Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 7
ÚR RITGERÐ: „Til eru argandi gargandi leiðindatónlistir, en líka eru til skemmtilegar tónlistir. Ef maður hlustar vel getur maður heyrt hvað tónskáldið er að segja. Ég hef heyrt sinfóníu eftir Tsjakovskí. þar sem hann var að segja frá þegar honum leið vel og þegar honum leið illa.“ ÚR RITGERÐ: „Fyrst höfðum við Kislendingar engin sjúkrahús eða lærða lækna, þá var bara sjúkraskýli. Alls konar veikir eru til, hálsbólga, gubbupest, kransæðastífla, krabbamein og fleira. Nú höfum við alls konar sérfræðinga sem sprauta varnarlyfi í fólk. í sumum löndum er heilbrigðisþjónustan svo léleg, að fjöldi fólks deyr bara að óþörfu.“ w ■■■< komu því á skemmtanahaldi, þar sem menn gerðu sér eitt og annað til gamans. Bekkurinn skipti sér í hópa, sem héldu fjölbreyttar samkomur fyrir aðra skólafé- laga sína. Þar sýndu börnin leikrit, sungu, dönsuöu, léku á hljóöfæri, fluttu Ijóö og margt fleira. Sáu börnin alein um æf- ingar, útvegun búninga og leikmuna. Hér blómstraði hugmyndaflugið hvað mest og sérhæfileikar hvers og eins. Eftir ofurlítið hik fóru sumir aö yrkja Ijóð og lög, eða semja dansspor, jafnvel þjóð- sögur, fyrir utan myndlistina, sem þau voru síst feimin við að bera á börð tyrir aðra. Ákveðið var einnig að hefja bóka- og blaðaútgáfu hið fyrsta. Pappír og prentvél voru mjög ofarlega á listanum yfir þaö sem kaupa skyldi frá útlöndum seinna meir. Það sem var einkennandi og sérstak- lega gleðilegt við undirtektir barnanna, þegar einhver reis upp og flutti verk eftir sjálfan sig, var það, að börnunum fannst hann aldrei vera að trana sér fram, heldur var öllu slíku tekið meö þakklæti. Það var eins og börnin heföu einhverja jákvæða þjóðarvitund, öllum sem lögöu eitthvaö fram í nafni kislensku þjóðarinn- ar og í þágu hennar, var vel tekiö og þakkað þó án orða væri. Ég vil skjóta því hér inn, til að sýna hvað andrúmsloft Kisulands smeygði sér inn í allt nám barnanna, að heimalestur þeirra þegar fram í 8 ára bekkinn kom, sem venjulega þykir leiðindastagl, breytti um gildi og hét nú æfing í framsögn og leiklist, til aö geta tekiö þátt í lista- og menningarlífi á Kisulandi. Þaö er nokkuð annaö, hvort veriö er að æfa sig til aö verða læs eða til að verða leikari! Brátt fór að bera á vöntun á ýmsum nauðsynjum, sem landiö gaf ekki af sér, og einnig fannst Kislendingum fjarska margt stranda á því að hafa ekki rafmagn. En til þess að virkja fossafl þurfti að sækja ótalmargt til annarra landa, sem lengra voru á veg komin á öllum sviðum. Ákváðu börnin því, aö gamla skipiö skyldi gert sjófært og siglt til baka til aö kaupa þessar vörur. En hverjir áttu að fara í þessa ferö? Gætu allir landsmenn fariö? Hvað þurfti aö kaupa? Með hverju átti að borga? Óteljandi spurningar vöknuöu og ágreiningsefnin hrúguðust upp. Viö kennslu þessa efnis fagnaði kennarinn ágreiningi, hann hleypti kappi í kinn, lífi í umræðurnar og hugsanirnar ristu dýpra en ella. Þegar rifrildisöldurnar virtust hafa náð fullrí hæö, spuröi kennarinn: Hvaö á nú að gera? Verðum við að hætta viö allt saman? Veröur borgarastyrjöld úr þessu ósamkomulagi? Eru nokkur ráð til? Ég tek það fram, aö ég foröaöist að ráða fram úr nokkru vandamáli. Frekar lét ég börnin fara heim meö það óleyst, hugsa og ræöa máliö heima og leita ráða þar. Ég áleit nauösynlegt aö sýna nemendum mínum fram á, aö fróöleikur liggur alls staðar fyrir fótum manns, kennarinn veit ekki alla hluti, reynsla og lærdómur hvers sem er, er ómetanleg hjálp í dagsins önn. Einnig vonaöist ég til, sem varö víöa, aö börnin fengju foreldra sína meö sér í líflegar umræður um landsins gagn og nauösynjar. Út frá þessum vangaveltum um „hvað skal keypt — með hverju borgað“ hófst nýr þáttur um hugsanlegan útflutning á vörum frá Kisulandi, til móts viö innflutn- ing frá útlöndum. Varö það mikiö mál og þurfti aö hugsp djúpt og sýna hagsýni. Eftir að börnin höfðu hvað eftir annað oröið ósammála, fór aö bera á röddum sem þessum: Það þýöir ekkert að rífast svona! Það verður einhver að stjórna landinu! Uppástungunni var tekið sem lausnarorði á neyöarstundu! Við verðum auðvitað að hafa forseta! Nei! Við verðum að hafa kóng! Enn var rifist og rökin féllu eins og örvadrífa sitt á hvað. Hvað gerum við nú, þegar við erum ekki sammála um hvort sitja skuli forseti eöa konungur á valdastóli Kisulands?, spuröi kennarinn. Þaö veröur bara aö kjósa, sagöi einhver. Þetta úrræöi varð kveikjan að margra daga umræðum um kosningar og at- kvæöagreiðslu og bættust nú viö fjöldi nýrra orða og fróðleikur um þessi mál. Nú gekk bekkurinn til kosninga. Valið var um forseta eöa konung og niðurstaðan varð, að forseti vann með yfirgnæfandi meirihluta, fékk 22 atkvæði á móti 11, sem kóngurinn fékk. Þegar úrslitin voru kunngjörö, horföi éinn drengurinn ein- arðlega á kennarann og spurði: „En, Herdís, ræður þú þessu nú ekki alveg? Mér þótti vænt um spurninguna, því hún, eins og svo mýmargar aörar spurningar bornar fram í barnslegri einlægni, sýndi mér hvar nauösyn var á nánari útskýring- um á hinum erfiöu viðfangsefnum, sem þessi kornungu börn voru að stríöa viö af ótrúlegri þrautseigju. Frá kosningunum leiddi eölilega til umræöna um ríkisstjórn, ráöherra o.fl. þessum málum skylt. Börnin viidu líka hafa stjórnmálaflokka. Sýndist þar sitt hverjum og var rifist hressilega um pólitík. Kennarinn upplýsti þau um, að ekki væru samskonar flokkar í öllum löndum og ekki jafnmargir. Það færi eftir aö- stæöum og hverra hagsmuna væri að gSSt2 2 hverium stað. Sættust börnin fljótlega á að á KisuianÓi ÍSSrU t)??1 sjómannaflokkur og bændaflokkur, af því að það væru fjölmennustu starfshóparn- ir. Annars lægi reyndar svona fámennri þjóð ekkert á stjórnmálalegri flokka- skiptingu í bili. En ráðherra vildu þau hafa. „Því það er ekki von aö forsetinn viti allt milli himins og jaröar.“ Nauðsynlegast var að hafa sjávarútvegsmálaráöherra, landbúnað- arráðherra og utanríkisráðherra og átti sá síðastnefndi aö sjá um viöskiptin sem óhjákvæmilega væru framundan viö út- lönd. Allir voru sammála um að til þessara mikilvægu starfa skyldu þeir einir valdir sem byggju yfir góðri kunn- áttu og væru heiöarlegir. Til að koma í veg fyrir misskilning í sambandi við embættisveitingar og slíkt á Kisulandi, vil ég taka þaö fram, aö þar var allt ópersónulegt. Ekkert barnanna í bekknum í3£ ™nnaforráö fram..yf!r annað. Bekkurinn var aöeins fuiitrui Framh. á bls. 16 0

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.