl 1967 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.