Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1979, Qupperneq 15
Stundaði
sjöinnungur
Framhald af bls. 13
þarf á öllu sínu aö halda í baráttunni —
fólk í mótbyr. Þaö á í baráttu viö hin
ólíkustu öfl, sem ögra og gefa úrslitakosti.
En grunntónninn er alltaf samúö með
manneskjunni — andúð á valdbeytingu.
Sumir bera sigur úr býtum, aðrir ekki. En
þeir sem sigra, gera það vegna þess aö
þeir búa yfir innri kjarna — þeir eiga sinn
eigin meöfædda vegvísi, sem mætti
einnig kalla ábyrgð gagnvart samfélaginu.
Eiginlega var Olav Duun raunsær hug-
sjónamaöur eöa bjartsýnn bölsýnismað-
ur. Hann horfist í augu viö dáðleysi og
andlega fátækt fólks — en hann eygir líka
þá möguleika sem í manninum búa. Þess
vegna getur Óöinn fórnaö lífinu fyrir hinn
illa Lauris. Þar sem hann berst fyrir lífi
sínu í ofviðri og stórsjó sér hann í
augnabliks uppljómun aö jafnvel í Lauris
er góöur kjarni.
Olav Duun velur sögum sínum staö í
afskekktum héruðum Noregs, en þótt
Namdalur og Þrændalög séu ramminn um
líf þessa fólks sem Olav Duun fjallar um er
lífsbarátta þess samnefnari fyrir allt
mannkyn og sögurnar gætu gerst hvar
sem er. Þess vegna kom mjög til tals aö
honum væru veitt Nobelsverölaunin. og
þess vegna eru bækur hans lesnar enn í
dag 40 árum eftir dauða hans. Ekki
aðeins í Noregi heldur víöa um lönd. Þó á
hann ekki þann lesendahóp sem vert
væri. Verk hans hafa aldrei verið gefin út í
stórum upplögum. Sumir segja aö þær
séu þungar í vöfum og sein-lesnar. En
athyglisvert er aö þeir sem þannig tala
hafa lítt kynnt sér bækur hans.
Margir þættir eru enn órannsakaöir í
ritferli Olavs Duun. Ef þjóöfélagsumræöur
eiga ekki aö fjalla eingöngu um markaðs-
mál, auölindir og kaupgetu hljóta verk
hans aö lifa enn um ókomna framtíö.
Mannþekkjarinn Olav Duun getur meö
verkum sínum haft meiri áhrif til góös en
margir árgangar sálfræöinga.
Athugasemdfró
íhugunarfélaginu
í grein sem endursögð var úr „Stern“
og birtist í Lesbókinni 3. mars var
Innhverf íhugun óbeint sett undir sama
hatt og ólíkar hreyfingar meö ólíkum
markmiöum og leiöum. Þetta gæti valdiö
misskilningi og því vill íslenska íhugunar-
félagiö koma eftirfarandi athugasemd á
framfæri.
íslenska íhugunarfélagiö starfar án
ágóöa aö almannaheill og er markmið
félagsins aö útbreiöa innhverfa íhugun
sem hraöast um allt land.
Tilgangur Innhverfrar íhugunar er ein-
faldlega sá aö öðlast meira af sjálfum sér,
og fullnýta þá möguleika sem viö búum öll
yfir. Venjulega erum við aðeins meðvituö
um yfirborö huga okkar, en meö reglu-
legri iökun Innhverfrar íhugunar förum viö
aö þekkja og geta fært okkur í nyt dýpri
og máttugri lög hugans. — Hugsanir
okkar veröa skýrari og athafnir okkar
veröa þá aö sama skapi markvissari og
árangursríkari. Meö öðrum orðum, viö
verðum meira af okkur sjálfum. Okkur
tekst betur aö uppfylla langanir okkar. Af
þessu leiðir einnig að persónuleiki okkar í
heild þroskast, viö veröum öruggari,
sjálfstæðari í hugsun og umburöarlyndari.
Þessi heilsteypti þroski einstaklingsins
sem hér er rétt drepið á hefur veriö
staðfestur meö reynslu þeirra tveggja
milljóna einstaklinga er iöka Innhverfa
íhugun, og meö hlutlægum rannsóknum,
sem skipta hundruöum, og geröar hafa
verið við sjálfstæðar rannsóknarstofnanir
í um 20 löndum.
Grundvöllur allra þessara breytinga í lífi
iðkenda er sá aö aöferðin leiöir til
streituloss, eöa endurnýjunar taugakerfis-
ins. Breytingarnar eru því ekki byggðar á
því aö taka upp nýjar skoðanir, fylgja
kenningum einhvers einstaklings, eða
taka upp nýja trú,heldur á bættu starfi
líkama og hugar.
Viö sem aö kennslu íhugunaraöferöar-
innar stöndum teljum aö ekkl aöelns
einstaklingnum fari fram viö iðkunina
heldur og samfélaglnu í heild. Ef vitund
einstaklinga er bætt, gerð skýrari, þá
batnar samvitundin einnig. Tíðarandinn
verður betri og ef tíðarandinn batnar
veröa þau áhrif sem umhverfið hefur á
einstaklinginn einnig betri. Þannig eru
áhrif alltaf gagnkvæm.
Nú hafa rúmlega 1500 íslendingar á
öllum aldri lært Innhverfa íhugun. Þetta er
fólk úr öllum stéttum og hvaöanæva að af
landinu. T.d. læröu 46 Bolvíkingar Inn-
hverfa íhugun í síöasta mánuöi. Þau
hljóöu uppbyggjandi áhrif sem þessi
hópur fólks hefur á þjóöfélagiö í heild eru
þegar farin að koma fram og munum viö
fjalla nánar um þessi samfélagslegu áhrif
Innhverfrar íhugunar í fjölmiölum á næst-
unni.
F.H. íslenska íhugunarfélagsins
Jón Halldór Hannesson
formaöur.