Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1967, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1967, Blaðsíða 7
ÚR SÖGU REYKJAVIKUR SVIPAST UM í AÐALSTRÆTI EFTIR ÁRNA ÓLA I?.gykiavíkurborg telur aldur sinn frá árinu 1786 þegar Reykjavíkurþorpi voru veitt kaupstaðarréttindi. En þorp- ið var þá 34 ára gamalt, því að saga þess hefst með verksmiðjunum (innrétting- unum) sumarið 1752. Elzta gatan í borg- inni, Aðalstræti, er þá líka 34 árum eldra en borgin. Það var Skúli Magnússon landfógeti sem skipulagði þorpið að upphafi. Hann ákvað breidd strætisins, en það skyldi vera jafnbreitt Víkurhlaði alla leið til sjávar. En Víkurhlað var milli bæjarins og kirkjugarðsins. Og hann ákvað að ve’-ksmiðjuhúsin skyldu standa vestan götunnar í beinni röð. Að þessu skipu- lagi hans býr borgin enn í dag, því að Aðalstræti má heita óbreytt, að öðru leyti en því, að þar hafa risið stærri hús en þau, sem stóðu þar í öndverðu. Þ; ð hefir hvorki verið stytt né lengt, og það sem merkilegast er, að hússkipan hefir haldizt þar hin sama frá upphafi að vestanverðu. Eitt var einkennilegt við fyrstu húsa- byggingar í Aðalstræti, að þrjú syðstu húsin að vestanverðu sneru stafni að götunni, en öll hin sneru hlið að henni. Hvað gekk Skúla til að skipta húsun- um þannig? Hvers vegna lét hann þau ekki öll snúa stafni að götu, eða þá öll snúa hlið að götu? Gatan var svo stutt, að annaðhvort skipulagið hefði farið henni betur. H ^r ber að líta á það, að verk- sm.ðjurnar eignuðust gamla Víkurbæ- inn, eins og hann var þá. Nú vitum vér ekki hvernig húsakostur var þar. En syðsta hús bæjarins mun hafa verið hin svonefnda Ullarstofa, stórt og stæðilegt hús, að vísu með moldarveggjum og torfþaki, en þiljað innan. Á uppdrætti Sæmundar Hólms af Reykjavík um 1789, er hún nefnd „bæarhús" og er það fullgild sönnun þess, að hún hafi verið eitt af bæjarhúsum Víkur. Hin hús bæjarins voru rifin, vegna þess að verksmiðjurnar gátu ekki notazt við þau, og tvö hús reist á rústum þeirra. Þessi hús voru látin snúa austur og vestur, eins og Ullarstofan. Og það bendir til þess, að bæjarhúsin, sem rifin voru, hafi snúið eins, og staðið þarna hlið við hlið, eins og títt var á sveita- bæjum. Það hefir því þótt eðlilegt, að hin nýju hús, sem reist voru þarna á rústum þeirra, sneru eins og væri sam- hiiða Ullarstofunni. En fyrir norðan gamla bæinn, þar sem Grjótagata gengur nú upp frá Aðalstræti, skagaði Grjótabrekkan miklu nær sjávargötu Víkur, og brekkan var mjög stórgrýtt. Hefir því ekki þótt árennilegt að ráðast á hana með þeim veikfærum, er menn höfðu þá, og sneiða framan af henni svo stóra spildu, að þar væri hægt að koma fyrir húsum, er sneru austur og vestur, eins og syðstu húsin. Þess vegna taka menn hinn auð- veldari kostinn, reisa húsin þétt upp að brekkunni og láta hliðar þeirra vita að götunni. Er líklegt að Skúli hafi sjáifur ráðið þessu. Með þessu móti gat húsaiínan haldizt bein allt norður undir Giófina, eða þangað sem sjávargatan frá Götuhúsum kom niður á sjávargötu Víkur, rétt ofan við naust þeirra Vik- urmanna, sem þá huét enn Ingólfsnaust. egar verzlunarhú«in voru flutt úr örfirisey 1779—80, var sölu'búðin sett þar sem Ingólfsnaust hafði staðið. Tvö hús vc.ru reist að baki hennar ofan við Grófina, en við Aðalstræti sunnan við Götuhúsastíginn, var reist ibúðarhús handa verzlunarstjóranum. Vér vitum hvernig húsaskipan var við Aðalstræti vestanvert frá upphafi, og til þess að sanna þá staðhæfingu, að húsaskipan haldist þar enn óbreytt efiir 200 ár, skulu hér talin þau hús^ sem voru þar upphaflega, og þau hús, sem nú standa þar. Syðsta húsið var Ullarstofan, en þar eru nú Uppsalir (nr. 18). Næsta hús var kallað Lóskurðárstofa, en þar stendur nú hús H. Andersen & Sön (nr. 16). Þriðja húsið var Spunastofan, en þar er nú óbyggð lóð (nr. 14). Þá kom Vefstofan, en þar er nú verzl- ur. August Svendsen (nr. 12). Fimmta húsið var Undirforstjórahús- ið og það hefir eitt staðið af sér allar umbvitingar tímans og stendur enn eins og það var á dögum innréttinganna (nr. 10). Þar næst kom geymsluskáli úr timbri og var þar verzlað um hríð, en svo re'sti Einar Hákonarson hattari þar íbúð- arhús en tengdasonur hans, W. Breið- fjörð, reisti þar stórhýsið, er enn stend- ur og var um eitt skeið nefnt Fjala- kötturinn (nr. 8). Þar fyrir norðan stóð moldarkofi, sem hafður var til mógeymslu. Þar er nú Morgunblaðshúsið (nr. 6). Þar næst kom íbúðarhús verzlunar- stjórans. Þar er nú verzlunarhúsið Aðalstræti 4. Seinast kom svo krambúðin, fyrsta veizlun í Reykjavík, rekin fyrst af sjálf- um konungi, en svo af ýmsum. Þar hefir stöðugt verið verzlað fram á þenn- an dag eða um 188 ár. Þar er nú veiðarfæraverzlunin Geysir (nr. 2). F.ins og á þessu má sjá, voru upp- hafiega 9 hús að vestanverðu við Aðal- stræti, og þau eru 8 núna og ein lóð auð. Öll standa þessi hús þar sem elztu húsin stóðu, svo að skipulag Skúla fó- geta helzt þar enn. Að vísu er orðinn mikill munur á stærð húsanna frá því sem áður var, og geta menn séð það ef þeir bera nýrri húsin saman við sölu- búð Silla og Valda sem var annað veglegasta hús innréttinganna. En hvergi mun samt hafa orðið jafn mikill munur á eins og á lóðinni nr. 6. Þar stóð upp- haflega lítilfjörlegur moldarkofi, en nú er þar komið eitt af giæsilegustu stór- hýsum borgarinnar. Það er því ekki úr vegj að rifja upp ágrip af byggingarsögu þess staðar, þar sem svo mikil umskipti hafa orðið. F ns og fyrr er getið hófst smíði verksmiðjuhúsanna sumarið 1752. Þá var hér ekki um annað eldsneyti að ræða en mó, og hefir Skúli þess vegna látið taka upp mikið af mó um vorið og sumarið að hafa til vetrarforða. Er því líklegt að móskemman við Aðalstræti hafi verið reist þetta sumar, svo að hægt vaeri að geyma eldsneytið undir þaki. Hefm hún þá verið eitt af eiztu húsum verksmiðjanna. Ekki hefir þetta verið virðnlegt hús í upprennandi verksmiðju- hverfi. Veggir og gaflar voru hlaðnir úr toifi og grjóti og torfþak yfir, og senni- lega enginn gluggi á því, birtan hafi átt að koma inn um dyrnar. Húsið var 12'4 alin á lengd, 5% alin á breidd, en um bæð þess er ekki getið. Árið 1774 var það virt á 4 rdl. og má á þeirri virðingu sjá að það hefir ekki verið beysið. Að vísu er það þá orðið 22 ára gamait og ef til vill hefir ekki verið hugsað mikið um viðhald þess. Það stóð þó lengi enn og hefir sjálfsagt verið notað allan þann tíma, og ekki var það rifið fyrr en um 1800. Var lóðin þá leigð einhverjum til kartöflúræktunar, og var þar gerður mikill kartöflugarð- ui, sem náði frá Aðalstræti og þar upp undir sem Mjóstræti er nú. Þarna hafði áður verið stórgrýtisurð, en nú var grjótiff horfið. Það var komið í dóm- kirkjuna. Árið 1788 var sendur hingað danskur steinsmiður, Johan Larsen að nafni, og hafði honum verið falið að taka upp grjót og koma því þangað, er kmkjan skyldi standa. Mun hann fljótt hafa séð að hægast var að ná í grjót í Grjótabrekkunni. Var svo rifið upp allt grjót á þessum stað og eins á lóð Einars Hakonarsonar þar næst fyrir sunnan, og öllu ekið á sleða um veturinn þangað sem kirkjuna skyldi reisa á Austur- volii. Neðri hæð dómkirkjunnar er því að mestu ieyti úr grjóti frá þessum stað. Ekki er mér kunnugt hver eða hverjir réðust í að gera þennan mikla kartöflu- garð, en sennilega hafa það verið verzl- unarmenn hjá Sunckenberg. N l'u vikur sögunni að því, að árið 1801 kom nýr lyfsali að Nesi við Sel- tjcrn, og leyfði Kansellí þá um leið, að lardiæknir og lyfsali mættu fiytjast til Reykjavíkur, en sá flutningur dróst enr. um 30 ára skeið. Nýi lyfsalinn hét Guðbrandur Vig- fússon Faðir hans var Vigfús sýslu- maður Jónsson og hafði hann fengið Þingeyjarþing 1776. Bjó hann fyrst á Skútustöðum, svo á Héðinshöfða, þá á Breiðamýri og seinast á Sigurðarstöð- uin á Sléttu og varð þar ruglaður á geðsmunum og sagði af sér 1786. Flutt- isr hann þá að Grásíðu í Kelduhverfi og dó þar sumarið 1795. Hann var talinn vei viti borinn, en jafnan þunglyndur og þótti það koma niður á börnum hans, þó ekki sé þess getið um Guðbrand. Kann fór ungur til Kaupmannahafnar og nam þar lyfsalafræði. Þar kvæntist hann danskri stúlku, sem Johanne Sop- hie hét, og kom hún með honum að Nesi. Þeim varð ekki barna auðið. Guðbrandur lézt árið 1822, en ekkja hans hélt áfram lyfsölunni enn um tveggia ára skeið eða þar til Oddur Thorarensen tók við. Þá náði frúin kaupum á Ióðinni nr. 6 við Aðalstrætl og Jét reisa þar íbúðarhús árið 1825. Þetta var einlyft timburhús, eins og þá tíðkaðist, og sneri hlið að götu, en á bak við var hinn mikli kartöflugarður og mun frúin hafa stundað hann vel á meðan hún átti þarna heima, því að hans er getið sem eins af beztu görðum í bænum. Árið 1838 keypti Þórður Jónsson eign- ina og bjó í húsinu til æviloka. Hann var sonur séra Jónasar Jónssonar í Reykholti, sem var „mikill gáfumaður, vel að sér og kennimaður góður“, en var að mörgu leyti mæðumaður. Hann var fyrst kvæntur Sigríði Jónsdóttur prests í Garði í Kelduhverfi, en hún andaðist af barnsförum eftir árs hjóna- br.nd. Sonur þeirra var Jón í Vík í Héðinsfirði, en hann fórst í snjóflóði 1841. Seinni kona séra Jónasar var Þórdís systir fyrri konu hans, og áttu þau mörg börn. Einn sonur þeirra, Björn, drukknaði uppkominn í Fnjóská 1834. Og svo missti séra Jónas seinni konu sína 1844 á þann voveiflega hátt, að hún brenndist til bana við að þvo þvott í hveri (sumir segja að það hafi verið Snorralaug). órður Jónasson var fæddur árið 1800 og' fyrir honum lá meiri emb- ætiisframi en flestum öðrum. Hann varff fyrst sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu 1835. en yfirdómari í landsyfirdómi 1836 og f’uttist þá til Reykjavíkur. Dómstjóri varð hann 1856 og gegndi því embætti til 1877. Jafnframt var hann settur til að gegna mörgum öðrum embættum: sýslu- maður í Gullbringu- og Kjósarsýslu, amt- maður nyðra eftir Grím landfógeti og stiftamtmaður hvað eftir annað og gegndi því embætti einu sinni 5 ár samfleytt frá því er Trampe fór og þar til Hilmar Finsen kom. Er mælt að Þórði mundi hafa verið veitt embættið, ef hann hefði viljað, en hann vildi ekki sleppa dómstjórastöðunni. Það þótti líka eitthvert virðulegasta embætti hér á landi að vera dómstjóri, eða háyfir- dómari eins og það var kallað þá. Það varpaði því sérstökum ljóma á litla hús- ið í Aðalstræti, að slíkur höfðingi skyldi búa þar svo lengi. Þess ber að geta hér, að í þessu húsi var skrifstofa fyrsta blaðsins sem gefið var út í Reykjavík. Það var Reykia- víkurpósturinn, sem hóf göngu sína haustið 1846. Var Þórður Jónasson að- alritstjórinn, en með honum voru þeir bræðurnir Sigurður og Páll Melsteð. Blað þetta gáfu þeir út um þriggja ára skeið. Hins má þá líka geta, að María dóttir Þórðar dómstjóra giftist Óla Fin- sen póstmeistara og voru þau foreldr- ar Viihjálms Fin'ens, stofnanda Morgun Framhald á bls. 14. 16. apríl 1967 LESBOK l.IORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.